Litli Bergþór - 01.12.2001, Blaðsíða 6
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsnefndarfundur 8. júlí 2001.
Ályktun óformlegs fundar sem haldinn var að Borg í
Grímsnesi, 2. júlí 2001.
„Sameiginlegur, óformlegur fundur hreppsnefnda
Biskupstungnahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps,
Laugardalshrepps og Þingvallahrepps haldinn að Borg í
Grímsnesi 2. júlí 2001, samþykkir að óska eftir því að
tekin verði til þess afstaða áfundum hverrar
hreppsnefndar fyrir sig, að skipuð verði samstarfsnefnd
með tveimfulltrúumfrá hverju sveitarfélagi til þess að
kanna möguleika á sameiningu fyrrgreindra
sveitarfélaga, samkvœmt 90 gr. sveitarstjórnarlaga nr.
45/1998. Rétt þykir að sveitarstjórnirnar taki afstöðu til
þessarar ályktunar í síðasta lagi 15. júlí 2001.
Fundurinn leggur áherslu á að samstarfsnefndin skili
áfangaskýrslu til hreppsnefndanna fyrir 1. september
nœst komandi. Tillaga hreppsnefndar um fulltrúa í
samstarfsnefndina er að Sveinn A. Sæland og Margeir
Ingólfsson verði aðalmenn, Margrét Baldursdóttir og
Svavar Sveinsson sem varamenn. Samþykkt.
Ábending samvinnunefndar miðhálendisfrá fundi
hennar 17.-19. maí s.l. um að auglýsa beri breytingu á
legu Sultartangalínu 3 í tengslum við mat á
umhverfisáhrifum. Einnig að hús sem byggð hafa verið
fyrir staðfestingu svæðisskipulags miðhálendis sem gildir
til 2015 verði flokkuð sem fjallasel. Þetta á ekki við um
Árbúðir sem hefur hlotið samþykki sem hálendismiðstöð.
Hreppsnefnd samþykkir athugasemdir samvinnunefndar
miðhálendis við aðalskipulagsáætlun
Biskupstungnahrepps að þessu leyti.
Beiðni frá Geirharði Þorsteinssyni um að leggja
vinnuslóða um landareign hans, sem er hluti úr landi
Stóra-Fljóts. Næstu nágrönnum hefur verið kynnt málið.
Erindið er samþykkt. Aðrar skýringar og beiðni um
lögbýlisrétt vegna væntanlegrar húsbyggingar er frestað.
Hreppsráðsfundur 16. júlí 2001.
Erindi frá Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi
vegna efnistöku í veginn frá Tungufljóti að Gullfossi.
Kynnt og samþykkt.
Oddvitafundur Laugarásslæknishéraðshaldinn að
Flúðum 18. júní, auk oddvita Þingvallasveitar. Á
fundinum var m.a. samþykkt að ráða áfram ferðamála-
fulltrúa fyrir uppsveitir Árnessýslu, ótímabundið. Kynnt
og samþykkt.
Erindi frá skólaskrifstofu Suðurlands vegna
ráðningar leikskólaráðgjafa. Biskupstungnahreppur lýsir
yfir áhuga á að nýta sér þjónustu leikskólaráðgjafa að því
gefnu að önnur sveitarfélög á svæðinu sýni málinu áhuga
og að kostnaður verði ekki hærri en fram kemur í bréfi
frá skólaskrifstofu Suðurlands 28. júní 2001.
Bréf frá Sambandi Islenskra Sveitarfélaga.
Tillögur byggðanefndar sem skipuð var í nóvember
2000. Markmið nefndarinnar er m.a. að ná fram víðtækri
samstöðu sveitarstjórnarmanna um aðgerðir sem miði að
því að draga úr fólksflutningum til höfuðborgarsvæðisins.
Bréf frá félagsmálaráðuneytinu um ákvæði
reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum. Kynnt og
vísað til félagsmálanefndar.
Bréf frá Biskupstungnahreppi til
Skipulagsstofnunar dagsett lO.júlí 2001. Um leyfi til
byggingar íbúðarhúss á Bergstöðum og svarbréf
Skipulagsstofnunar frá Í2. júlí s.l. Sveitarstjóra falið að
vinna áfram að þessu máli.
Hreppsnefndarfundur 12. september 2001
Nýtt deiliskipulag frístundasvæðis að Reykja-
völlum, Biskupstungum. Kynnt. Deiliskipulagið er ekki í
samræmi við auglýst aðalskipulag Biskupstungnahrepps
2000-2012. Hreppsnefnd getur því ekki samþykkt
viðkomandi skipulag.
Leigusamningur um gamla áhaIdahúsið,(Fjósið).
Kynntur og staðfestur.
Fjörutíu ára afmæli Aratungu. í tilefni þess að
félagsheimilið Aratunga var fyrst tekið í notkun á árinu
1961 er við hæfi að þess sé minnst enda hefur
félagsheimilið þjónað íbúum sveitarfélagsins dyggilega
og verið miðstöð menningar og viðburða s.l. fjóra
áratugi. I afmælisnefnd hafa verið valin Sigurður
Þorsteinsson, Sigurður Erlendsson. Þuríður
Sigurðardóttir, Garðar Hannesson og Ragnar Sær
Ragnarsson. Stefnt er að því að afmælisins verði minnst
með dagskrá í félagsheimilinu fyrir aðvenntu. Dagskrá
verður kynnt síðar.
Itrekuð bréf til Lánasjóðs sveitarfélagavegna
lántöku fyrir Hitaveitu Reykholts og kaldavatns-
framkvæmda sveitarfélagsins.
Ákvörðun um tímasetningu Tungnarétta,2001.
Lögð fram fundargerð fjallskilanefndar frá 24. ágúst
2001. Málið rætt nokkuð og ljóst að sitt sýnist hverjum.
Samþykkt að fara að óskum fjallskilanefndar og
að halda óbreyttum tíma á upphafi rétta þ.e.
að réttir hefjist klukkan 9:00 árdegis. Beiðni
um fjárveitingu í að lagfæra réttirnar er vísað
til fjárhagsáætlunar.
Kaupsamningur vegna Einholts II, í
Biskupstungum þar sem Kristín Erna Hólmgeirsdóttir
og Trausti Kristjánsson selja eignarhaldsfélaginu
Skorradal kt. 580501-2140 jörðina. Hreppsnefnd
fellur frá forkaupsrétti.
Sameining sveitarfélaga, fyrri umræða um
tillögur samstarfsnefndar vegna fyrirhugaðrar
sameiningar Biskupstungnahrepps, Grímsnes og
Grafningshrepps, Laugardalshrepps og
Þingvallahrepps. Leggur nefndin til eftirfarandi
ferli varðandi sameiningu þessara sveitarfélaga á
grundvelli sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og lögum um
kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998:
1. Atkvœðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um
sameiningu fari fram laugardaginn 10. nóvember 2001.
(Kjörskrá skal gera m.v. íbúaskrá fyrir kjördag).
2. Kosning sveitarstjórnar hins sameinaða
sveitarfélags fari fram augardaginn 25. maí2002, sbr.
1. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
Kjördeildir verði óbreyttarfrá því sem nú er.
Litli - Bergþór 6