Litli Bergþór - 01.03.2005, Page 18
verkefni stjórnar er að leggja línur um starf deildar-
innar, og er þar greint frá því að hún eigi 200 kg af
ýsu, sem enn er í sjó. Síðar er greint frá því að ágóði
af fisksölu var 17 þúsund krónur. Þetta mun ekki
hafa verið varanlegur kvóti, og eru tekjur af fisksölu
ekki þáttur í fjáröflun sveitarinnar síðan.
Aðalfundur Slysavarnadeildar og -sveitar var haldinn
í byrjun apríl árið eftir stofnun. Þá höfðu innheimst
árgjöld af 84 félögum, en tekjur voru alls rúmlega
125 þúsundir króna.
Keyptur hafði verið
nokkur búnaður, svo sem
leitarljós, sjúkrabörur,
snjóleitarstangir, teppi og
sjúkrataska. Námskeið
voru haldin í fyrstu hjálp
og notkun áttavita.
Formaður var endurkjörinn
með meira en þrefalt fleiri
akvæðum en í upphafi, en
meðstjórnedur gáfu ekki
kost á endurkjöri og í
þeirra stað voru kjörin þau
Gunnar Guðjónsson á Tjörn
og Helga Karlsdóttir á Gýgjarhóli. Formaður lætur í
ljós það álit sitt að næsta stórverkefni sé að kaupa
vélsleða.
I fundargerð aðalfundar Slysavarnasveitarinnar er
sagt frá að 13 félagar höfðu farið á samæfingu í
Ölfusi, tekið hafði verið þátt í leit með Þingvallavatni
og smalað bæði Hagafell og Haukdalsheiði. Guðni
Lýðsson var endurkjörinn formaður, en varaformaður
gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Haraldur
Kristjánsson í Einholti kjörinn í hans stað.
A næsta aðalfundi Slysavarnadeildarinnar, 3. maí
1987, er greint frá tækjakaupum. Þá er búið að
kaupa vélsleða, öryggishjálma og tvær talstöðvar og
að auki fengið eina frá Slysavamafélagi íslands.
Formaður er endurkjörinn, en meðstjómendur skorast
undan endurkjöri og em þeir Svavar Sveinsson á
Dramboddsstöum og Karl Jónsson í Gýgjarhólskoti
kjörnir í þeirra stað.
Hjá Slysavarnasveitinni hafði það helst borið til
tíðinda á starfsárinu 1986 - 1987 að þeir leituðu að
rjúpnaskyttu í október og vélsleðamanni í mars.
Fjórar áttavita- og leitaræfingar voru haldnar og
gerður var „óformlegur samanburður á vélsleðum,
fjórhjóladrifnu fjórhjóli og fjórhjóladrifnum dráttar-
vélum.“ Ekki kemur fram í fundargerð hvert þessara
tækja reyndist best.
Aðalfundur 1988 er haldinn snemma í apríl, og þar er
frá því greint að keypt hafði verið efni í vélsleða-
kerru, sem tjórir félagar smíðuð. Stjórnin var
endurkjörin og einr.ig endurskoðendur, fulltrúi á
aðalfund Slysavarnafélags Islands og fjáröflunar-
nefnd eins og árin á undan. A þessum fundi er farið
að ræða um húsbyggingu og kosin húsbygginga-
nefnd, „sem er falið að athuga með væntanlega hús-
byggingu“, eins og segir í fundargerð.
Á aðalfundi Slysavarnasveitarinnar 1989 er upplýst
að einn félagi hafði fengið kennsluréttindi í fjarskipt-
um og annar í leit og rötun. Engin bylting varð í
kosningum á þessum fundi og nú var kosið í æfinga-
og námskeiðsnefnd.
Næsta ár var það helst til tíðinda á aðalfundi
Slysavarnadeildarnnar
að húsbyggingarnefnd
hafði gert kostnaðaráætlun
um efni í 120 fermetra
skemmu upp á 700 þúsund
krónur og árgjöld voru
tvöfölduð.
Hjá Slysavarnasveitinni
höfðu verið námskeið,
æfingar og útköll.
Allt er þetta með
svipuðum hætti árið 1990,
en á aðlfundi Slysavarna-
sveitarinnar það ár gefur
formaður ekki kost á
endurkjöri, og er Guðjón Rúnar Guðjónsson í
Miðholti kjörinn í hans stað.
í ársbyrjun 1991 ber það við á stjómarfundi að
formaður deildarinnar, sem gegnt hafði því starfi í
nær 6 ár, skýrir frá því að hann segi af sér. Á
aðalfundi, sem haldinn er 19. febrúar, er lagt fram
bréf frá honum. Greinir hann þar frá ástæðum þess,
og eru þær:
1. Ekki tekið mark á vilja formanns, svo sem í
innheimtu árgjalda og fleiru.
2. Nefndir hafa ekki samráð við stjórn.
3. Formaður rekinn út af fundi vegna raunsærrar
afstöðu varðandi áramótagleði.
4. Það virðist svo sem formenn séu orðnir of margir í
félagsskapnum og því nauðsyn að ég víki.
Jafnframt segir hann sig úr félaginu frá og með 15.
janúar 1991.
Þetta undirritar Sigurjón Kristinsson 13. janúar 1991.
Annar meðstjómenda, Svavar Sveinsson, hafði gegnt
störfum formanns síðasta mánuðinn, og gengu störf
aðalfundar fyrir sig með eðlilegum hætti. Arnór
Karlsson var kosinn formaður, en hann hafði komið
inn í stjórnina sem varamaður við brotthvarf for-
manns.
Á jólaföstu 1991 er haldinn svonefndur haustfundur.
Þar er skýrt frá starfi fjáröflunarnefndar, og sýnir að
þá er farið að vinna árangursríkt starf, sem síðan
hefur haldist. Bókað er að fjáröflunin hafi falist í
„blómasölu, rifin hlaða í Kjarnholtum, söfnun dósa,
gæsla fyrir varnarliðið við heræfingar og gæsla á
Geysissvæðinu, þegar gos var.“ Alls höfðu safnast
næstum 400 þúsund ki'ónur. Skýrt er frá því að þá
Litli Bergþórl8