Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2002, Qupperneq 13
Fréttabréf ættfræðifélagsins í mars 2002
Ásgeir Svanbergsson: Kópavogi
Dálítið um Bjarna Bjarnasyni í Grunnavík
í ritinu Grunnvíkingabók eru tilgreindir fimm menn
með nafninu Bjarni Bjarnason. Er þar fátt sagt frá
sumum þeirra en þó allrangt. Hér verður sett fram
nokkuð til lagfæringar þó fátt sé af öllu því sem laga
þyrfti.
Fyrst verður þá fyrir Bjarni Bjarnason, f. 1755.
Foreldrar hans eru taldir ókunnir, svo og nöfn
tveggja eiginkvenna. Er hvort tveggja rangt.
Foreldrar hans voru Bjami Brynjólfsson, bóndi á
Suðureyri í Súgandafirði, f. 1728, d. 11. nóv. 1784 og
k.h. Halldóra Jónsdóttir bónda í Æðey Einarssonar, f.
1726, á lífi 1801 (Sm.æv.III, 208). Fyrsta kona hans
var Guðríður Jónsdóttir frá Vatnadal d. 1783
(Esp.967). Börn þeirra voru:
a) Brynjólfur f. 1775, á lífi á Hesteyri 1801.
b) Jónf. 1781.
c) Jón f. 1782, báðir á lífi 1786 en horfnir 1801.
d) Guðríður f. 1783, d. 29. jan. 1784.
e) Eggert tvíburi við Guðríði, d. 12. feb. 1784.
Líklega hefur móðirin dáið af þeim barnsburði.
Önnur kona Bjarna var Sigríður Pálsdóttir frá
Kvíanesi (Esp.1782) f. 1762, d. fyrir 1801. Þeirra
börn voru:
f) Páll f. 1788, d. 21. apríl 1848. Um hann má
lesa í Arnardalsætt 622-624 en þar segir þó
ekki frá afdrifum Björns sonar hans sem varð
úti á Steingrímsfjarðarheiði 17. apríl 1862.
g) Guðríður f. 14. jan. 1786 á Laugum, d. 6. júlí
1834 á Dröngum, átti Sigurð Alexíusson
(Strandam. 549).
h) Sigríður f. 1789, d. 19. des. 1839 á Hesteyri.
i) Herdís f. 1790, d.26. apríl 1848 á Kvíanesi.
- voru báðar ógiftar og barnlausar.
Þriðja konan var Guðríður Brandsdóttir f. 1760 á
Höfða, d. 30. mars 1822 og voru börn þeirra:
j) Katrín f. 1792, á lífi 1801, ekki getið síðar.
k) Bjarni f. 1793. Fyrir honum er gerð grein hér
á eftir.
l) Rafn f. 1795, d. 10. jan. 1863 í Hnífsdal,
bóndi á Kollsá og í Furufirði, átti Guðríði
Sigfúsdóttur og börn.
Dánardagur Bjama Bjarnasonar er ókunnur.
Annar Bjarninn í röðinni er Bjarni Bjarnason, f.
1793. Hann er sonur Bjarna sem fyrr var greindur og
þriðju konu hans Guðríðar Brandsdóttur. Er hann
með foreldrum sínum 1801 og móður 1816. Barns-
móðir hans var Ingibjörg Ólafsdóttir heimasæta í
Reykjarfirði og var bam þeirra Jakob f. 2. des. 1883,
dó 10 daga gamall. Bjami finnst ekki 1835. Hann dó
6. júní 1836, „ógiftur húsmaður á Bolungarvík“,
drukknaði.
1 klausuna um þennan Bjarna er blandað upplýs-
ingum um annan Bjarna sem lengi var þar nyrðra en
fær þó enga umgetningu í Grunnvíkingabók.
Sá maður er Bjarni Bjarnason, f. 1790 í Rafns-
eyrarsókn, síðast á lífi að vitað er 1845 á Nesi í
Grunnavík. Móðir hans var Guðrún Loftsdóttir
(Skiptabók Isafj.f.) Bjarnasonar (Esp.3555) sem bjó
á Kirkjubóli í Mosdal 1801 en faðir Bjama er
ókunnur. Bjarni þessi var á Kirkjubóli 1801, á
Kvígindisfelli 1816, Vigur 1820 og Ármúla 1830.
þaðan kom hann í Grunnavík 1830 og er á Álfs-
stöðum 1835 og 1840 og þekkist þar á barni sínu og
fylgikonu. Hann er svo á Nesi 1845 og sést þá að
hann er Amfirðingur.
Barnsmóðir Bjama var Ragnheiður Sigurðardóttir
vinnukona í Vigur og víðar í Djúpi, f. 1788 á Hamar-
landi, d. 25. feb. 1876 í Hraundal. Barn þeirra var
Guðrún, f. 1. des. 1824 í Vigur. Hún fylgdi föður
sínum og átti Þorleif Einarsson, bónda í Bolungarvík
og böm. Þeirra er getið í Grunnvíkingabók.
Fylgikona Bjarna var Ingibjörg Ólafsdóttir, f. 17.
júlí 1808 á Fremribakka, síðast á lífi að vitað er 1850
á Steinólfsstöðum. Foreldrar hennar voru Ólafur
Ásgeirsson, ekkill í Hnífsdal 1801og Sigþrúður
Þórðardóttir á Fremribakka. Barn hennar og Bjarna
var Guðrún, f. 26. sept. 1833, d. 30. nóv. sama ár.
Umsögn um Ingibjörgu r Grunnvíkingabók er nær
alveg röng og henni er það rækilega hrært saman við
nöfnu sína í Reykjarfirði.
Næst fitjar Grunnvíkingabók uppá Bjarna
Bjarnasyni, f. um 1794. þetta er Bjarni Bjarnason, f.
1801 í Hindisvík á Vatnsnesi, d. 18. okt. 1860 í
Stóru-Ávík. Foreldrar hans voru Bjarni
Guðmundsson, bóndi á Felli, Árneshr. og k.h.
Solveig Guðmundsdóttir. (Strandam. 524, leiðr.)
Bjami kom 1832 úr Árneshreppi. Kona hans var
Sigríður Guðmundsdóttir f. 1799 í Barðsvík, d. 14.
des. 1839, dóttir Guðmundar Snorrasonar og
Margrétar Jónsdóttur. Sigríðar er getið í
Grunnvíkingabók en hún sögð ókunn og önnur kona
samnefnd sögð kona Bjarna og er hvort tveggja
rangt.
Þau Bjarni giftust 29. sept. 1831 og vom börn
þeirra:
a) Guðbjörg f. 8. des. 1831, átti Ólaf Brandsson
(Strandam. 488).
b) Guðríður f. 1. maí 1833, d. 28. jan. 1840.
c) Guðmundur f. 20. apríl 1834, d. 30. júlí sama
ár.
d) Helga f. 14. okt. 1835, var í Bæ, Ámeshr.
1845.
e) Sigurborg f. 1. nóv. 1836, d. 25. jan. 1837.
http: //w w w. vortex. is/aett
13
aett@vortex.is