Litli Bergþór - 01.12.2001, Side 7
Hreppsnefndarfréttir
3. Sameining sveitarfélaganna taki gildi 9. júní 2002.
4. Hið nýja sveitaifélag skal taka yfir allt það
landsvœði sem nú tilheyrir áðurgreindumfjórum
sveitarfélögum.
5. Eignir, skuldir, réttindi og skyldur sem tilheyra
þessum fjórum sveitarfélögum skulufalla til hins nýja
sveitaifélags.
6. Skjöl og bókhaldsgögn sveitaifélaganna fjögurra
skulu afhent hinu nýja sveitarfélagi til varðveislu.
7. Verði sameining samþykkt skal mynduð
framkvœmdanefiid er vinni að undirbúningi
sameiningarinnar. M.a. skal framk\’œtndanefndin vinna
eða láta vinna úttekt á skólamálum og skipulagi þeirra í
nýju sveitarfélagi og gera tillögur að skipulagi
stjórnsýslu og nýtingu mannvirkja. Það er sameiginlegur
skilningur samstarfsnefndarinnar að bœta þarf
húsnœðismál grunnskólanna til að byggja upp betri
þjónustu og staifsaðstöðu fyrir nemendur og kennara.
Ljóst er þó að öllum slíkum áformum verður aðfresta
vegna sameiningarinnar og vœntanlegrar úttektar.
8. Samþykki íbúar í 2/3 hlutum sveitaifélaganna þar
sem búa 2/3 hlutar íbúanna sameininguna, munu
sveitarstjórnir þeirra sveitaifélaga taka ákvörðun um
sameiningu þeirra án atkvœðagreiðslu.
Hreppsnefnd fjallaði um tillöguna og er hlynnt
innihaldi hennar og að stefnt verði að sameiningar-
kosningu 10. nóvember n.k. Vinna fer að hefjast vegna
útgáfu kynningarefnis og er stefnt að kynningarfundum í
öllum sveitarfélögunum í október. Sú kynning verður í
höndum samstarfsnefndarinnar.
Samþykkt að boða til aukafundar í hreppsnefnd
miðvikudaginn 19. september 2001, kl: 16:00, vegna
síðari umræðu um sameiningu sveitarfélaganna eins og
lög gera ráð fyrir.
Hreppsnefnd ítrekar afgreiðslu um að
frístundasvæðið Iðavellir, Haukadal, er fyrir utan friðlýst
svæði Nátturuverndar (737) og að samkvæmt afgreiðslu
hreppsnefndar á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2000-2012
á frístundasvæðið að vera laust við hverfisvernd enda er
svæðið utan votlendis og sveitarstjórn samþykkt umrætt
svæði sem frístundasvæði. Mörk svæðisins liggja
samsíða raflínu sem liggur sunnan frístundasvæðis.
Hreppsnefndarfundur 19. september 2001
Sameining sveitarfélaga, síðari umræða um tillögur
samstarfsnefndar vegna fyrirhugaðrar sameiningar
Biskupstungnahrepps, Grímsnes og Grafningshrepps,
Laugardalshrepps og Þingvallahrepps. Hreppsnefnd
fjallaði um tillöguna og er hlynnt innihaldi hennar eins
og það var kynnt á síðasta fundi hreppsnefndar. Þó er
gerð sú breyting að kosning fari fram 17. nóvember 2001
í stað 10. nóvember eins og áður hafði verið kynnt.
Sameiningarmálin rædd og ný dagsetning kjördags
staðfest. Vinna fer að hefjast vegna útgáfu
kynningarefnis og er stefnt að kynningarfundum í öllum
sveitarfélögunum í október. Sú kynning verður í höndum
samstarfsnefndarinnar.
Hreppsnefndarfundur 17. október 2001.
Ný deiliskipulög frístundasvæða að Reykjavöllum,
Biskupstungum. Kynnt og samþykkt að auglýsa
viðkomandi skipulög strax og Umhverfisráðherra hefur
staðfest aðalskipulag Biskupstungnahrepps.
Heimsókn að Iðufelli, Laugarási. Farið á staðinn og
skoðuð möguleg verslunarlóð og þær lóðir sem eru
verslunarlóðir samkvæmt aðalskipulagi. Kynnt og vísað
til næsta fundar hreppsnefndar. Einnig litið á vegakerfið
í Laugarási og hvaða úrbætur þurfa að fara fram á næstu
vikum.
Sameining sveitarfélaga, staða mála.
Kynningarbækling hefur nú verið dreift á öll heimili og
hægt er að greiða utankjörstaðaatkvæði hjá sýslumanni.
Kynningarfundur verður í Félagsheimilinu Aratungu
föstudaginn 9. nóvember n.k. en kosningar fara fram 17.
nóvember 2001.
Aðalskipulag Biskupstungnahrepps. Nú er öllum
formsatriðum lokið til að Umhverfisráðherra geti staðfest
aðalskipulagið. Lagt til að undirritun fari fram í sveitinni
og sveitarstjóra falið að hafa samband við ráðuneytið og'
velja tímasetningu til undirritunar sem fari fram með
formlegum hætti.
Bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem staðfest er
lánsbeiðni sveitarfélagsins vegna vatnsveituframkvæmda.
Lánið er krónur 10.000.000.- og er í samræmi við
fjárhagsáætlun. Lánið er veitt til 10 ára með 4,5%
vöxtum og með tryggingum í tekjum sveitarfélagsins.
Hreppsnefnd samþykkir töku lánsins með ofangreindum
skilmálum.
Peningagjöf, kr. 10.000,- til leiktækjakaupa fyrir
grunnskólans frá tveim börnum grunnskólans, Báru Sif
Omarsdóttur og Katrínu Ragnarsdóttur. Peningarnir
söfnuðust á tombólu á “Björtum dögum” s.l. sumar.
Stúlkurnar afhentu Sveini Sæland peningagjöfina.
Lögbýlisréttur vegna hluta úr jörðinni Bergstaðir,
Biskupstungum. Jón Gunnar Bjarnason kt. 280662-5699,
óskar eftir að eignarhluti sinn, landnúmer 167207, úr
jörðinni Bergstaðir verði sjálfstætt lögbýli og hljóti
nafnið Bergstaðir II. Hreppsnefnd gerir ekki
athugasemdir við að Bergstaðir II verði lögbýli.
Kaupsamningur um land í Lambadal. Bjarni
Kristinsson og Oddný K. Jósefsdóttir, selja Boga
Pálssyni, og Sólveigu Dóru Magnúsdóttur kt. um
105.000 fm lands. Hreppsnefnd fellur frá forkaupsrétti.
Yfirlýsing sem fylgir er samþykkt að undanskildum 4.
lið. Einnig samþykkt að landeigandi fái að nýta nafnið
Sólbrekka á húseign og lóð í stað Lambabrúnar.
Fundur með þingmönnum Suðurlandsað Flúðum,
þriðjudaginn 23. október n.k. Rætt um að áhersluatriði
verði samræmd við önnur sveitarfélög í uppsveitum
Arnessýslu.
Tekið saman af D.K.
Litli - Bergþór 7