Unga Ísland - 01.07.1931, Qupperneq 1
lleykjavík, Júlí —Ágúst 1931.
26. árg.
ÁRÓRA.
Goðsagnir Forn-Grikkja eru fullar af
fegurð. Pað var trú þeirra, að Áróra,
hin rósfingraða morgungyðja, opnaði
hlið dagsins í dögun. Hún sveif um lcft-
ið í regnbogalitri guðvefjarskikkju og
sópaði burtu sorta nætur með ljósum
degi. Fuglar heilsuðu henni með lofsöng-
um morgunsins, þegar hún dreypti
svalandi dögg á blómin í svefnrofunum.
Á eftir henni fór hinn bjarti og fagri
bróðir hennar, sólguðinn Apolló. Hann
ók upp á himininn gullvagni með gæð-
ingum fyrir. Fagrar meyjar voru í fylgd
hans. Það voru stundir dagsins, sem
fluttu mönnum yndi og athafnir. En yf-
ir þessu blikaði morgunstjarnan eins og
fingur, sem vísaði á veginn vestur um
heim allan.