Foreldrablaðið - 01.01.1962, Side 5
GUNNAR M. MAGNÚSS.
Hundrað ára áfangi
i.
Árið 1862 er tímamótaár í fræðslu-
og skólasögu Reykjavíkur. Þá var skóli
fyrir börn fyrst stofnaður, samkvæmt
lögum, og hefur starfað óslitið síðan.
Þessa áfanga í menningarmálum var
á margvíslegan hátt minnzt með há-
tíðahöldum s. 1. vor og sumar. Efnt var
til sýninga á vetrarvinnu nemenda í
öllum barnaskólum borgarinnar. dag-
ana 19. og 20. maí. Hinn 31.maí var
sameiginleg skólaslitahátíð haldin á
íþróttaleikvanginum, Laugardalsvelli,
fyrir alla skóla barna- og gagnfræða-
stigsins, 15 alls. Haldin var skólasýn-
ing, sem opnuð var 8. júní í Miðbæj-
arskólanum. Sú sýning var í þremur
deildum: söguleg sýning, kennslutækja-
sýning og bókasýning frá Ríkisútgáfu
námsbóka. Var sýningin opin fram að
Jónsmessu. Sóttu hana um 15600
manns. Loks var svo haldin skólahátið
í Þjóðleikhúsinu hinn 14. október s. 1.
til þess að minnast þessara tímamóta.
II.
Þegar litið er til baka, til ársins 1862,
virðist það vera allfjarri. Það er þriggja
til fjögurra kynslóða æviskeið. En þó
er það ekki fjær en svo, að segja má,
að það sé á næsta leiti í sögu þjóðar-
innar.
Allir tímar hafa verið erfiðir tímar
fyrir mannkindina. En allir tímar hafa
einnig verið framfaratímar, þrátt fyr-
ir allt. Við, sem nú stöndum á sjónar-
hóli upp úr miðri 20. öld, hugsum
gjarnan til þess liðna með nokkrum
tómleika og jafnvel vorkunnsemi.
Hversu snautt var ekki lífið í þessum
bæ, á þessu landi fyrir hundrað árum,
án vélatækni, án rafljósa, bifreiða, vit-
varps, síma, almennra skóla og hvers
konar listisemda, sem við eigum kost á
að njóta. Við höfum hreppt mörg hnoss
til anda og handar, en við getum rennt
grun í, að kynslóðin 2062 hugsi svipað
til okkar, sem nú lifum, eins og við
gerum til kynslóðarinnar 1862. Eftir
hundrað ár verður komin ný heims-
mynd, ef jarðarkúlan hangir þá sam-
an svo lengi.
En skeiðið kringum 1862 var svo
sannarlega mikið framfaratimabil. I
Reykjavík voru árið 1862 1440 íbúar,
hafði fjölgað um 550 síðustu 20 árin.
Og þjóðinni hafði á sama tímabili fjölg-
FORELDRABLAÐIÐ 3