Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2004, Síða 9
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2004
Gunnar B. Guðmundsson frá Heiðarbrún:
Islenskar fornættir
Erindi flutt á félagsfundi Ættfræðifélagsins 30. október 2003
í Fréttabréfinu hefur lítið verið fjallað um íslenskar
fomættir, þá næstum tvo áratugi sem ritið hefur kom-
ið út. Og þegar þar hafa birst ættrakningar (,,áatöl“),
þá virðist það lenska að hætta ættrakningu þegar
komið er aftur til 17. aldar þótt hægt sé að rekja
viðkomandi karlleggi lengra aftur. Ég hef verið
margbeðinn um að fjalla eitthvað um fornættirnar.
Hér með kem ég með nokkur skrif þar að lútandi.
I.
Menn hafa spurt hvers vegna íslendingar höfðu mik-
inn ættfræðiáhuga strax á fyrstu öldum búsetu í land-
inu - og að því er virðist framyfir aðra Norðurlanda-
búa. Margt kemur þar til. Sennilega hefur landnámið
verið slíkur tímamótaviðburður í sögu hverrar land-
nemaættar að menn hafa - með hverri nýrri kynslóð
- talið sér sjálfsagt og skylt að geta rakið ættina lið
fyrir lið til sjálfs sín, allt frá þeim manninum er
fyrstur nam land á „höfuðbóli“ ættarinnar.
Á landnámsöld - og bæði fyrr og síðar - var það
lögfræðilegt/fjármálalegt atriði að kunna að rekja ætt
sína og að þekkja ættmenni sín. Það kom til af því að
erfðarétturinn gilti í fimm ættliði og framfærslu-
skyldan til jafnlengdar. Mér er sagt að þannig hafi
maður getað bankað upp á bæ og sagt: „I síðustu
orrustunni tapaði ég skipi mínu, öllu góssi og varð
örkumla maður. Nú er ég kominn heim, því það var
hér sem sameiginlegur forfaðir okkar bjó í sjötta lið.“
Og húsbóndanum var skylt að taka við þessum fjar-
skylda frænda sínum og sjá honum fyrir lífsviður-
væri. Ættfræðiþekking var því eins konar hagfræði
þess tíma. Ætli hefndarskyldan (og að styðja menn í
ófriði) hafi ekki líka verið bundin við ættina(?) Með
það í huga verður skilinn stuðningur Ketils hængs
(síðar landnámsmanns á Rangárvöllum) við Skalla-
Grím til hefnda gegn Haraldi hárfagra, en skyldleiki
þeirra var „þremur að fjórða“ frá Ulfi hinum óarga úr
Hrafnistu. (Úlfur óargi - Hallbera - Kveld-Úlfur -
Skalla-Grímur. Hins vegar: Úlfur óargi - Hallbjörn
hálftröll - Ketill hængur eldri - Hrafhildur - Ketill
hængur landnámsmaður).
Við Islendingar eigum meiri upplýsingar um
fyrstu byggð í landinu og uppruna okkar en nokkur
önnur þjóð jarðarinnar. Það kemur til af því að ritið
Landnámabók segir á skipulegan og nákvæman hátt
frá því hverjir námu hin einstöku landsvæði hringinn
um landið og rakti jafnframt ættir frá rúmlega 400
landnámsmönnum og fram að ritunartíma bókarinnar
(„Frumlandnámu"). Telja má að frumgerð Land-
námabókar sé frá því nærri 1130. Síðari tíma menn
juku síðan við texta hennar og bættu þá við ætt-
rakningum til síns samtíma. Þessir menn voru
Styrmir hinn fróði Kárason d. 1235 (Styrmisbók),
Sturla lögmaður Þórðarson d. 1284 (Sturlubók),
Snorri Markússon á Melum d. 1313 (og e.t.v.
Þorsteinn sonur hans d. 1353) (Melabók) og loks
Haukur lögmaður Erlendsson d. 1334 (Hauksbók).
Séu þessar ættartölur Landnámabókar bornar
saman við ættartölur Islendingasagna (t.d. Njáls-
sögu, Grettissögu) og ættartalnanna í Sturlungusafn-
inu, þá ekki einungis ber þeim saman í öllum megin-
atriðum, heldur má segja að hvert nýtt rit sem tekið
er til samanburðar, auki við þann ættfræðigrunn sem
hin ritin höfðu látið í té. Þannig höfum við mikla
þekkingu á ættum okkar Islendinga frá landnámsöld
og fram um aldamótin 1300. Síðan kemur svona 150
ára tímabil sem er ákaflega erfitt til ættrakningar
vegna skorts á samtímaheimildum. Það er engu lfk-
ara en Islendingar hafi að mestu misst áhuga á
nýskráningu ættartalna nokkru eftir lok Þjóðveldis-
ins, en hins vegar hættum við aldrei að endurrita
eldri heimildir. Það er orðið langt síðan ég kom fram
með þá tilgátu að þessi „doði“ hafi orðið sem afleið-
ing af tilkomu erlendra manna á biskupsstólana í
Skálholti og á Hólum, en áður höfðu sumir íslensku
biskuparnir verið áhugasamir um hin þjóðlegu fræði
þ.m.t. ættvísi. Að vísu getum við ekki staðhæft að
Gunnar B. Guðmundsson
frá Heiðarbrún er fœddur 4.
júlí 1940 í Litlu-Tungu t
Holtum, Rang. Foreldrar:
Guðmundur Haraldur
Eyjólfsson og Jóhanna B.
Bjamadóttir, þá búandi í
Litlu-Tungu. Kennarapróf
1965. Kennari á Varmalandi,
Mýr 1965-1967. Skólastjóri á
FlúðumÁm. 1967-1972.
Skólastjóri og kennari á Laugalandi í Holtum 1972-
1980. Kennari á Hellu 1980-1984. Gœslumaður við
Gunnarsholtshœlið 1984-2000.
Gœslumaður í Veiðivötnum á Landmannaafrétti 1967-
1980. Er gjörkunnugur miðhálendi Islartds. Frá
bamsaldri haft áhuga á sögu lands og þjóðar þ.m.t.
œttfrœði og þá ekki livað síst íslenskum fomœttum.
Sonur Gunnars er Högni fceddur 2. feb 1968,
deildarstjóri hjá Loftorku í Borgarnesi. Kona Högna er
Sigríður Kristín Halldórsdóttir og samtals eiga þau
fimm börn.
http://www.vortex.is/aett
9
aett@vortex.is