Unga Ísland - 01.12.1948, Blaðsíða 28
26
Hann hefur ákveðið að á morgun, þegar hann á 50 ára af-
mæli, skuli hann dagsetja hið mikla handrit, sem liggur
fyrir framan hann, fullbúið, „Mit Livs Eventyr“ — Ævin-
týri lífs míns. — Hann er ekki fyllilega ánægður með síð-
ustu síðurnar, sem hann hefur skrifað. Hvað er það, sem
vantar á? Bókina hefur hann fyrst og fremst hugsað sér
sem varnarrit. Fyrir tveimur árum byrjaði hann á þessu
verki og hann hefur vonað, að á þessum tíma myndu blöð-
in, að lokum, viðurkenna hann. Þar sem helztu bókmennta-
gagnrýnendur heima fyrir þegja hann í hel og láta þess
ógetið, hve mikla sigra hann vinnur erlendis verður hann
sjálfur að hefjast handa. Mun það takast fyrir honum?
Smíðar hann ekki aðeins ný vopn 1 hendur andstæðinga
sinna? Gefur hann þeim ekki enn einu sinni tækifæri til
að hella sér yfir hann fyrir hégómaskap hans? Hégóma-
skap! Það er eitt, sem fjendur hans vita ekki. Þeir vita ekki,
hve mikla lítilsvirðingu hann hefur á þeim! En þeir vita
annað. Þeir vita hvemig hægt er að hitta skáld svo að það
svíði. Að það er hægt með því að grafa undan afkomu
þess, eyðileggja fjárhag þess, hvernig hægt er að auðmýkja
skáld með því að neyða það til þess svo árum skiptir að
vera öðrum háð f járhagslgga. Þetta vita allir illa innrætt-
ir gagnrýnendur.
Allt í einu er barið að dyrum. Prentað mál, tímarit, —
„Dansk Maanedsskrift“. Hver skyldi nú hafa skrifað um
heildarútgáfu á verkum hans, sem nýlega kom út í alþýðu-
útgáfu? Efnisyfirlitið ... Dr. Grímur Thomsen!
Andersen verður hvort tveggja í senn, rólegur — og upp
með sér. Meðan hann flettir blöðunum til að finna grein-
ina, er hugur hans eins og eldingarsveipaður sjóndeildar-
hringur. Velmetinn listfræðingur og fagurfræðingur, höf-
undur ritsins um Byron lávarð, hinn ungi velmetni diplo-
mat, sem ferðazt hafði svo víða. Þetta gerir hann upp með
sér. En það, sem gerir hann rólegan er eftirfarandi: