Foreldrablaðið - 01.01.1962, Síða 9
Myndlist og föndur
Viðtal við Þóri Sigurðsson myndlistarkennara:
— Hve gömul eru börnin, þegar þau
hefja nám i myndlist i barnaskólan-
um?
„Myndlist eða teikning, eins og
námsgreinin er oftast nefnd, hefst fyrsí
í 10 ára deildum. Þ. e. a. s. þá er henni
fyrst gefinn ákveðinn tími á stunda-
skrá barnsins, tvær kennslustundir
vikulega.“
— Finnst þér þessi aldurstakmörk
hœfileg, éÖa er œskilegt dS gera á þeim
einhverfa breytingu?
„Það mun einróma álit allra mynd-
hstarkennara, að kennslu í þessari grein
ætti að hefja strax í 7 ára deildum, og
liggja til þess margar orsakir.11
— Hvernig er náminu hagaÖ í aSal-
atriSum fyrsta árið?
„Barninu er kennt að fara með lit-
krit, vatnsliti og túss. Kennd er einföld
litablöndun. Verkefnavalið er fjöl-
breytilegt og sem dæmi má nefna:
Vmsar hugsmiðar eða hugm^mdir, ein-
föld mynzturgerð, atburðir úr sögum
°g ævintýrum, lýsing einstakra atburða
ú d. skipstrand, húsbruni, íþróttamót,
gamlaárskvöld, skrúðgöngur o. m. fl.
Myndir eru gerðar úr ýmsum efn-
Ulh, t. d. mislitum pappír, notað lita-
duft og lím í samhandi við fingramál-
11 rh og margs konar aðferðir eru not-
aðar við gerð myndanna.“
— Hvernig er framhaldi námsins
hagaÖ?
„Seint fyrsta veturinn færist námið
úr frjálsri bamateiknun yfir í mynd-
ræna teikningu og hún nær yfir mest-
an hluta kennslutíma tveggja næstu
vetra. Reynt er að hafa tjáningaformið
fjölbreytt. Gerðar eru klippmyndir,
pennateikningar og pensilteikningar,
teiknað með teiknikoli, dúkskurður,
kartöfluprent, blýantsteikningar og
málun með þekjulitum.“
— HvaÖ segir þú um sýningar á
barnatei kni ngum?
„Mér finnst, að sýningar séu yfir
leitt jákvæðar. Þær hvetja nemandann
til að gera sitt bezta og þar fæst góð-
ur samanburður á verkum barnanna.
Ég hugsa, að það gæti verið skemmti-
leg nýbreytni, ef íslenzkir skólar skipt-
ust á sýningum. Til dæmis gæti þetta
verið auðvelt hér í Reykjavík. Mynda
fjöldi á sýningum sem þessum þyrfti
ekki að vera mikill eða um 20—30
myndir.“
—- HafiÖ þiÖ fengiÖ verk erlendra
barna til sýninga hér?
„Já, það hefur komið fyrir og er þar
skemmst að minnast mynda japanskra
barna, en þær myndir hafa verið
sýndar í íslenzkum skólum undanfar-
in tvö ár.“
FORELDRABLAÐIÐ 7