Litli Bergþór - 01.06.2006, Qupperneq 21
Hreppsnefndarfréttir
Úr fundargerðum sveitarstjórnar og byggðaráðs Bláskógabyggðar
54. fundur byggðaráðs 27. mars 2006.
Mættir voru fulltrúar í byggðaráði auk Valtýs Valtýssonar
sem ritaði fundargerð.
Minnisblað frá ferðamálafulltrúa varðandi merkingar á
Laugarvatni. Byggðaráð leggur til að skiltin verði tekin niður
og leiðrétt fyrir sumarið. Jafnframt leggur byggðaráð til að
lagfærð verði öll upplýsingaskilti í þéttbýliskjörnum innan
sveitarfélagsins.
Lóðablað, dagsett febrúar 2006, vegna spildu úr landi
Brautarhóls. Um er að ræða 27.000 fm spildu. Byggðaráð
leggur til að samþykkt verði að umræddri spildu verði skipt
út úr jörðinni skv. 30. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Jafnframt vill byggðaráð benda á gildandi deiliskipulag á
þessu svæði, en gert er ráð fyrir vegi í gegnum umrædda
spildu.
Vegslóði frá Kerlingu að Hlöðuvöllum. Byggðaráð leggur
til að hugað verði að endurbótum á vegslóðanum frá Kerlingu
að Hlöðuvöllum og verði sótt um styrk í Styrkvegasjóð
Vegagerðarinnar vegna framkvæmdarinnar.
Erindi frá Vegagerðinni varðandi merkingu sveitarbæja,
dags. 21,mars 2006. Byggðaráð tekur vel í erindið en þar sem
ekki er gert ráð fyrir fé til merkinga á þessu ári þá er lagt til
að þetta verði haft í huga við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið
2007.
Kaldavatnsmál. Fulltrúar Bláskógabyggðar, Grímsnes- og
Grafningshrepps ásamt starfsmanni Orkuveitu Reykjavíkur
og Guðjóni Sigfússyni, verkfræðingi, hafa verið að skoða
kosti þess að fara út í sameiginlega kaldavatnsveitu fyrir
Biskupstungur og Grímsnes. Lögð fram kostnaðaráætlun
fyrir tvo mismunandi meginvalkosti við framkvæmdir.
Byggðaráð leggur til að skoðun á þessum málum verði haldið
áfram í samstarfi við Grímsnes- og Grafningshrepp.
Jafnframt verði farið að huga að rekstrarfyrirkomulagi og
eignarhaldi umræddrar vatnsveitu.
55. fundur sveitarstjórnar 27. mars 2006
Mættir voru allir sveitarstjórnarmenn, Einar Sveinbjörns-
son, endurskoðandi, og Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem
ritaði fundargerð.
Ársreikningur Bláskógabyggðar 2005, fyrri umræða.
Einar Sveinbjömsson, endurskoðandi frá KPMG, gerði grein
fyrir vinnu endurskoðenda.
Lagður fram ársreikningur Bláskógabyggðar fyrir árið
2005 ásamt sundurliðunum. Einar Sveinbjörnsson og Valtýr
Valtýsson gerðu grein fyrir ársreikningnum og skýrðu ýmsa
liði.
Helstu niðurstöður úr rekstrar- og efnahagsreikningi sam-
stæðu sveitarfélagsins eru:
Rekstrarreikningur:
Rekstrartekjur:
Rekstrargjöld:
Fjármagnsgjöld:
Rekstramiðurstaða:
Efnahagsreikningur:
Eignir:
Fastafjármunir:
554.422.840
- 540.623.981
- 37.124.953
- 23.326.094
576.289.199
Veltufjármunir: 90.547.830
Eignir samtals: 666.837.029
Skuldir og eigið fé:
Eiginfjárreikningur: 146.663.605
Langtímaskuldir: 392.324.208
Skammtímaskuldir: 127.849.216
Eigið fé og skuldir samtals: 666.837.029
Ársreikningi vísað til seinni umræðu í sveitarstjórn, sem
verður á næsta reglubundna fundi hennar þann 4. apríl n.k.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar og framkvæmdaáætlunar
Bláskógabyggðar 2006.
Lögð fram tillaga að endurskoðaðri fjárhagsáætlun
Bláskógabyggðar 2006, þar sem búið er að færa inn rauntölur
ársins 2005 til samanburðar. Einnig lögð fram framkvæm-
daáætlun ársins 2006. Áætluninni vísað til annarrar umræðu
á næsta fundi sveitarstjómar þann 4. aprfl 2006.
56. fundur sveitarstjórnar 4. aprfl 2006.
Mættir voru allir sveitarstjórnarmenn og
Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Fundargerðir til staðfestingar:
23. fundur skipulagsnefndar, dags. 30. mars 2006.
Varðandi 7. dagskrárlið fundargerðarinnar, tillaga að
deiliskipulagi í landi Torfastaða, þá hefur sveitarstjórn borist
nýr uppdráttur sem kemur til móts við athugasemdir skipu-
lagsnefndar, þ.e. að lóðir skulu að jafnaði vera 0,5 ha og að
götunafnið Heiðarbraut hefur verið breytt í Brynjólfsbraut.
Jafnframt er meðfylgjandi umsögn frá Heilbrigðisnefnd
Suðurlands. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að heimila
auglýsingu tillögunnar skv. 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga, og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. Bent er
á að umsögn frá Fornleifavernd ríkisins þarf að hafa borist að
nýju eftir skráningu fornleifa á svæðinu áður en tillagan
verður tekin fyrir að nýju að loknum auglýsingartíma. Drífa
Kristjánsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar fundar-
gerðarinnar.
Að öðru leyti er fundargerðin staðfest samhljóða.
Ársreikningur Bláskógabyggðar 2005 (seinni umræða);
Lagður fram ársreikningur Bláskógabyggar árið 2005 til
seinni umræðu, ásamt sundurliðunum. Helstu niðurstöður úr
rekstrar- og efnahagsreikningi samstæðu sveitarfélagsins era:
Rekstrarreikningur:
[Tölur em óbreyttar frá fyrri umfjöllun, sem greint er frá í
fundargerðinni hér á undan.]
I yfirliti um sjóðstreymi kemur fram umtalsverður bati í
veltufé frá rekstri, eða sem svarar kr. 30 milljónum. Tekin
vom ný langtímalán sem nýtt voru til fjárfestingar í skólahús-
næði og til skuldbreytinga, þ.e. lækkunar skammtímaskulda.
Náðst hefur ákveðinn árangur í rekstri sveitarfélagsins.
Nauðsynlegt er að viðhalda aðhaldi og huga að hagræðingu í
rekstri sveitarfélagsins í takt við fjárhagsáætlanir sveitarsjóðs
til næstu ára.
Kjartan Lárusson ræddi uppgjör fjallskilasjóðs Laugardals
fyrir árin 2002 til 2005. Benti hann á villur í uppgjöri
reikninganna sem þarf að yfirfara og leiðrétta.
Sveitarstjóm Bláskógabyggðar samþykkir ársreikning
21 Litli Bergþór