Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2007, Page 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í janúar 2007
Kristín Jónsdóttir frá Vésteinsholti í Haukadal:
Arfur kynslóðanna
Hinn 23. júní 1906, eða fyrir sléttum 100 árum,
fæddist hjónunum Kristínu Aðalsteinsdóttur og
Guðmundi Guðmundssyni, sem voru bændur í
Hrauni í Keldudal í Dýrafirði, sonur. Þetta var Jón
Guðmundsson faðir minn, síðar bóndi á Vésteinsholti
í Haukadal. I Hrauni var þá margbýlt en þau áttu
heima í Fremribænum, sem kallaður var.
Afi Guðmundur var frá Dröngum, sonur
Guðmundar Jústssonar, sterkasta manns á Vestfjörð-
um á sinni tíð, og Sigurborgar Ebenesardóttur. Þegar
hann drukknaði á Síldinni, rétt fram af Keldudal,
frá 12 börnum var fjölskyldunni sundrað. Börnin
send ýmist til vina eða vandalausra og sagði amma
Kristín, eins og við systkinin höfum alltaf kallað
hana, til aðgreinar frá móðurömmu okkar Elínborgu,
að þótt erfitt hefði verið að missa manninn þá hefði
verið enn erfiðara að slíta frá sér börnin.
Pabbi hét í höfuðið á Jóni Jónssyni skipstjóra
á Vésteinsholti í Haukadal, sem kvæntur var
ömmusystur hans í föðurætt. Jón og kona hans,
Guðmunda Kristjánsdóttir, voru bamlaus en tóku nú
pabba í fóstur 5 ára gamlan. Hann naut þó elskulegrar
fóstru sinnar stutt, hún dó ári síðar, en pabbi var svo
heppinn að amma Kristín réðst þá sem ráðskona til
Jóns með yngsta bamið, Friðgeir, sem hún hafði
haldið þegar ógæfan dundi yfir. Stuttu síðar barði
sorgin enn að dyrum í lífi hennar þegar hún missti
hann úr kíghósta.
Ættarkirkja
í tilefni af 100 ára ártíð pabba héldum við afkomendur
hans ættarmót vestur í Dýrafirði í sumar. Þeir sem
vettlingi gátu valdið flykktust vestur. Einn af þeim
var Höskuldur sonur minn og fjölskylda hans en
þau búa í London. Ætlunin var að skíra yngri
son hans á afmælisdegi pabba. Miklar vangaveltur
voru um hvort skíra ætti bamið í Hraunskirkju eða
Þingeyrarkirkju þar sem sterk tengsl voru við báðar
kirkjurnar. Foreldrar ömmu Kristínar, Aðalsteinn
Pálsson, bóndi í Hrauni, og Jónína Rósamunda
Kristjánsdóttir, kona hans, byggðu kirkjuna í Hrauni
fyrir eigin reikning árið 1885 og gáfu sveitungum
sínum hana með sér.
í Hrauni hafa staðið kirkjur frá því á 12. öld. Þar
voru kaþólskar kirkjur helgaðar Þorláki biskupi og á
Helgafelli, fjalli yfir kirkjunni, er hlaðið altari kennt
við Guðmund góða. Uppsprettan Gvendarbrunnur
er skammt frá kirkjunni og þótti sjálfsagt að taka
þar vatn til skírna. Sóknin náði frá Svalvogum að
Meðaldal. Kirkjan var bændakirkja framan af en
varð ríkiskirkja 1894. í kirkjunni voru munir úr
eldri kirkjum svo sem skriftastóll og brúðarbekkur,
hvort tveggja útskorið, nú á Byggðasafni Vestfjarða.
Altaristöflurnar tvær eru enn í kirkjunni, hvor upp
af annarri. A þá neðri er skráð ártalið 1751 og
nafn Eggerts Jónssonar er þá bjó í Hrauni. Geta
má sér þess til að þetta sé vegna þess að hann hafi
gefið altaristöfluna en um það er þó ekkert hægt að
fullyrða. Predikunarstóllinn er talinn frá 17. öld eða
300 ára gamall og forkunnarfagur, talinn verk séra
Hjalta Þorsteinssonar í Vatnsfirði (1692-1742).
Musteri gleði - musteri huggunar
Langafi Aðalsteinn var ekki með stórt bú. Ekki er
ósennilegt að faðir hans Páll Jónsson, bóndi í Hrauni,
sem kom frá Svalvogum, sonur Jóns Jónssonar
Vestmanns og Ástríðar Pálsdóttir sem þar bjuggu,
hafi aflað þeirra fjármuna sem kirkjan var byggð
fyrir. Hann nytjaði 2/3 hluta Hrauns, þótt hann ætti
aðeins 1/3, og var auk þess með talsverða útgerð.
Gerði út frá Skeri sem er klettarani sem gengur í sjó
fram utan við mynni Keldudals. Árið 1845 greiddi
Páll 67 fiska í sveitarsjóð og var það hæsta útsvar
í hreppnum. Hraunskirkja er af elstu formgerð
tumlausra íslenskra tim'ourkirkna og þakspónn er
Jón Guðmundsson bóndi á
Véstcinsholti í Haukadal.
Hér 23 ára. Það var
dóttursonarsonur hans
Bjarki Jón Höskuldsson
sem fékk nafn hans á
slóðum forfeðranna í
Iitlu kirkjunni í Hrauni í
Keldudal í sumar.
Höskuldur Hauksson,
hér 21 árs, dóttursonur
Jóns á Vésteinsholti, en
hann jiykir bera sterkan
svip afa síns. Hann kaus
að skíra son sinn Bjarka
Jón eftir langafa sínum,
í Hraunskirkju, örfáa
metra frá þeim stað þar
sem afi hans Jón sleit
barnsskónum.
http://www.vortex.is/aett
17
aett@vortex.is