Neytendablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 8
Margur er góður
gemsinn
Samsung SCH-X600
Heildareinkunn 3,84
Verð 23.900,-
Nokia 3100
Heildareinkunn 3,90
Verð 18.900,-
Markaðskönnun á ns.is
1 markaðskönnuninni á vefNeytendasam-
takanna, www.ns.is, eru 62 gerðir GSM-
síma sem fengust hér á verðbilinu frá kr.
7.495 (Nokia 3310) til kr. 72.900 (Sony
Ericsson P 800). Marga síma er hægt að
kaupa á sérstökum kjörum ef einnig er
keypt ársáskrift hjá símafyrirtæki. I könn-
uninni er greint frá 18 atriðum varðandi
hverja símagerð. Gildandi lykilorð fyrir
félagsmenn til að opna læstar vefsíður
með slíkum könnunum er ævinlega á bls.
2 í nýjasta hefti Neytendablaðsins.
Gæðakönnunin
í töflunni eru helstu niðurstöður varð-
andi 51 GSM-símagerð sem fékkst hér
og er í gæðakannanabanka lnternational
Consumer Research and Testing (ICRT).
Það er sjaldgæft að rekast á verulega lé-
legan GSM-síma. Aðeins níu af þessum
51 voru undir meðaleinkunninni (3,5)
hjá ICRT. Af 20 efstu voru 7 frá Nokia
og 7 frá Samsung. Sá ódýrasti þeirra var
Samsung SGH-N500 á 11.900 kr. Þrír vel
viðunandi símar sem eru í gæðakönnun
ICRT kostuðu innan við 1.0.000 kr.
Fjölbreytnin eykst
Áætlað hefur verið að árið 2002 hafi þrír
fjórðu hlutar Evrópubúa (289,7 milljónir
manna) átt GSM-síma (gemsa) og hlut-
fallið hefur hækkað síðan. Fleiri gemsar
eru nú í notkun hérlendis en fastiínusímar
og GSM-dreifikerfið nær líklega til um
98% íbúanna. Sennilegt er að a.m.k
90% íslendinga á aldrinum 16-75 eigi
eða noti gemsa.
Mikið úrval er á markaðnum af GSM-
símum og fjölhæfni þeirra eykst stöðugt.
Ódýrir gemsar eru líka með ýmsum gagn-
legum möguleikum, símaskrá, klukku,
reiknivél o.fl. En vilji notandinn að í sím-
anum sé myndavél, innbyggt útvarp, flott-
ir tölvuleikir eða MP3 spilari getur slíkt
kostað skildinginn. Dýrari gerðirnar eru
oft litlar og léttar en samt með skörpum
og björtum skjá.
Eitt af því sem ræður valinu hjá mörgum
GSM-notendum er hve lengi rafhlaðan
endist. í töflunni með gæðaeinkunninni
segir dálkurinn „Rafhlaða" nokkuð til
um það. Innifaldir í þeirri einkunn eru
einnig þættir eins og hve langan tíma
tekur að endurhlaða rafhlöðuna. Ef sím-
inn er aðeins notaður í fáein stutt símtöl
á dag endist hleðslan hæglega í 40 klst.
og í sumum gerðum lengur en í 80 klst.
Margt hefur áhrif á endingu rafhleðslu,
s.s. stærð og gæði skjás, myndatökur
og -sendingar og notkun tölvuleikja svo
dæmi séu nefnd. Gæði rafhlaðna fara
batnandi.
Búnaður
Flestir nýir GSM-símar eru með MMS
(Multimedia Messaging Service) og marg-
ir með myndavél. Með MMS er t.d. hægt
að senda myndir og taka á móti þeim, og
oft einnig senda lengri skilaboð en með
SMS (sú tækni er bundin við 160 tákn í
senn). Eftir því sem fleiri möguleikar fel-
ast í símanum er mikilvægara að hann
sé vel hannaður fyrir flókna notkun. Sím-
arnir fengu hærri einkunnir fyrir búnað
ef þeir voru með dagbók þar sem unnt
er að skrá eitthvað við hvern dag og láta
símann minna sig á.
Símar sem eru með þráðlausan fjarskipta-
búnað (Bluetooth og innrauða geisla)
geta átt samskipti við tölvur sem eru í
innan við 10 metra fjarlægð, hafi þær
líka búnað fyrir slíkt samband.
Margir Nokia-símar og sumir frá Motor-
ola eru með innbyggðu FM-útvarpi sem
er hægt að hlusta á með heyrnartólum.
Þriðju-kynslóðarfarsímar(G3) eru komn-
irtil sögu ásamt sérstöku dreifikerfi í ýms-
um stórborgum. Á núverandi tæknistigi
hafa margs konar truflanir komið fram,
myndsímar hafa verið lélegir og samband
sömuleiðis, og streymi myndskeiða og
hljómgæði hafa mörgum neytendafröm-
uðum hvorki þótt sannfærandi né pening-
anna virði enn sem komið er. G3-síma er
hægt að nota fyrir tal og SMS-sendingar
í venjulegum GSM-dreifikerfum.
Siðfræði og umverfismál
Áætlað hefur verið að hver GSM-not-
andi í Bretlandi fái sér að jafnaði nýjan
síma á 18 mánaða fresti. Það þýðir að 90
8 NEYTENDABLAÐIÐ 2.T6L. 2004