Foreldrablaðið - 01.01.1968, Qupperneq 9

Foreldrablaðið - 01.01.1968, Qupperneq 9
ist í börnum ykkar. Þetta getið þið gert bæði með mataræði og eftirliti með tann- burstuninni. Þið foreldrar, sem eruð svo hamingju- samir að hafa eignazt börn, óskið að sjálf- sögðu einskis frekar, en að þau verði hamingjusöm í lífinu. Tennurnar hafa, eins og hér á undan hefur verið tekið fram, meira hlutverki að gegna en fólk yfirleitt áttar sig á. Eitt mikilvægt skil- yrði fyrir góðri heilsu, er góð melting. Meltingin verður aldrei góð, nema tenn- urnar séu góðar. Enn er það eitt, sem ég vil benda á: Getum við ekki verið sam- mála um, að heilar, velhirtar og falleg- ar tennur séu til mjög mikillar prýði? Vissulega getur þetta gefið barni yðar sjálfstraust, sem kannski kann að hafa úrslitaþýðingu fyrir, hvernig því vegnar í lífinu. Á þessu skólaári hafa tannviðgerðir á 7—8 ára börnum verið teknar upp á ný í skólum Reykjavíkurborgar. En að sjálfsögðu er yður frjálst að senda barn- ið til einkatannlæknis yðar, ef þér frek- ar óskið þess. Rétt er þá að taka fram, að ef börn, sem geta fengið tanneftirlit og aðgerð hjá skólatannlækni, kjósa heldur að fara til annars tannlæknis, þá tekur borgarsjóður ekki þátt í endur- greiðslu tannviðgerðakostnaðar þeirra vegna. Óski einhver að fá frekari upplýsing- ar um tennur barns síns, eða um skóla- tannlækningar, geri hann svo vel að tala við skólatannlækninn. Reykjavík, des. 1967. Með kveðju. Yfirskólatannlœknirinn. UNGT SKÁLD Kennarinn hafði sagt börnunum ýmis- legt úr Njálu. Jóna litla var mjög hneigð fyrir alls konar sögufróðleik og hafði því gaman af þessum sögum. Það var eins og Hallgerður fyllti mest rúm í huga hennar, því að hún spurði kenn- arann oft, hvort hann vildi nú segja söguna af Hallgerði langbrók. Nokkru seinna færði hún kennaran- um þennan kveðskap: Hrútur situr inni og Höskuldur hjá. Höskuldur spyr: „Hvernig lízt þér á meyjuna þá?“ Hrútur þegir lengi, en hörð og loðin brá herpist í hnykla í hugsunum djúpum. Loks segir Hrútur: „Lofa ég meyju en langar að sgeja nokkuð til þín. Víst er hún falleg og fín, en hvaðan koma þjófsaugu í ættina til mín?“ Frúin (við blindan betlara): Vesalings maður. Eigið þér enga að nákomna? Betlarinn: Jú, ég á reyndar bróður, en hann er Hka blindur, og við sjáumst mjög sjaldan. Vinnukonan: Læknirinn er kominn og óskar að tala við frúna. Frúin: Læknirinn. Það var verri sag- an. Ég get ekki talað við hann núna. Farðu og afsakaðu mig og segðu, að ég geti ekki talað við hann, af því að ég sé veik. FORELDRABLAÐIÐ 7

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.