Litli Bergþór - 01.12.2001, Side 3
------------------------------------------------------------------------N
Ritstjómargrein
Þegar þrjár vikur voru liðnar af þessum vetri kusu Tungnamenn, Grímsnesingar og
Grafningsbúar, Þingvallasveitarmenn og Laugdælir um hvort þeir vildu mynda eitt sveitarfélag.
Það var samþykkt í öllum hreppunum nema Grímsnes- og Grafningshreppi, þar sem 10 fleiri
vorum móti en með.
Hér í sveit voru tæp 72 % þeirra er afstöðu tóku samþykkir sameiningu en rúm 28 % andvíg.
Þessi afstaða kom ekki á óvart þar sem bæði í kosningunni um sameiningu allra uppsveitanna var
meirihluti samþykkur og í skoðanakönnun um ýmiskonar sameiningu kom svipuð afstaða fram.
Því virðist ljóst að meirihluti Tungnamanna vill efla þessa stjórnsýlueiningu. Væntanlega eru
rök fólks fyrir þessu eitthvað mismunandi en þau veigamestu eru að lítil sveitarfélög geti ekki veitt
fbúum sínum nægilega góða þjónustu. Hinir sem andvígir eru telja líklega ekki ástæðu til að breyta
því skipulagi sem gilt hefur um aldir og stækkun sveitarfélagsins muni færa bæði stjórnsýslu og
þjónustu fjær fólkinu og minna tillit verði tekið til hvers einstaklings. Fylgjendur sameiningar
benda hins vegar á gjörbreyttar aðstæður í samgöngumálum frá því þessi skipting í sveitarfélög var
ákveðin og sífellt vaxandi verkefni sem þeim eru lögð á herðar.
Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvort unnið verður að sameiningu sveitarfélaganna þriggja
sem samþykktu sameininguna, en sveitarstjórnunum er heimilt að sameina þau án þess að ný
kosning fari fram. Sumum kann að finnast að ávinningur af því sé ekki nógu mikill þar sem
íbúafjöldi yrði ekki nema um 850 manns. Á hinn bóginn má líta svo á að þessi sameining, sem
myndaði stærsta sveitarfélag uppsveitanna, styrkti mjög stöðu sveitanna þriggja m. a. með tilliti til
vætanlegrar stærri sameiningar.
I ýmsu tilliti er sveitarfélag þessara þriggja hreppa mjög heppilegt. Öll liggja þau að
miðhálendinu og hálendisbrúnin býður upp á mikla möguleika vegna fjölbreytts landslags sem
margir vilja nú nýta sér til frístundadvala og ferðalaga. Ferðamannaleiðin utan af Mosfellsheiði og
upp að Gullfossi gefur færi á að bjóða mörgum þjónustu sem tengist beint sérstæðri náttúru
svæðisins. Innan þeirra kemur upp mjög mikið af tæru köldu vatni, sem verður að öllum líkindum
mikið verðmæti áður en langt um líður, og þar eru einnig hverir og heitt vatn, sem enn hefur ekki
verið nýtt nema að takmörkuðu leyti. Á víðlendi, bæði til fjalla og á láglendi, eru miklir
möguleikar til bæði afþreyingar og atvinnurekstrar.
Því virðist ástæðulaust að láta þessa 6 kjósendur í Grímsnes- og Grafningshreppi koma í
veg fyrir að hin sveitarfélögin þrjú fari að vilja meirihluta íbúa sinna og sameinist til að tryggja
íbúum sínum farsæla framtíð í þokkalega öflugum hreppi.
_____________________________ _____________________________________
r
v.
Hársnyrtistofa
Leifs og Ævars
Austurvegi 21 Selfossi,
Opið:
Opið:
mán.-fím. 9-18,
föstud.9-19,
og laugard. 10-14.
sími 482-1455
■'N
Litli - Bergþór 3