Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2004, Side 12
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2004
hárfagra við Ynglingaættina, en ég sé ekki annað
en svo forn heimildarmaður sem Skalla-Grímur
afsanni það með lausavísu sinni, „Nú er hersis
hefnd“, þar sem hann nefnir liðsmenn Haraldar
„Ynglingsbörn“ , en vísuna yrkir hann um 890.
Ennfremur hafa menn dregið í efa rétt nöfn á
nánustu áum Olafs hvíta. Enginn vafi er á því að
Auður djúpúðga hefur vitað hverra manna Ólafur
maður hennar var og hún hefði orðið aðhlátursefni
ef hún hefði ætlað að ljúga til um ættemi hans til
hinnar alþekktu Ynglingaættar.
Ég hefi nú farið fáeinum orðum um ættir sem eru
eldri en landnám á íslandi. Allt er það yfirgripskennt
hjá mér og æðimörgu sleppt, vona ég þó að þessi
skrif veiti lesendum einhverja innsýn í ættir þessa
tímaskeiðs og minni þá á að þjóðin er eldri en
Islandsbyggð.
III.
Niðjar Skalla-Gríms - Mýramannakyn
Mér þykir rétt að fjalla lítillega um einhverja ætt
Þjóðveldisins á Islandi. Kannske er það tilviljun að
ég vel ætt þeirra Borgarmanna í Mýrasýslu.
Fyrir tæpum þremur áratugum hlustaði ég á
roskinn mann segja frá því þegar hann, sem yngri
maður, var staddur ásamt fáeinum íslenskum skips-
félögum sínum á enskri knæpu. Þeir lenda í erjum
við miklu fjölmennari hóp þarlendra manna og harð-
skeytta. Hann og félagar brutu fæturna undan stól-
unum (og borðum?) og notuðu sem barefli og að
lyktum ráku þeir flótta „fúlmennanna“ út úr knæp-
unni. (En hvernig sem á því stóð varð skipstjórinn að
ná í þá á lögreglustöðina morguninn eftir, hvað ég
best man). Maður þessi - sem er látinn - var ekki
bendlaður við ósannindi og ekki talinn raupsamur.
Skallagrínishaugur í Borgarnesi. Þeir feðgar Kveld-
Úlfur, Skalla-Grímur og Egill eru á mörkum þess að
vera mennskir, stærri og miklu sterkari en aðrir menn,
búmenn, smiðir og skáld. Skalla-Grímur er sagður
heigður í Skallagrímshaugi.
Hann hefur trúlega verið þokkalega að manni en
varla fremur en gengur og gerist. Ekki var maðurinn
öðrum málsnjallari en þegar hann sagði sögu þessa
var eins og yfir hann brygði bjarma. Þegar ég hlust-
aði á hann, sá ég fyrir mér sjálfan Egil Skalla-
Grímsson segja sögu sína og ég áttaði mig á því að
upphaf Egilssögu voru frásagnir Egils sjálfs. I 78.
kafla Egilssögu segir hve Agli þótti skemmtilegt að
tala við Einar skálaglamm og ennfremur, „Einar
spurði....Egil að þeim tíðindum, er fyrr höfðu gjörst
um ferðir Egils og stórvirki hans, en það tal þótti
Agli gott“. Fleiri en Einar hafa hlýtt á stílfærðar
frásagnir Egils og þessum frásögnum hafa afkom-
endur Egils sagt hverri nýrri kynslóð.
Þeir feðgar Kveld-Úlfur, Skalla-Grímur, Egill eru
á mörkum þess að vera „mennskir“, stærri og miklu
sterkari en aðrir menn, búmenn hinir bestu, smiðir og
skáld. Meðal afkomenda Skalla-Gríms eru þekktir
vopnhæfnismenn: Bjöm Hítdælakappi var dóttur-
dóttur-sonur Skalla-Gríms, Kjartan Ólafsson (sá er
sundið þreytti við Ólaf konung Tryggvason) var
sonur Þorgerðar Egilsdóttur og Víga-Barði var
dóttursonur Þorgerðar. Þá var Skúli sonur Þorsteins
Egilssonar lengi í víkingaferðum erlendis. Annað
einkenni þeirra Mýramanna var skáldskapurinn en
sjálfur var Egill eitt mesta skáld sinnar tíðar. Af
honum var kominn Einar skáld Skúlason en eftir
Einar er mikill kveðskapur m.a. helgikvæðið
„Geisli" er hann flutti Noregskonungum í Niðarós-
dómkirkju árið 1153.
Nú skal tilgreina hvar ættir verða raktar frá Agli
Skalla-Grímssyni til seinnitíma fólks.
A)Bera Egilsdóttir var formóðir Hítardalsættar og
þar með Herdísar konu Páls Jónssonar biskups d.
1211 og móðir Lofts biskupssonar er bjó á Borg
um miðja 13. öld. Bera var líka formóðir Val-
gerðar konu Narfa Snorrasonar á Skarði á Skarðs-
strönd d. 1284 (Skarðveriaætt. sem af var Loftur
hinn ríki Guttormsson d. 1432). Ennfremur var
Bera formóðir Skógveriaættar undir Eyjafjöllum.
BjÞorgerður Egilsdóttir kona Ólafs pá í Hjarðar-
holti. Dóttir þeirra var Þorbjörg dygra skömngs-
kona og skáld í Vatnsfirði, móðir Ingveldar
formóður Skarðveriaættarinnar. Sonur Þorbjargar
var Kjartan í Vatnsfirði, faðir Þorvalds, föður
Þórðar skálds, föður Snorra, föður Þorvaldar
Vatnsfirðings d. 1228 tengdasonar Snorra Sturlu-
sonar. Af Þorvaldi eru komnir síðari tíma Vatns-
firðingar.
CjÞorsteinn Egilsson goðorðsmaður á Borg f. um
940. Hann átti 12 nafngreind börn og meðal þeirra
eru:
1. Helga hin fagra er þeir deildu um Gunnlaugur
ormstunga og Skáld-Hrafn. Fornar ættartölur
rekja ætt frá henni í karllegg til Svalbarðsættar-
http://www.vortex.is/aett
12
aett@vortex.is