Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2004, Side 11

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2004, Side 11
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2004 Uppsalahaugar. Ynglingar -konungsætt Svía - þótti göfugust allra ætta á Norðurlöndum. Höfuðstaður ættarinnar var Uppsalir í Svíþjóð. 3) Konungsætt Dana (Skjöldungar) Það gengu ýmsar sögur um danska fornkonunga eins og Frið-Fróða, Hrólf kraka, Harald hilditönn og Ragnar loðbrók. Menn röktu ættir þessara konunga til Skjaldar sonar Oðins. Nokkrir land- námsmenn röktu ættir sínar til þessara konunga eins og Helgi magri og Auðunn skökull í Húna- vatnssýslu. 4) Norskir konungar - Háleygjaætt Fyrir daga Haraldar hárfagra skiptist Noregur í u.þ.b. 30 fylki og réði konungur yfir hverju þeirra. Var talið að þeir væru afkomendur Sæmings sonar Oðins sem átti að hafa lagt undir sig Noreg. Sumir íslenskir landnemar röktu ættir sínar til norskra fylkiskonunga eins og Böðvar hvíti (afi Síðu- Halls), Þrasi í Skógum, Ævar hinn gamli í Húna- þingi (forfaðir Hafliða Mássonar) og Úlfur skjálgi Reykhólum á Barðaströnd, fotfaðir Sturlunga. Geirmundur heljarskinn konungur af Rogalandi sætti sig ekki við yfirráð Haraldar hins hárfagra, sigldi því til Islands og nam land að Skarði á Skarðsströnd. Merkustu höfðingjaætt Noregs tel ég vera Hálevgiaættina. þ.e. ætt Hlaðajarla. Eyvindur skáldaspillir orti á 10. öld kvæðið Háleygjatal og er það um Hákon Sigurðsson jarl á Hlöðum í Þrándheimi f. um 937, d. 995 og taldi þar lang- feðga hans til Sæmings Oðinssonar (þ.e. í beinan karllegg). Kvæðið er nú glatað en menn þekkja ættartöluna. Afi Hákonar var Hákon Grjótgarðs- son f. um 850. Systir hans Æsa Grjótgarðsdóttir var móðir Ketilbjarnar landnámsmanns á Mosfelli og er þaðan auðrakið til Haukdæla og Oddaverja (íslenskra höfðingjaætta á 13. öld). Bróðurdóttir Æsu var Rannveig á Ingjaldssandi formóðir Sturlunga. Af hinni fomu Háleygjaætt hljóta að hafa verið Herlaugur og Hrolllaugur konungar í Naumudal, þegar Haraldur hárfagri hirðir ríki þeirra, þótt það verði ekki rakið. Af frásögn Heimskringlu má ætla annan þeirra elliæran og hinn geggjaðan. Sú skoðun hefur komið fram að Herlaugur hafi verið faðir Þorkels Naumdælajarls, föður Ketils hængs landnema á Rangárvöllum. 5) Konungsætt Svía - Ynglingar. Ætt þessi var mjög þekkt og þótti göfugust allra ætta á Norðurlöndum. Nálægt aldamótunum 900 eða fyrr orti Þjóðólfur hinn fróði, skáld úr Hvini kvæðið Ynglingatal og segir hann þar frá 30 mönnum þessarar ættar í beinan karllegg, allt frá Fjölni syni „guðsins" Freys og var höfuðstaður ættarinnar Uppsalir í Svíþjóð. Margt hefur verið ritað um ætt Ynglinganna og fræðimenn, inn- lendir sem erlendir, telja flestir að flest mæli með sannleiksgildi ættartölunnar. Þeirrar skoðunar voru líka menn á Norðurlöndum áður fyrr, ef marka má orð Arnviðs hins blinda, þau er hann lét falla á þingi snemma á 11. öld um ætt Ólafs „sænska" Eiríkssonar Svíakonungs er hann segir, „Uppsvíaætt er tignust er á Norðurlöndum, því sú ætt er komin frá goðunum sjálfum." (Heims- kringla II, 152 (H.Í.F)). Af Ynglingaættinni í karllegg voru menn eins og Haraldur hárfagri og Ólafur hvíti herkonungur d. 871, maður Auðar djúpúðgu. Frá Ólafi hvíta og Auði má rekja á ýmsa vegu, en af þeim var Ari hinn fróði kominn í beinan karllegg. Til eru þeir fræðimenn sem efast um réttmæta tengingu langfeðga Haraldar http://www.vortex.is/aett 11 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.