Árbók VFÍ - 01.01.1991, Qupperneq 13
Skýrsla stjórnar 11
2 Aðalstjórn
í aðalstjórn áttu eftirfarandi sæti auk framkvæmdastjórnarmanna:
Arnór Þórhallsson form. RVFÍ Geir Þ. Zoega form. NVFÍ
Hafliði Loftsson forni. VVFÍ frá nóv. '89 Jónas Bjarnason form. LVFÍ
Kristinn Eiríksson form. BVFÍ Pétur Stefánsson form. FRV
Steinar Jónsson form. SV Trausti Eiríkssonform. VVFÍ til nóv. '89
Þór Tómasson form. EVFI
Skv. lögum félagsins á að halda fund í aðalstjórn annan hvern mánuð eða oftar ef
ástæða þykir til. Haldnir voru fjórir hókaðir aðalstjórnarfundir, en auk þess var haldinn
óformlegur fundur seni allir aðalstjórnarmenn og formenn fastanefnda og áhugasamir
félagsmenn voru boðaðir á. Fundur þessi var haldinn í upphafi starfsárs og var rætt um
stefnu og markmið félagsins. Kom þar margt athyglivert fram sem hafði síðan áhrif á störf
félagsins á síðasta starfsári. Nýbreytni var, að á einn formlegan aðalstjórnarfund voru
boðaðir formenn fastancfnda, cn það var gert m.a. til að samræma störf fastanefnda og
deilda félagsins. Á aðalstjórnarfundum var auk stefnu og markmiða rætt um fjárntál
félagsins, en þau hafa tekið stakkaskiptum á síðasta ári eins og getið verður um síðar,
lagabreytingar, aðild að deildum félagsins (skv. lögum félagsins er skilyrði fyrir því að
geta verið félagi í fagdeild að viðkomandi sé félagi í VFÍ), samstarf við Tæknifræðingafé-
lag íslands, kynningarbækling um VFÍ, reglur um skipun heiðursfélaga ofl.
3 Skrifstofa VFÍ
Eins og franr kemur í skýrslu stjórnar síðasta starfsárs, tók Arnbjörg Edda Guðbjörns-
dóttir við stöðu framkvæmdastjóra frá 1. janúar 1989. Arnbjörg Edda réð Guðríði Ó.
Magnúsdóttur til starfa 16. febrúar 1989 og hafa þær tvær starfað á skrifstofu félagsins í
fullu starfi allt starfsárið. Á síðasta aðalfundi var kjörinn nýr endurskoðandi, Kristinn
Gestsson lögg. end. Unnið hefur verið kappsamlega að því að koma reglu á rekstur
skrifstofunnar og félagsins. Bókhaldslyklar voru endurskilgreindir og bókhald allt
endurskipulagt. Bókhald hefur verið fært jafnóðum þannig að unnt er að fá stöðu
félagssjóðs og hússjóðs eftir hver mánaðamót. Þetta hefur gert allt eftirlit með stöðu
fjármála mun auðveldara. Unnt hefur verið að gera upp allar útistandandi skuldir og
leiðrétta misfærslur. Stórátak var gert í innheimtumálum útistandandi árgjalda, en um
áramótin 1988/9 námu útistandandi árgjöld um 5,6 Mkr. Um síðustu áramót námu
útistandandi árgjöld 2,9 Mkr. Þessmágeta, aðfélagsmenn, sem ávallt hafastaðiðískilurn
með félagsgjöld sín, hafa oft látið í ljós óánægju með að ekki skuli hafa verið staðið harðar
að innheimtuaðgerðum hjá þeim sem láðst hefur að greiða gjöld sín á réttum tíma.
Félagið hefur gert hvað það hefur getað til að fullnægja réttlætinu og hefur hreinsað til í
röðum lang-skuldugra eins og fram kemur síðar. Skrifstofan hefur sinnt öllum almennum
skrifstofustörfum fyrir deildir og nefndir eins og óskað hefur verið eftir og unnt hefur
verið að sinna, en óhjákvæmilega hafði vinna við endurskipulagningu fjármála félagsins
og félagaskrá veruleg áhrif á störf skrifstofunnar fram eftir starfsárinu.
4 Félagsmenn
Á starfsárinu gengu 22 í t'élagið sem fullgildir félagar og 43 sem ungfélagar. Umsóknum 5
manna var hafnað. Ursagnir úr félaginu voru 89. Þeir sem sagt hafa sig úr félaginu hafa í
mörgum tilfellum verið skuldugir við félagið undanfarin ár. Látnirfélagar á árinu eru 5. Á
aðalfundi 1990 eru skráðir félagsmenn 1056.
Á starfsárinu yfirfór Menntamálanefnd og framkvæmdastjórn gögn 69 manna og