Foreldrablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 24

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 24
á sínum stað, en hægt að hækka hana og lækka; líka er hún á hjörum, svo að hægt er að opna og loka henni. Ef vinna þarf á töflu á undan tíma, en láta það ekki koma strax fyrir augu nemendanna í upphafi tímans, er tafl- an lokuð, og svo opnuð, er kennaranum finnst þörf á, og þá þarf kennarinn ekki að vinna það um leið, heldur aðeins út- skýra. En þessar töflur munu sumum ykkar vera kunnugar. Enn eitt vakti mikla eftirtekt mína í öllum skólastofum, og það var: HliS- arherbergiS. Tekinn er eins konar fem- ingur af skólastofunni við stóra glugga- vegginn, útskot eða innskot. Stór gler- veggur skilur þetta herbergi frá skóla- stofu, svo að þetta er í raun og vem ein og sama kennslustofan. Þama inni er ferkantað borð, 4 stólar, veggtafla og á einum vegg eintómir skápar fyrir áhöld og bækur bekkjarins. Og til hvers er svo þetta herbergi notað? Ju — til að vinna með hjálparbömin, en kenn- arinn fylgist samt með bekknum, — eða duglegri bömin fá stundum að vinna þarna inni, allt eftir því, hvern- ig kennari hagar bekkjarstörfum. Við hurðir í göngum er oft dálítill blettur málaður öðmvísi en vegglitir á ganginum. Á þennan blett er svo mál- uð mynd af blómi, þ. e. a. s. í náttúru- fræðilegum tilgangi = rót, stöngull, blóm, fræva, frævill, fræ. Eða þá silki- fiðrildi: egg, lirfa, púpa o. fl. 1 þeim skólum, er ég kynntist og segi frá, hófst kennsla á morgnana kl. 8, nema í desember einni klukkustund síðar. Þeim er lokið um tvö-leytið. Að mestu er einsetið í skóla, þótt til sé tví- setning. Skólaskyld em börn frá 6 ára aldri. 6—8 ára börn sækja 3 tíma á dag í skóla. Hver kennslustund er 45 mínútur. Fyrstu frímínútur em aðeins 5 mín. Þá tekur því ekki, að bömin fari út, heldur er aðeins hreyft sig, staðið upp í stofu, sungið eða gerðar léttar leik- fimiæfingar; sum bamanna fá að skreppa á klósett. Síðan er aftur tekið til starfa og eftir þá stund kemur 15 —20 mín. frí. 1—2 kennarar annast vörzlu á leikvelli ásamt ákveðnum 12 ára bömum, sem valin em til aðstoðar- vörzlu. Undrandi varð ég, er ég sá þessi eldri börn fylgja þeim yngri eft- ir við raðir og inn í ganga, standa þar síðan við dyr skólastofu bekkjarins, sem þeim er falið að líta eftir, og þar tekur bekkjarkennari við bömunum. Segir þá þessi vörður, hvemig bömin höguðu sér, svo sem hver komu seint í raðir og annað þess háttar. Þetta er gert til að létta á kennara í frímínút- um, kennarar eiga þær líka fyrir sig. Þá vil ég víkja að hinu eiginlega skólastarfi, því sem fer fram inni í skólahúsinu. Skólaárið hefst 1. apríl—7. júlí. Fyrstu 2 mánuðina er eins konar leik- skólaform á kennslu yngstu nemend- anna, en að einhverju leyti fer það eftir því, hvað kennara finnst um getu bekkjar, hversu lengi það stendur. Fyrstu 3 dagana í apríl era námskeið og fyrirlestrar fyrir alla kennara, sem eiga að kenna byrjendunum. (400 kennarar sóttu námskeiðið, bara kenn- arar 6 ára barna, hinir vom allir í starfi.) Kennarar fylgja alla jafnan bekkn- um eftir öll skólaárin. Álitið er því, að þeim sé þörf á upprifjun á kennslu yngstu nemendanna eftir 6—7 ára hle á þeirri kennslu. Því er til þessara nám- skeiða stofnað. Engin vandkvæði virt- ust, er ég spurðist fyrir um, hvort kenn- arar notuðu sér þetta almennt. Ég held 22 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.