Litli Bergþór - 01.12.1994, Blaðsíða 18
unglingalandsliðinu
í borðtennis
S
til Irlands
Þorvaldur Skúli Pálsson
Dagbók sú, sem hérferá eftir, greinirfrá því þegar fjórir piltar úr Tungunum, þeirAxel
Sœland, Guðni Páll Sœland, Ingimar Ari Jensson og dagbókarhöfundur fóru í keppnisferð með
unglingalandsliðinu í borðtennis til Dublin á Irlandi í sumar.
29. júní
Allir hittust við ÍSÍ kl. 5.30. Lagt var af
stað til Keflavíkur kl. 5.50. Þegar þangað var
komið uppgötvaðist að Gummi (Stephensen)
varð tólf ára þennan dag og var honum færður
forláta „Smarties“ pakki þegar inn í Fríhöfnina
var komið.
Flogið var til Heathrow kl. 8.05, en þar
var beðið í fimm tíma. Þar sem ekkert var að
gera þarna eyddu flestir tímanum á „Burger
King“ staðnum, sem var þarna. Síðan var
flogið af stað til Dublin kl. 17.00 og við komum
á Háskólagarðinn kl. 18.40, en þar komu allir
sér fyrir.
30. júní
Allir voru vaktir kl. 9.00 og leiðin lá því
næst niður í miðbæ, þar sem flestir eyddu
talsverðum peningum.
Reyndar er ekki mikið að segja um þessa
bæjarferð nema það, að viðskiptin jukust til
muna hjá „McDonalds".
Við lögðum af stað til baka á
háskólagarðinn um tvöleytið og þar tókum við
létta æfingu. Unt kvöldið fóru allir í fótbolta,
nema stelpurnar (auðvitað).
l.júlí
Dagurinn byrjaði á morgunleikfimi og
síðan var tekin létt æfing.
Mótið byrjaði með því að öll liðin kepptu
við Englendinga, sem voru með sterkasta liðið
á mótinu í öllum flokkum. Bestur árangur
náðist í flokki 15-16 ára stráka, en sá leikur
tapaðist 9-1. Hitinn þarna inni var mikill og
rakastigið var um 70% og sást það glögglega á
bolum keppenda.
2. júlí
Liðakeppnin hélt áfram og elsta
drengjaliðið náði besta árangrinum af íslensku
liðunum, 2. sæti.
Um kvöldið voru allir voðalega hressir og
það minnisstæðasta sem gerðist þetta kvöld, var
þegar skosku strákarnir komu út úr herbergi
stelpnanna og sögðu sín á milli: „Durnped by
the Icelandic girls!“
3. júlí
Dagurinn var undirlagður
einstaklingskeppni, því liðakeppnin kláraðist
deginum áður. Gummi (Stephensen) sigraði í
sínum flokki og Olafur Rafnsson sigraði í
sínum, í svokallaðri „consolation“ keppni, sem
er sér keppni fyrir þá sem tapa í sínum fyrsta
leik.
4. júlí
Þá var komið að heimferðinni. Það var
eiginlega svolítið skrítið veður, 26 stiga hiti og
grenjandi rigning.
Á leiðinni frá Dublin til Heathrow fengum
við þennan dæmigerða enska morgunverð, þ.e.
vel steikt beikon, skonsur, enska pylsu (vel
feita) og blóðmör. Eg held að flestir hafi skilað
matnum aftur ósnertum. Annars einkenndi
ferðina hvað maturinn var ógeðslegur og það
sást eiginlega hverjir voru Islendingar þarna,
því við hömstruðum gos og súkkulaði, sem við
tókum síðan með okkur upp á herbergi.
En aftur að heimferðinni. Þegar á
Heathrow var komið fóru allir í tollskoðun eins
og vera bar og það merkilegasta við það var, að
allt borðtennislím sem fannst var gert upptækt.
Litli - Bergþór 18