Foreldrablaðið - 01.01.1962, Page 12

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Page 12
Magnús Magnússon Of lengi feyktu byljir veikum gróðri Útvarpserindi flutt 29. apríl 1962 Góðir hlustendur. Saga fræðslu í einhverri mynd er að sjálfsögðu löng hér á landi. Síðan sagn- ritun hófst á íslenzka tungu hafa leik- ir lesið hækur hér. Hinir hafa þó lengi verið fleiri, sem ekki kunnu þá íþrótt. Mörg ár líða frá upphafi sagnritunar til þess að í lög er leitt, að almenning- ur fái bóklega fræðslu. Árið 1880 voru sett lög um „uppfræðing“ barna í skrift og reikningi. Lestrarkunnátta var nauð- synleg til þess að hörn næðu fermingu. Prestum og meðhjálpurum var falið að hafa eftirlit með því, að þessi lög væru haldin. Sömu aðilum var gefið dómsvald um það, hvaða böm væru hæf til þess náms, sem lögin kváðu á um. Lög um fræðsluskyldu harna vom sett 1907. Skólahald er þó mun eldra en fræðslulögin, sem glöggt má sjá á því, að nú á þessu ári er 100 ára af- mæli skólahalds í Reykjavík. Með samþykkt fræðslulaganna kom til sögunnar ný stétt, sem spannaði yfir landið í heild og hefur síðan þótt bera nokkra ábyrgð á því, hvemig kennslu- og uppeldismál þjóðarinnar fæm úr hendi. Hún hefur ekki mér vitanlega skorazt undan að hera sinn hluta þeirrar ábyrgðar. Mikill áhugi hefur því vakað með kennarastéttinni um langa tíð á bætt- um kennsluháttum í landinu. Saga þess áhuga er löng og merk og verður ekki rakin hér. Þó má minna á þrotlausa baráttu stéttarinnar fyrir aukinni og bættri menntun kennaranna sjálfra. Hún hefur jafnan gert sér grein fyrir því, að sá sem miðla á menntun til annarra, þarf að ausa af nægtum. Vart sér fyrir enda þessarar baráttu enn, þótt mörgu hafi fengizt áorkað til bóta. Það verður að teljast þjóðinni til happs, að kennarar hafa verið vakandi og áhugasamir um þau mál, sem að bættri menntun og kennsluskipan lýtur. Það verður að gera ráð fyrir því, að minna hefði þokazt í áttina, ef kenn- arastéttin hefði ekki látið til sín heyra og beitt kröftum sínum til framgangs hinna mörgu góðu mála, sem hún hef- ur talið til heilla landi og þjóð. Hún hefur rætt málin á fundum, flutt þau síðan inn á þing samtaka sinna, gert um þau áætlanir og álykt- anir, og síðast en ekki sízt flutt skoð- anir sínar á málefnum þeim, sem um hefur verið að ræða hverju sinni, af 10 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.