Litli Bergþór - 01.12.2001, Qupperneq 15
Sigríður og Sveinn í Bræðratungu frh
L-B: Hvað eruð þið mörg systkinin:
Sveinn: Við erum 3 bræðurnir, ég elstur, Gunnlaugur
6 árum yngri, fæddur 1933 og Páll yngstur, fæddur 1940.
Þar sem við vorum á svo ólíkum aldri, má segja að við
hefðum ekki mikinn félagsskap hver af öðrum í
uppvextinum, bræðurnir. Gunnlaugur nam
dýralækningar í Þýskalandi og hefur verið
héraðsdýralæknir hér í
Laugarási frá 1963,
kvæntur Renötu E.
Vilhjálmsdóttur frá
Þýskalandi. Þau eiga 3
dætur og 2 syni. Páll
er lögfræðingur, býr í
Reykjavík og er
kvæntur Elísabetu
Guttormsdóttur frá
Hallormsstað.
Sveinn 3ja ara.
L-B: Faðirþinn var mikill
framámaður hér í
Biskupstungum. Getur þú sagt
mér ofurlítið frá honum og
hvernig það kom til að hannflutti hingað í Brœðratungu.
Sveinn: Skúli faðir minn var oddviti í 20 ár og
hreppsnefndarmaður í 40 ár auk ýmissa annarra
trúnaðarstarfa sem á hann hlóðust. Hann hafði því oft
mikið að gera. Mér er minnisstætt að hann var þeim
eiginleikum gæddur að geta gert marga hluti í einu.
Hann gat til dæmis verið að ræða við gest, sem var í
heimsókn, en á sama tíma verið að skrifa embættisbréf
og hlusta á útvarpið. Þess má geta, að allir bræður hans
voru listaskrifarar, nema hann, vegna þess að hann
skrifaði svo hratt.
Faðir minn kom í Tungu 1924. Það kom þannig til,
að við konungskomuna 1907 kynntist hann ungum
dönskum blaðamanm í fylgdarliði konungs, Sven
Poulsen, sem seinna varð ritstjóri Berlinske Tidende í
Kaupmannahöfn. Skúli faðir minn var þá fylgdarmaður
og hestasveinn, nýkominn frá Flensborg. Arið eftir,
1908, fór hann til landbúnaðarnáms til Danmerkur og
dvaldi þá um tíma hjá Sven. Sven Poulsen varð mjög
upptekinn af því hvað landbúnaður hér á Islandi væri
skammt á veg kominn, miðað við þá miklu möguleika,
sem landið byði uppá. En Danir voru þá meðal fremstu
þjóða í heimi í landbúnaði. Gekkst hann fyrir því að
Brœðurnir í Brœðratungu, Sveinn, Páll
og Gunnlaugur.
stofnað var hlutafélag um kaup á Bræðratungu, ásamt 5
hjáleigum, af Einari Benediktssyni, í þeim tilgangi að
koma hér upp nútímalegu stórbúi. Það var árið 1915.
Árið eftir kom Sven að
skoða höfuðbólið og var
faðir minn þá ráðinn
fylgdarmaður hans. Árið
1921 er Danakonungur
enn á ferð og vill þá svo
til að þeir voru þar aftur í
sömu hlutverkum
vinirnir, Sven og faðir
minn. Bindast þeir þá
fastmælum, að þeir setji Svm Poulsen
saman bú í Bræðratungu
þegar jörðin losnaði úr
ábúð. Og þannig kom það til að faðir minn flyst í
Bræðratungu árið 1924. Var hann þar bústjóri, en Sven
bjó alltaf í Danmörku.
■ „ -
Það er næsta vist að það var
ætlast til að hann tæki við
ættaróðalinu á Kiðjabergi, enda
eini sonurinn, sem lagði fyrir sig
landbúnaðarnám. En faðir minn
sá meiri ræktunarmöguleika í
Tungu og því fór það svo að það
var guðfræðingurinn í
fjölskyldunni, Halldór, sem tók
við búskap á Kiðjabergi.
Sven og faðir minn voru
saman í búrekstrinum á árunum
1924 til 1930. Sumarið 1927,
þegar ég var þriggja vikna, var
Sven hér á ferð og varð það til
þess að ég var skírður í höfuðið á honum 31. júlí 1927.
Ef hann hefði ekki
komið, hefði ég vísast
heitið eitthvað allt
annað!
En um 1930 skall
heimskreppan á og
varð mjög erfitt að reka
bú. Búskapur Sven
Poulsens lagðist þá af
og voru foreldrar mínir
einir með sitt bú frá
1931. Árið 1936 kom
Sven í síðasta sinn til
Islands, og seldi þá
ríkinu
Bræðratungutorfuna.
Eg var þá 9 ára og er
mér mjög minnisstætt
hve hann var stór og
sver Áður en hann fór Sveinn borinn til skírnar í
gaf hann mér tveggja Brceði atungukirkju.
vetra meri og man ég að mér fannst hann eiginlega ekki
Litli - Bergþór 15