Litli Bergþór - 01.12.2001, Qupperneq 21
Sigríður og Sveinn í Bræðratungu frh....
Litli - Bergþór 21
Brynjar, Hákon Sveinn (stendur), Gretar ogfleiri synja í
Björn í Úthlíð og Sveinn í Brœðratungu
mœttir til leiks og rifja upp fyrri fjallferðir.
Sveinn heldur uppá það að 60 ár eru liðin
frá fyrstu fjallferð hans.
síðan formaður frá 1980. Þar hef ég unnið með ágætum
mönnum og á ég góðar minningar úr þessu starfi. Nú eru
með mér í nefndinni Bjarki Reynisson í Mjósyndi, í
Villingaholtshreppi og Guðmundur Stefánsson í
Hraungerði. Báðir ágætir menn. Það má segja að ég hafi
verið heppinn að fá yfirleitt að vinna með góðu og
félagsmálasinnuðu fóki, en ég held að best sé að vera
ekki að telja það neitt upp, því ég gleymi örugglega
einhverjum!.
L-B: Svo voruð þið bœði í
Skálholtskórnum varþað ekki?
Sigríður: Jú, jú. Eg var
viðloðandi Skálholtskórinn í
25 ár, frá 1963 - 1988. Það
var auðvitað dr. Róbert A.
Ottósson, sem var fyrsti
stjórnandi og stofnandi
Skálholtskórsins og það var
einstakt að verða þess
aðnjótandi að vinna með þeim
manni. Annars byrjaði ég að
syngja hjá Kjartani Brœðratungukirkja.
Jóhannessyni organista í Stóra
Núpskirkju. Svo var ég um tíma „leiguþý“ í
Torfastaðakómum undir stjórn Þorsteins á Vatnsleysu.
Sungum við meðal annars við vígslu Aratungu árið 1961.
Sveinn: Eg byrjaði heldur seinna en Sigga í
Skálholtskómum. Eg hef sungið undir stjórn margra
góðra manna: undir stjórn Stefáns Sigurðssonar og hjá
Þórði Kristleifssyni, í 2 vikur hjá Sigurði Birkis, sem var
fyrsti sögngmálastjóri þjóðkirkjunnar og stofnaði
kirkjukór á Hvanneyri meðan ég var þar og svo hjá Dr
Róbert. En samt hef ég aldrei orðið góður söngmaður!
L-B: Nú stendur Bræðratungukirkja hér í hlaðinu hjá
ykkur. Getur þú sagt mér eitthvað um hana Sveinn.
Sveinn. Bræðratunga er gamall kirkjustaður og er
fyrst getið í heimildum um 1200. Þá var hún bænda-
kirkja og var það til 1899 að hún varð safnaðarkirkja.
Þessi kirkja sem nú stendur var byggð 1911 og er
prýdd ýmsum góðum gripum. Annars var lítið um
listaverk í kirkjum. Það var Rögnvaldur Olafsson
listamaður mikill, sem teiknaði hana og hún var smíðuð
af Ólafi Jónssyni, ættuðum úr Landeyjunum. Hann var
mágur Sigurðar ísleifssonar, bónda á Bergsstöðum, sem
var formaður sóknarnefndar á þeim tíma. Jón Vigfússon
var ungur maður að læra smíði hjá Ólafi og var
predikunarstóllinn sveinsstykkið hans.
Fyrsti meðhjálpari hér í
kirkjunni var Bjarni Gíslason í
Lambhúskoti, til 1945. Þátók
við Skúli Gunnlaugsson, faðir
minn, til 1966, og síðan hef ég
verið hér meðhjálpari. Það má
heita einstakt, að í rúma öld,
1885 - 1988, voru einungis 3
prestar hér í Tungunum.
Magnús Helgason var prestur í
16 ár, Eiríkur Þ. Stefánsson í tæp
49 og sr. Guðmundur Óli
Ólafsson í rúm 42 ár.
Organistar, sem ég man eftir eru
Þorsteinn, Erlendur og Sigurður Erlendsson á
Vatnsleysu, og svo Hilmar Örn nú síðustu árin.
Það er verið að vinna að endurbótum á kirkjunni núna
og verður hún vonandi í góðu nothæfu standi þegar
jólamessan fer fram.
Það er vel við hœfi að Ijúka viðtalinu á kirkjulegum
nótum svona réttfyrir jólin.
Blaðamaður kveður heiðurshjónin Svein og Sigríði og
litlu Sigríði Magneu, sem oft er ípössun hjá afa og
ömmu þegar blaðamann ber að garði og þakkar fyrir
hlýjar móttökur og góðan viðurgjörning.
GS