Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2004, Blaðsíða 3

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2004, Blaðsíða 3
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2004 Guðjón Óskar Jónsson skrifar: Vík milli vina í Biskupasögum síra Jóns Halldórssonar (f. 1665 d. 1736) í Hítardal segir svo um Odd Einarsson Skálholtsbiskup: Hann var mjög getspakur og forspár um marga hluti, en lét lítið yfir því, nema þá hann var glaður. Eitt sinn á hans heimreisu úr Austfjarðavísitasíu reið hann frá Skógum undir Eyjáfjöllum nokkuð ölglaður, bjuggu þar hans góðir vinir, Þormóður bóndi og Halla Grímsdóttir, systir Björns málara, foreldrar Amunda, er lengi bjó í Skógum, og veittu alúðlega biskupi og sveinum hans, svo þeir urðu líttfœrir til að fylgja honum, nema síra Haldór Daðason, sem síðar varð prestur íRuna og prófastur íÁrnesþíngi; riðu þeir biskup og hann tveir einir til Holts um kvöldið; sagði síra Haldór frá laungu seinna það biskup hefði mart sagt sérfyrir, sem síðar framkom, og það eitt á meðal annars, að nú hefði síra Haldór séð konuefni sitt; það væri hún Haldóra, dóttir Einars á Hörgslandi, Stephánssonar, og Kristínar Grímsdóttur, systur Höllu í Skógum. Þar með hefði biskup bannað síra Haldóri að sigla upp á lærdóm, þó hann hefði það í huga, því það mundi ekki honum lukkast, hann mundi snart fá Runaprestakall, því herra Gunnlaugur Jónsson, sem þá hélt Runa vœri skammlífur. Þetta skeði svo sem biskup sagði. Oddur biskup var f. 1559 d. 1630. Þegar Halldóra Einarsdóttir frá Hörgslandi gerðist prestskona í Hruna um 1624, var hún í reynd komin á ættarslóðir. Afi hennar og langafi voru prestar í Hruna. Áatal Halldóru 1. grein 1. Einar Stefánsson lögréttum. Hörgslandi Síðu. f. 1560/1570 nefndur 1628. ~ Kristín Grímsdóttir 2 - 1. 2. Stefán Amason bóndi Hörgslandi. f. 1535/1540. ~ kona ókunn. 3. Arni Einarsson bóndi austur á Síðu. f. 1505/1510. ~ kona ókunn. 4. Einar Sigvaldason bóndi Hrauni Landbroti. f. 1475/1480. ~ Gunnhildur Jónsdóttir 9-4. 5. Sigvaldi „langalíf1 Gunnarsson smiður, var á Vesturlandi svo bóndi austur á Síðu. 15. -16. öld. ~ Þuríður Einarsdóttir 17-5. 2. grein. 1. Kristín Grímsdóttir hfr. Hörgslandi. 16- 17 öld. ~ Einar Stefánsson 1 - 1. 2. Grímur Skúlason kirkjuprestur Skálholti 1564- 1578, prestur Hruna 1578 - dd. 16. öld. d. 1582. ~ Guðrún Bjömsdóttir 4-2. 3. Skúli - bóndi óvíst hvar - ætt óviss. 15. - 16. öld. ~ Halldóra Grímsdóttir 6-3. 4. grein. 2. Guðrún Björnsdóttir hfr. Hruna. 16. öld. ~ Grímur Skúlason 2-2. 3. Björn Ólafsson prestur Snæúlfsstöðum 1524 - 1533, prestur Hruna 1554. 16 öld. Nefndur 1567. ~ s.k. Margrét Arnljótsdóttir 20 - 4. (sjá ísl. æviskrár 6. bd. bls. 523). 6. grein 3. Halldóra Grímsdóttir hfr - óvíst hvar. „Frá Auðsholti Biskupstungum“. 15.-16. öld. ~ Skúli 2-3. Bræður Halldóru: síra Freysteinn Stafholti Mýmm. síra Eiríkur Gilsbakka Mýrum. síra Eyjólfur Melum Borgarfirði. 9. grein. 4. Gunnhildur Jónsdóttir hfr. Hrauni Landbroti. 15,- 16. öld. ~ Einar Sigvaldason 1 - 4. Ætt ókunn, en bróðursonur Gunnhildar var Jón Loftsson pr. Vatnsfirði. 17. grein. 5. Þuríður Einarsdóttir hfr. austur á Síðu. 15./16. öld. ~ Sigvaldi Gunnarsson 1-5. http://www.vortex.is/aett 3 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.