Litli Bergþór - 01.12.1994, Blaðsíða 21
Firmakeppni 11. júní 1994
Firmakeppni var haldin á vellinum við
Hrísholt 11. júní og var smá
uppákoma sama daginn í tilefni af
„Ári fjölskylunnar". Þar mátti sjá hesta
undir heybandi og krakka ríðandi á
gæruskinni. Einnig var krökkum boðið
að fara á bak og var teymt undir þeim
sem þess þurftu með. Þessi samkoma
var mjög vel auglýst og var leiðninlegt
að ekki skyldu fleiri koma í Hrísholt
þennan dag. Nokkrir knapar keppu sér
í flokki og stóðu sig mjög vel. Gaman
væri að sjá þá oftar á hestamótum.
Firmakeppni
Firma
Barnaflokkur.
1. Aðalsteinn Kjóastöðum
2. Jón Gýgjarhólskoti
3. Garðyrkjustöðin Varmagerði
Unglingaflokkur.
1. Félagsbúið Heiði
2. Tætaraþjónustan Kirkjuholti
3. Meðferðarheimilið Torfastöðum
Fullorðinsflokkur.
1. Seiðaeldisstöðin Spóastöðum
2. Tamningastöðin Fellskoti
3. Ræktunarbúið Torfastöðum
Keppandi
Björt Ólafsdóttir á Mögnu
Böðvar Stefánsson á Glóa
Aðalbjörg Aðalsteinsdóttir á Lit
Fannar Ólafsson á Eldjárn
Bryndís Kristjánsdóttir á Hrímni
Birta Karlsdóttir á Plútó
Ólafur Einarsson á Randalín
María Þórarinsdóttir á Dropa
Drífa Kristjánsdóttir á Hildisif
Urslif fóru þannig.
1. Margrét Bóasdóttir á Geisla frá Bræðratungu
2. Þáll Skúlason á Skugga frá Fellskoti
3. Guðni Lýðsson frá Jarpi frá Torfastöðum
4. Gunnar Sverrisson á Nasa frá Fellskoti
Ólafur á Randalín,
María á Dropa
og Drífa á Hildisif.
Landgræðslufélag
Biskupstungna
Fyrsti aðalfundur Landgræðslufélags
Biskupstungna var haldinn miðvikudaginn 19.
október síðastliðinn. Þar kom fram að starf
félagsins hefur verið blómlegt á fyrsta ári þess.
Jafnvel veðráttan hefur verið félaginu hagstæð.
í sumar var unnið við eftirtalin
landgræðsluverkefni:
Að kvöldi 29. júní var farið niður í Skálholtstungu
með menn og tæki. Þar var dreift áburði, sáð
melfræi og dreift úr rúlluböggum í fokgeilar.
1. júlí mættu galvaskir sauðfjárbændur með tæki
sín til að bera á uppgræðsluna við Sandá. Fram til
þessa hefur þessi áburðardreifing farið fram með
flugvél Landgræðslunnar, en nú gerðu bændur
þetta sjálfir. Framkvæmdin tókst með ágætum, og
var 24 tonnum af áburði dreift á dagsstund.
3. júlí var farið með áburð, fræ og heybagga inn í
Árbúðir. Þar var þessu dreift í rofabörð umhverfis
húsið, og gekk þessi dreifing bæði fljótt og vel í
yndislegu veðri.
Auk þessa hafði félagið milligöngu um að
unglingar í unglingavinnu unnu við landgræðslustörf
á Haukadalsheiði og í Rótarmannatorfum.
Okkur í Landgræðslufélaginu þykir orðið sýnt og
Guðni Lýðsson á
Haukadalsheiðinni.
sannað að félagið er komið til að vera og ætlum við
að nota veturinn til að kynna landgræðslu og
undirbúa öflugt starf næsta sumar.
F.h. stjórnar,
Arnheiður Þórðardóttir.
Litli - Bergþór 21