Foreldrablaðið - 01.01.1962, Síða 27

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Síða 27
hver og einn að finna sjálfur, hvað á bezt við sig. Einna algengasta áhald reikningskennslunnar var málmtafla með segulplötum. Hún var sýnd hér í fyrra. Og þegar ég er nú að minnast á áhöldin, fer ekki hjá því, að átthaga- fræðinni sé farið að skjóta upp í huga mér. Mér finnst næstum að segja, að átthagafræðin hafi meira og minna gripið inn í alla kennslu fyrstu skóla- árin, hvert svo sem fagið var á stunda- skrá. Af leikni og kunnáttu var henni beitt, sér í lagi í lestrartímum, og þá hvað mest af kennurunum við Lehrer- fortbildung. Oft og einatt var byrjað með átthagafræðitíma og haldið áfram í þeim næsta með framhaldi af fyrra verkefni, en þá sem stífasti lestur. Er ég eftir á hugsa um, hvað mér fannst frábrugðnast í átthagafræði þar og aftur á móti hérna hjá okkur, þá var það verkefnavalið og hvernig átt- hagafræðitímarnir byrjuðu hverju sinni. Verkefnin virtust að miklu leyti tekin úr hinu þekkta umhverfi barns- ins, svo sem borginni þeirra, sögu henn- ar og séreinkennum, engu síður en því, sem fjarlægara er umhverfi barnanna. Hvernig byrjuðu svo tímarnir? Kennarinn stóð steinþegjandi uppi við borð sitt, tíndi fram og lyfti upp hjálpargögnum, tækjum, bömin horfðu á full eftirvæntingar. Kennarinn virt- ist hugsi yfir þessU, sem á borðið var komið, enginn sagði neitt. Brátt hófust hendur á loft. Börnin voru farin að hugsa, þenkja út frá hjálpargögnum, án þess að nokkuð væri talað. Þá var tekið til óspilltra málanna af kennaranum og unnið að verkefninu, allir voru með. En er það ekki takmark okkar, sem við kennslu fáumst? Enn á ný langar mig til að segja og taka fram, hversu mikil kyrrð og ró- semi einkennist í allri kennslu, a. m. k. yngri barna. Það var sama í hvaða skóla ég kom. Engum virtist liggja á, hvorki gagnvart „pensumi“ eða prófi. Alltaf var nægur tími til að gefa sig að viðfangsefninu og kryfja það til mergjar. Gleggst kom þetta í ljós, að því er mér virtist, er farið var með bekkina út úr skólanum til athugana, t. d. í Hagenbecksdýragarðinn, sem eins og kunnugt er, hefur orðið fyrir- mynd í uppbyggingu dýragarða. Dval- ið var þar lieilan dag og unnið úr því, sem séð var og lært næsta dag — eða farið var um höfnina, sem er mér og mínum líkum heilt völundarhús. Svo er höfnin og það, sem hana áhrærir, álitin mikil lífæð í afkomu þessarar borgar, að séð er fyrir námskeiðum um höfnina fyrir kennara i sjálfu „Lehrer- fortbildung“. (Hún er á námsskrá 10 ára bekkjar). Þá má ekki gleyma vor- inu, þegar farið er út. Blóm og tré eru athuguð. Aðallega er farið, þegar ávaxta- trén blómstra. Þá er og dvalið heilan dag fyrir handan Saxelfi. Þar af leið- ir, að næstu daga er talað um aldin- rækt, landbúnað og fleira þess háttar. Með þessu móti er reynt að koma stór- borgarbarninu í tengsl við „móður náttúru“. Annað en það, sem nú er talið, man ég frá skólaandrúmsloftinu, og það er- hvernig börnin og kennari reyna að gera sína skólastofu og ganga örlítið persónulega. Á bekkjarforeldrakvöldi — ekki for- eldradegi — hreyfir kennarinn því meðal foreldranna, að gaman mundi vera að blómum í kennslustofunni. Reyndar er hann lika búinn að tala um slíkt í bekk. Bömunum er þá leyft að lána eitt eða fleiri blóm til að standa í FORELDRABLAÐIÐ 25

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.