Litli Bergþór - 01.12.1994, Qupperneq 11
Frá Búnaðarfélagi
Biskupstungna
^HÍV
Búnaðarfélagið okkar
Tungnamanna hefur lifað
tímana tvenna, eða heil 108
ár. Það er eitt af elstu
búnaðarfélögum á landinu og
jafnframt eitt af þeim stærstu.
Þrátt fyrir aldurinn er það
síungt. Það þarf ekki að
fjölyrða um hvað framfarir og
byltingar í landbúnaði hafa
verið miklar frá stofnun
félagsins, sem í upphafi hét
reyndar Jarðabótafélag
Biskupstungnahrepps og var
stofnað 7. júní 1886 að Vatnsleysu. Stofnfélagar
voru 31. Fyrsti formaður félagsins var séra Magnús
Helgason á Torfastöðum.
Til margra ára var mest áhersla lögð á
jarðræktarmálin, og hefur félagið haft yfir að ráða
nokkuð fjölbreyttum tækjaflota til þeirra verka. Á
þessu ári varð breyting á tækjarekstri félagsins.
Óskað var eftir tilboðum í jarðtætingu, og var tilboði
Benedikts Skúlasonar tekið. í framhaldi af því var
dráttarvél félagsins seld ásamt tætaranum. Ekki
sást grundvöllur fyrir endunýjun.
Nú á síðari árum á tímum samdráttar, samfara
auknum kröfum um þekkingu, hefurfélagið snúið
sér meira að fræðslu og menningarmálum. Þar ber
hæst heimildarkvikmyndin um Biskupstungur, sem
gefin var út í tilefni af aldarafmæli félagsins árið
1986. Haldnir hafa verið fræðslufundir um ýmis mál
Svavar, Gunnar og Kristófer.
er snerta landbúnaðinn. Þörf á uppfræðslu bænda
hefur aldrei verið meiri en nú. Slíkir eru
breytingatímarnir.
Þegar þetta er ritað standa fyrir dyrum miklar
breytingar á félagskerfi bænda. Búnaðarfélag
íslands og Stéttarsamband bænda munu verða að
einum heildarsamtökum bænda. Vonir standa til að
þessi sameining verði bændum og landbúnaði til
hagsbóta. Búnaðarsambönd og búgreinasamtök
munu eiga aðilda að þessum samtökum og kjósa
þau sína fulltrúa á þing samtakanna. Mörgum
verður tíðrætt um framtíð búnaðarfélaga hreppanna.
Sumum finnst þeirra ekki þörf lengur og
búgreinafélög geti tekið við hlutverkum sem þeim er
ætlað að sinna. Öðrum þykir sameining
búnaðarfélaga á stóru svæði æskileg og enn öðrum
þykir ekki þarft að breyta þeim að neinu leyti og líta
jafnvel á búgreinafélög sem hinn mesta óþarfa.
Búgreinafélög eru vafalítið komin til að vera. Þau
hafa skapað sér ákveðinn sess, en það þarf ekki að
þýða að hreppabúnaðarfélög séu feig. Sá sem
þetta ritar er þeirrar trúar að bæði félagsformin eigi
rétt á sér. En því er ekki að neita að hlutverk
búnaðarfélaga er rýrara en það var þegar
landbúnaður var í uppsveiflu. Og vera má að
einhverja spennu vanti umhverfis þennan
félagsskap til að draga betur að.
Fyrir þremur árum eignaðist félagið drjúgan hlut í
Yleiningu h. f. Framleiðnisjóður lagði fram fjármagn
með eflingu atvinnulífs í huga. Nú er félagið stærsti
hluthafinn og á það jafnframt stjórnarformanninn.
í vetur mun félagsstarfið verða með svipuðu sniði
og áður. Við munum halda okkar árlegu kvöldvöku
nokkrum vikum fyrir jól og við reiknum með að fá
einhverja fróða menn í heimsókn eftir áramót og
aftur fyrir vorið. Einnig höfum við hug á að efna til
ferðalags á útmánuðum, en það verður nánar kynnt
síðar.
Núverandi stjórn Búnaðarfélags Biskupstungna er
þannig skipuð: Gunnar Sverrisson í Hrosshaga,
formaður, Svavar Sveinsson á Drumboddsstöðum,
gjaldkeri, og Kristófer Tómasson í Helludal, ritari.
Góðir Tungnamenn !
Munið eftir búnaðarfélaginu ykkar.
Það mun áfram kappkosta að sinna sínu fólki.
Með von um snjóléttan og farsælan vetur!
Fyrir hönd stjórnar.
Kristófer Tómasson.
Séra Magnús Helgason
á Toifastöðum.
Litli - Bergþór 11