Foreldrablaðið - 01.01.1962, Side 13

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Side 13
einurð og þrautseigju við þá valda- menn, sem hlut hafa átt að máli. Eitt af þeim málum, sem kennarar hafa lengi velt fyrir sér, er það, hvað gera skuli til þess að hjálpa þeim börnum, sem seinfærust eru í námi vegna með- fædds greindarskorts, uppeldisvand- kvæða, heilsuleysis eða annarra orsaka. Kennarar þekkja manna bezt árangur eða árangursleysi þessara nemenda og hafa fundið sárt til með þeim. Þeim hefur verið ljóst, að allur sá tími, sem fer í skólagöngu hjá þessum nemend- um, nýtist ekki að því marki, sem von- ir stæðu til, ef ráð fyndust til úrbóta. Þetta hefur verið kennurum því meira vandamál, þar sem þeim hefur verið ljóst, að fræðslulögin frá 1946 eru hrot- in á þessum varnarlausu einstakling- um, og þeir hafa óviljugir, en knúðir einhverju óljósu ytra valdi, hjálpað til þess, að þessum lagabrotum yrði við komið og fram haldið. f 1. kafla áðurnefndra fræðslulaga segir svo: „Barnaskólar skulu leitast við að haga störfum í sem fyllstu samræmi við þarfir og eðli nemenda sinna, hjálpa þeim að öðlast heilbrigð lífsviðhorf og hollar venjur, vera á verði um líkams- hreysti þeirra og veita þeim tilsögn í lögskipuðum námsgreinum, hverjum eftir sínum þroska.“ Hin uppeldisfræðilega og kennslu- fræðilega skólun, sem hver einasti kennari fær í námi og síðar í starfi, fær hann til þess að staldra við og íhuga, hvernig þessari lagagrein sé framfylgt í skólunum. Slík íhugun vek- ur spurningar t. d. eins og þessar: Skap- ast hollar lífsvenjur hjá nemendum, sem horfa upp á stöðug vandræði í námi, sem ógerningur er að leysa úr í 25—30 nemenda deild? Verður lifsvið- horf þessara einstaklinga jákvætt við það að sýna þeim svart á hvítu um miðjan vetur og að vori, hversu langt þeir standa að baki öðrum jafnöldrum sínum að andlegu atgervi, með því að láta þá ganga undir próf í námsefni, sem þeim hefur reynzt algerlega of- viða, og sáralitlir möguleikar voru til að hjálpa þeim til að tileinka sér? Eða er það í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda að senda þá með þau verkefni heim til úrlausnar, sem tíma og tæki hefur skort til í skólanum að hjálpa þeim að skilja og leysa? Er það í sem fyllstu samræmi við eðli sein- færra nemenda að setja þeim mikið fyrir til heimalestrar, svo yfirferð námsefnis verði svipuð og í samræmi við námsskrá hjá flestum nemendum skólans? öllum þessum spurningum hlýtur sá kennari að svara neitandi, sem þekk- ir til þessara nemenda. Hvað á þá að gera? spurðu menn og spyrja enn í dag. Hér á landi eru ekki allir búnir að átta sig til fulls á þvi, hvað gera skuli, þótt aðrar þjóðir og þá ekki hvað sízt Norðurlandaþjóðirn- ar hafi löngu tekið þessi mál föstum tökum og kem ég að því síðar. f 5. gr. II. kafla fræðslulaganna frá 1946 segir svo: „Undanþegnir frá að sækja almenna bamaskóla eru: c) börn, sem að dómi hlutaðeigandi kennara, skólastjóra og skólalæknis, skortir hæfi- leika til þess að stunda nám í almenn- um barnaskóla, d) böm, sem að dómi sömu aðila spilla góðri reglu í skólun- um og eru miður heppilegt fordæmi öðrum börnum, e) böm, sem að dómi skólalæknis hafa eigi heilsu eða önnur líkamleg skilyrði til að stunda venju- legt barnaskólanám.“ Þarna slær löggjafinn þann varnagla, FORELDRABLAÐIÐ 1 1

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.