Litli Bergþór - 01.06.2006, Síða 4
Formannspistill
Aðalfundur Ungmennafélagsins var haldinn í
Aratungu 21. maí síðastliðinn, og auk hefðbundinna
aðalfundastarfa var ársskýrslan skoðuð, en þar gefur
að líta það helsta úr starfi deilda Ungmennafélagsins.
Ekki urðu breytingar í aðalstjóm, en hjá íþróttadeild
gaf Loftur S. Magnússon ekki kost á sér lengur en í
hans stað kom Helga María Jónsdóttir, eru Lofti
þökkuð störfin með Iþróttadeild.
Þann 4. apríl var undirritaður samstarfssamningur
milli sveitarfélagsins annars vegar og ungmenna-
félaganna og björgunarsveitanna hins vegar. Eins og
flestum er kunnugt eru tvö ungmennafélög og tvær
björgunarsveitir innan sveitarfélagsins. Hvað
Ungmennafélagið varðar lítur samningur þessi einkum
að því að efla samstarf milli sveitarfélagsins og UMF
Bisk. og tryggja öflugt íþrótta-, tómstunda-, og
æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga í sveitarfélaginu.
Samningnum er ætlað að tryggja enn frekar starfsemi
UMF Bisk., enda er það viðurkennt af sveitar-
félaginu að UMF Bisk. sinni öflugu og
viðurkenndu forvamastarfi.
Samstarfssamningurinn felur í sér fjárstyrk
sem greiðist út tvisvar á ári og er það til bóta
að það liggi fyrir hver fjárstyrkur sveitar-
félagsins er. Hin hliðin er sú sem mest lýtur að
skipulagningu æfinga í íþróttamiðstöð sem nú
verða verðlagðar og þannig gerður sýnilegri
kostnaður við hvem tíma þar. Þegar kemur að
því að íþróttadeild skipuleggi æfingar næsta
haust verður reiknaður kostnaður á hvern tíma
til afnota í íþróttamiðstöðinni. Já, breytingin
með samningnum felst meðal annars í þessu að
áður fólst styrkur sveitafélagsins að stórum
hluta í aðgangi að íþróttamiðstöðinni, sem ekki
voru með beinum hætti reiknaðir í verði hvers æfinga-
tíma. I samningnum eru lagðar auknar skyldur á
félagið og er ekkert nema gott um það að segja, því
vissulega felst mikil ábyrgð í því að standa vel að öllu
sem lýtur að æskulýðs- og íþróttamálum æskunni til
handa. Eitt af því sem kemur fram í samningnum er
að börn á vegum UMF Bisk., búsett í Bláskógabyggð
eru tryggð af sveitarfélaginu í íþróttastarfi á vegum
félagsins. Um er að ræða sambærilega tryggingu og á
börnum í grunnskóla.
Nú að afstöðnum sveitarstjómarkosningum vil ég
þakka fráfarandi sveitarstjóm fyrir samstarfið og vænti
góðs samstarfs af hinni nýju.
Með ósk um gjöfult og gott sumar.
Kveðja,
Guttormur Bjarnason,
formaður Umf Bisk.
Frá vinstri: Oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, formaður Umf. Bisk.,
sveitarstjóri Bláskógabyggðar, formaður Björgunarsveitar Biskupstungna,
formaður Umf. Laugdœla.
Kosningar á aðalfundi Umf. Bisk. 2006:
Aðalstjórn:
Guttormur Bjarnason, formaður
Sveinn Kristinsson, ritari
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, gjaldkeri
Dagný Rut Grétarsdóttir, varamaður
Asborg Arnþórsdóttir, varamaður
Skógræktardeild:
Sigurjón Sæland, formaður
Ingimar Einarsson, ritari
Jens Pétur Jóhannsson, gjaldkeri
Hólmfríður Geirsdóttir
Rekstrarnefnd:
Guttormur Bjamason, formaður
Sveinn Kristinsson, varamaður
íþróttarvallanefnd:
Helgi Guðmundsson, formaður
Þórarinn Þorfinnsson
Rúnar Bjarnason
Fulltrúi í þjóðhátíðarnefnd:
Skipaður af stjórn.
Skoðunarmenn:
Gylfi Haraldsson, aðalskoðunarmaður
Amór Karlsson, varamaður
Útgáfunefnd:
Arnór Karlsson
Skúli Sæland
Pétur Skarphéðinsson
Svava Theodórsdóttir
Skemmtinefnd unglinga:
Eyrún ída Guðjónsdóttir
Guðfinnur Davíð Óskarsson
Arndís Anna Jakobsdóttir
Guðrún Linda Sveinsdóttir
Þröstur Geirsson
Guðrún Gýgja Jónsdóttir
Litli Bergþór 4