Litli Bergþór - 01.12.2001, Blaðsíða 5
Hvað segirðu til?
Að þessu sinni verður greint frá því sem helst er
fréttnæmt hér í sveit í september, október og fram í
byrjun desember.
Tíðarfar hefur verið gott í haust, frost var tæplega
merkjanlegt fyrr en í nóvember en um miðjan þann
mánuð fór það í bili eitthvað niður fyrir 10° og jörð
varð ekki alhvít af snjó fyrr en í þeim mánuði, en aðeins
snjóföl stöku sinnum. Öðru hvoru hefur rignt nokkuð
hressilega og bætti það lága vatnsstöðu í jörð. Síðast í
nóvember snjóaði í éljum og hélst það fram í desember.
Snjór sá olli hálku á vegum en ekki verulegri ófærð enda
var vindur hægur og dró lítið í skafla.
Einn fyrsta daginn í dsember var greint frá því í
veðurfréttum að mælst hefði 52 cm djúpur snjór í
Hjarðarlandi.
Ekki hefur verið mikið um áberandi
menningarviðburði hér í sveit í haust. I Skálholtsskóla
eru fundir, námskeið og fleira fyrir afmarkaða hópa.
Kristnihald hefur verið messur í Skálholtskirkju á
sunnudagsmorgnum og einnig kvöldsamkomur,
barnaguðsþjónustur, sem eru raunar öllum opnar, í
Torfastaðkirkju annan hvern sunnudag og
sunnudagsmessur öðru hvoru á hinum kirkjunum.
Síðla í nóvember hélt Karlakór Hreppamanna, sem í
eru raunar söngmenn úr flestum uppsveitum
Arnessýslu, ásamt Lögreglukór Reykjavíkur
söngskemmtun í Aratungu. Þar þöndu samtals um 60
karlar raddböndin og dönsuðu ásamt gestum sínum að
því loknu.
Að kvöldi fullveldisdags, 1. desember, var haldin hátíð
í Aratungu í tilefni af því að 9. júli sl. voru liðin 40 ár frá
því hús það var tekið í notkun. Þar flutti Garðar
Hannesson, fyrsti húsvörður í Aratungu, erindi um
byggingu Aratungu og starfið þar fyrstu árin, tylft karla,
sem allir eru afkomendur Sigurðar Erlendssonar og
Sirgíðar Þorsteinsdóttur er bjuggu á Vatnsleysu síðast á
19. öld og fram á þá 20, sungu nokkur lög við undirleik
og undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, lesin voru
atriði úr leikritinu Lénharður fógeti af fimm sem léku
sömu hlutverk er það var sett á svið í Aratungu tæpu
misseri eftir að húsið var tekið í notkun. Hvorttveggja
var undir leikstjórn Eyvindar Erlendssonar frá
Dalsmynni, sem las einnig ljóð, og Guðrún
Ingimarsdóttir Einarssonar frá Kjarnholtum,
óperusöngkona, söng einsöng við píanóundirleik. Einnig
voru veitingar í hefðbundnum veislustíl og nokkrar ræður
en að loknum lék Steini spil, sem löngum þandi
harmónikku í Aratungu fyrr á árum, fyrir dansi nokkra
stund. Tveim dögum áður var sérstök dagsskrá í tilefnfi
afmælisins fyrir leikskóla-og grunnskólanemendur.
A fullveldisdaginn opnaði Eyvindur Erlendsson
sýningu á málverkum og tréskurði í Fjallasal og víðar á
efri hæð Aratrungu. Þar má m. a. sjá andlit, fjöll og
fleira, sem kemur öldruðum Tungnamönnum kunnuglega
fyrir sjónir.
í haust var byrjað að endurbæta Gullfossveg og annast
Klæðning hf. það. Einnig hefur verið haldið áfram við
að endurbæta Kjalveg og var nú tekinn fyrir kaflinn frá
Pokakerlingu og inn að norðurkanti landgræðslu-
girðingarinnar á Tunguheiði.
Byggingaframkvæmdir hafa verið allmiklar, einkum
íbúðarhús í Reykholti en einnig er verið að byggja
íbúðarhús í Tröð í Laugarási. Hér og hvar eru byggð
frístundahús.
Vatnsveita hefur verið lögð að Efri-Reykjum úr lind
vestarlega í Hrúthaga í landi Miðhúsa.
Fjallmenn fóru í fyrstu leit þegar vika var liðin af
september. Þeir fengu dágott veður flesta dagana en
„háleitardaginn“, þ. e. þegar smalaður er norðurhluti
Kjalhrauns, var rok, rigning og þoka. Einn fjallmaður
handleggsbrotnaði, en að öðru leyti var ferðin án áfalla.
Tunganréttardagur var 15. september. Veður var milt,
þurrt og hlýtt þann dag og naut þess mikill fjöldi fólks,
bæði heimamenn og gestir. Ekki liggja fyrir upplýsingar
urn fjölda hvorki fjár né fólks, en áætla má að fullorðið fé
hafi verið 15-16 hundruð og fólk ef til vill næstum eins
margt, en líklega hafa lömbin verið heldur fleiri en hinir
hóparnir hvor fyrir sig.
I tveggja daga leit, eftirsafn, var farið um síðustu helgi
í september, og tóku þátt í henni 15 manns, sem leituðu
syðri hluta afréttarins allt innan úr Svartárbotnum. Veður
var blítt þessa daga og komu þeir með 34 kindur og voru
þrjár þeirra fyrir innan Hvítá en hinar flestar í
Hólahögum.
Atta voru í eftirleit frá 10.-16. október. Þau fengu
fremur leiðinlegt veður tvo fyrstu leitardaganna, slyddu
og bylfugt. Nokkur snjór var á innsta hluta afréttarins og
færð vond bæði fyrir hesta og bíla. Hina dagana var milt
veður og færð góð þar sem þá var leitað. Leitarmennirnir
komu með sex kindur, og fundu þeir fjórar þeirra í
Þjófadölum en tvær austan við Bláfell. Meðan þeir voru
í leitinni komu rjúpnaskyttur með þrjár kindur á
Hveravelli, sem þeir kváðust hafa fundið í Þjófadölum og
rekið þær þaðan. Dregið hefur verið í efa að þær hafi
verið svo vestarlega. Björgunarsveitarmenn voru fengnir
til að sækja þær. Síðar voru sóttar þrjár kindur, sem
voru í grennd við veginn í Kerlingarfjöll. Þær voru úr
Hrunamannahreppi og var talið að þær væru nýlega
komnar vestur yfir Jökulfall. Snemma í nóvember sáu
rjúpnaskyttur tvö lömb í Oddnýjargili. Þeir létu
Húnvetninga vita af þeim og þeir fluttu þau á Hveravelli.
Lömbin reyndust vera úr Tungunum og voru því sótt.
Smalað var við Hlíðar þegar vika lifði af september.
Það gekk að vonum en nokkuð var verið að tína saman
af fé á þessu svæði fram eftir nóvember.
Víða hefur orðið vart við tófur bæði í afrétti og byggð í
haust. A. m. k. tvær hafa fallið fyrir kúlum skotmanna í
Austurhlíð.
Við úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði 2001 hlaut Gunnar
Kristjánsson (Skálholtsstaður) kr. 4 milljónir til að rita
sögu Skálholtsstaðar og Mjöll Snæsdóttir,
Fornleifastofnun Islands og Þjóðminjasafn Islands kr. 9
milljónir til fornleifarrannsókna í Skálholti.
Nokkuð hefur verið um slys hér í sveit í haust. Flest
hafa þau verið minni háttar, en sex slösuðust í
bifreiðaárekstri á brúnni á Laugá vestan við Geysi í
byrjun nóvember. Af þeim voru þrír aldraðir
Tungnamenn á leið til samkomu á vegum Félags eldri
borgara í Brattholti. Það voru tveir karlar og ein kona og
brotnuðu bein í þeim öllum en góðar líkur eru á að þau
fái bót meina sinna.
A. K.
Litli - Bergþór 5