Unga Ísland - 01.12.1948, Page 38
36
kerinu fram og aftur um leið og hann gekk um herbergið,
án þess að gefa okkur nokkurn gaum. Herbergið fylltist
þungum, sætum reykelsisilm. Jósef hvarf brátt út aftur
og við heyrðum hann ganga á sama hátt inn í næsta her-
bergi, heyrðum bænalestur hans og málmhljóðið í reyk-
elsiskerinu um leið og hann sveiflaði því.
Jólin voru byrjuð.
Við fórum niður í eldhús um sjö-leytið til að fá okkur
matarbita — annars átti aðalmáltíðin að vera um nótt-
ina eftir messuna. Nú var aðeins borðuð súpa og brauð,
rabbað saman og lagzt síðan til hvíldar til að vera vel fyr-
irkallaður til messunnar.
Kl. IIV2 var haldið til kirkjunnar, sem stóð í miðju þorp-
inu. Það var fögur og kyrrlát nótt, sem friður og helgi
hvíldi yfir. Á himninum lýstu ótal stjörnur, snjórinn, sem
hvíldi á jörðinni, varpaði frá sér daufum bjarma, kirkju-
klukkumar sendu tæra hljóma út í næturkyrrðina og köll-
uðu á fólkið. Og úr öllum áttum, niður fjallshlíðarnar og
eftir dalnum hreyfðust raðir af ljóspunktum í áttina til
kirkjunnar, blys og ljósker í höndum kirkjufólksins, sem
sást ekki sjálft í náttmyrkrinu, aðeins ljósin, sem lýstu
því á leið þess.
Og í kirkjunni voru kertaljós, reykelsisilmur og kuldi
frá bogadregnum hvelfingum. Þar voru 4 prestar og einn
príor. Guðsþjónustan hófst, og fór hún fram með þeim við-
hafnarsiðum, sem tíðkast í kaþólskum kirkjum. Príórinn
hélt langa prédikun um frelsarann, sem fæðzt hafði þessa
nótt. Það var sungið og kropið og beðið. Að lokum var
gengið til altaris, en á meðan söng kórinn „Heims um ból“
og aðra jólasálma, en leikið var undir á orgel og 4 fiðlur.
Eftir nærri tvo klukkutíma var messan úti.
Og fólkið yfirgaf kirkjuna og kveikti aftur á ljóskerum
sínum og blysum áður en lagt var af stað heimleiðis.
Lengi sáust ljósin hreyfast eftir dalnum og upp fjallshlíð-