Neytendablaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 16
Gæðakönnun
Þau smökkuðu harðfiskinn: Laufey Steingrímsdóttir nœringarfræðingur
ogforstöðumaður Manneldisráðs, Gylfi Hvannberg kokkur á Veitinga-
húsinu við Tjörnina, Ulfar Eysteinsson kokkur á Þremur Frökkum,
Brynhildur Briem matvæla- og nœringarfræðingur og kennari við Kenn-
araháskóla íslands og Olafur Sigurðsson matvœlafrœðingur.
Harðfiskur hefur íylgt lands-
mönnum allt frá upphafi
byggðar og lengi framan af
skipaði hann stóran sess í fæð-
unni, einkum til sveita þar
sem ekki var mikið framboð af
fersku sjávarmeti. I Islenskum
sjávarháttum eftir Lúðvík
Kristjánsson sagnfræðing er
fróðlegur kafli um skreið og
harðfisk. Þar segir að víða sé
minnst á skreið í Islendinga-
sögum og má þar nefna
skreiðarhlaðann á Fróðá í Eyr-
byggju. I Islandslýsingu Odds
biskups Einarssonar ffá lok-
um 16. aldar segir að næst á
eftir mjólkurvörum og kjöti sé
venjulegur fiskur stór hluti af
fæðu íslendinga.
„Er hann þá fyrst hertur
nægilega í vindi og sól, þá
barinn með lurkum eða fremur
steinsleggjum, þar til hann er
orðinn vel meyr og eftir það
má svo eftir þörfum bera
hann í ákveðnum skömmtum
fyrir hvern einstakan er að
snæðingi situr og eta með
smjöri sem brauðsígildi. Þessi
fæða er talin hin heilnæmasta
og eigi aðeins til að seðja
hungrið heldur og ágætlega til
þess fallin að efla þrótt og
fjör.“
Undir þetta tekur Laufey
Steingrímsdóttir næringar-
fræðingur og forstöðumaður
Manneldisráðs Islands.
Reyndar er hún ekki hrifín af
að nota viðbit við harðfiskinn,
en hollur er hann og er hún
ekki í nokkrum vafa um að
hann efli þrótt og fjör.
Hún er stödd í húsakynn-
um Neytendasamtakanna
ásamt þeim Gylfa Hvannberg
kokki á Veitingahúsinu við
Tjörnina, Úlfari Eysteinssyni
kokki á Þremur Frökkum,
Ólafí Sigurðssyni matvæla-
fræðingi og Brynhildi Briem
matvæla- og næringarfræðingi
og kennara við Kennarahá-
skóla Islands. Þau taka öll
undir með Laufeyju um að
Harðfiskhjallur sigurvegarans, Fiskverkunar EG á Flateyri.
Framleiðandi SöLustaður 1 2 3
Gullfiskur, Flatevri KoLaport 3 4 4
Búi, Reykjavík KoLaport 1 1 1
Óskar Friðbjarnarson, Hnifsdal KoLaport 4 5 3
Harðfiskverkun Finnboga, ísafirði KoLaport 4 4 3
EG, Fiateyri KoLaport 3 5 3
Tangi, Grundarfirði KoLaport 2 3 3
Búi, Reykjavík SvaLbarði 1 3 2
Harðfiskverkun Antons Proppé, Þingeyri Fjarðakaup 3 3 3
Gullfiskur, FLateyri Að vestan 3 4 4
EG, FLateyri Að vestan 4 5 3
Óskar Friðbjarnarson, Hnífsdal Að vestan 4 4 4
Harðfiskverkun Antons Proppé, Þingeyri Að vestan 3 3 4
Darri, Grenivík Darri 1 3 2
GuLlfiskur, FLateyri Nýkaup 3 1 2
Darri, Grenivík Nettó 3 3 2
SérvaLinn fiskur frá Hafró ísafirði 4 4 4
Vestfirska harðfisksaLan, Reykjavík Hagk./Fjarðark. 2 4 3
MeðaltaL
Framleiðandi Sölustaður 1 2 3
GuLLfiskur, FLateyri KoLaport 2 3 3
Búi, Reykjavik KoLaport 3 4 2
Harðfiskverkun Finnboga, ísafirði KoLaport 4 4 3
EG, FLateyri Kolaport 2 3
Tangi, Grundarfirði KoLaport 3 3 3
Búi, Reykjavík SvaLbarði 4 3 3
Harðfiskverkun Antons Proppé, Þingeyri Fjarðarkaup 4 4 4
Vestfirska harðfisksaLan, Reykjavík Hagk./Fjarðark. 3 4 2
Vestfiskur, ísafirði Að vestan 3 2 2
GuLLfiskur, FLateyri Að vestan 1 4 4
EG, Flateyri Að vestan 4 2 4
Harðfiskverkun Finnboga, ísafirði Að vestan 4 3 2
Harðfiskverkun Antons Proppé, Þingeyri Að vestan 2 3 2
EG, Flateyri Nóatún 2 3 1
Vestfiskur, ísafirði Samkaup 2 1 1
SérvaLinn fiskur frá Hafró ísafjörður 2 4 4
Meðaltal
harðfiskurinn sé hollustuvara
sem því miður sé bara orðin
alltof dýr til þess að almenn-
ingur geti haft hana á borðum
hjá sér nema til hátíðabrigða.
Harðfiskur
eflir þrótt og fjör
16
NEYTENDABLAÐIÐ - október 2001