Neytendablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 14
Á markaðnum var feikna mikið úrval
hundafó>ðurs eða um 75 gerðir og um
140 gerðir ef allar mismunandi þyngdar-
pakkningar voru taldar með, en algengt
er að fóður fáist í misstórum pakkning-
um. Mikill munur reyndist á verði.
Ódýrt er jafngott
Heilbrigður, fullorðinn hundur getur lifað
ágætis lífi og fengið öll nauðsynleg nær-
ingarefni með því að innbyrða aðeins
ódýrar gerðir af hundafóðri. Aðalatriðið
er að fylgjast vel með því hvernig hund-
inum heilsast af fóðrinu. Óþarfi er að
halda hundum á lúxusfæði nema þeir
séu veikir. Úrvalsfóðrið getur líka hæg-
lega valdið offitu.
Þetta kom í Ijós í gæðakönnun sem gerð
var á vegum danska neytendablaðsins,
Tænk+Test, og dönsku dýraverndarsam-
takanna, Dyrenes Beskyttelse. Sérfræð-
ingar við danska landbúnaðarháskólann
tóku undir þetta mat. Niðurstöðurnar
hafa verið birtar á vegum International
Consumer Research and Testing (ICRT).
Enn fremur sýnir ný rannsókn á vegum
sérfræðinga dýralæknaháskóla og land-
búnaðarháskóla í Noregi að ekki er
tölfræðilega marktækur munur á meltan-
leika mikilvægustu næringarefna í dýru
og ódýru hundafóðri.
Skýringar á verðmun
Algengasta röksemdin fyrir því að hund-
ar séu aldir á dýru fóðri er að það sé úr
betri hráefnum en hið ódýrara og nýtist
dýrinu betur. Nýjar kannanir sýna að
þetta stenst ekki, gæði og verð haldast
ekki f hendur. Alla jafna kemur líka til-
tölulega meiri saur úr hundum sem éta
dýrari fóðurgerðirnar því ódýru gerðirnar
meltast að jafnaði betur.
Þar að auki hefur komið í Ijós að oft má
aðeins skýra um 10% af verðmuninum
á ódýru og dýru hundafóðri með notk-
un betri hráefna - 90% koma til vegna
hærri kostnaðar við markaðssetningu og
dýrari umbúða, t.d. er dýrt fóður oft í
sérstökum málmþynnupokum með lok-
unarbúnaði.
í viðmiðunum um hundafóður er gert
ráð fyrir ákveðnum hlutföllum helstu
næringarefna, m.a. eiga um 28% orkunn-
ar að koma úr fitu. Aðeins þrjár gerðir
fengu undir meðallagi í gæðaeinkunn
vegna þess hvaðan orkan var fengin. f
grófum dráttum var munurinn á fóðrinu
tvenns konar:
- í ódýrara fóðrinu var hærra hlutfall
orkunnar úr kolvetnum heldur í hinu
dýrara. Þetta kann að stafa af því að
kolvetni eru ódýr orkugjafi og einföld í
framleiðslu og vinnslu.
- I dýrara fóðrinu var hærra hlutfall
orkunnar úr fitu heldur en í hinu ódýrara.
Fita er hlutfallslega dýr orkugjafi, hún
þránar og hefur skemmri endingartíma.
Innihaldið
Samkvæmt niðurstöðum gæðakönnunar-
innar uppfylla allar gerðirnar á markaðn-
um þekkt viðmið um æskilegt efnainni-
hald og næringargildi. í sumum tilvikum
voru talsverð frávik í magni efna en alltaf
innan öryggismarka. í öllum fóðurgerð-
unum var nóg af prótíni og fitu. Þess er
ekki krafist að í hundafóðri séu omega-3
fitusýrur en þær draga úr Ifkum á ofnæmi
í húð og hafa góð áhrif á liðamót. Sumar
gerðir hundafóðurs voru með lítið magn
af omega-3 fitusýrum.
Ekki er alltaf hægt að lesa á umbúðum
um uppruna hráefna og prótíns í gælu-
dýrafóðri, hvort það er úr kjöti og eggj-
um, eða úr húð, hárum og úrgangi slát-
urhúsa. Nú er bannað að ala holdagripi
á kjöti og dýraafurðum og þær notaðar
í gæludýramat í staðinn. í dýra hunda-
fóðrið er oft notað kjöt- og beinamjöl af
úrvalsgæðum.
Offita
Eitt algengasta heilsufarsvandamál
nútímahunda er offita. Dönsku dýra-
læknasamtökin giska á að allt að 60%
hunda þarlendis séu of feitir. Sé hundur
alinn á fituríku fóðri þarf að gæta þess
að gefa minni skammta en ella því það
inniheldur fleiri hitaeiningar miðað við
þyngd heldur en annað fóður. Sumar
fóðurgerðir eru mjög samþjappaðar sem
getur leitt til þess að hundurinn verði
ekki mettur af réttum dagskammti. Þá fer
hann að sníkja mat og fitnar úr hófi. Ef
þarf að halda í við hundinn mæla ýmsir
dýralæknar með því að gefa aðeins 2/3
hluta þeirra skammta sem mælt er með á
umbúðum. Aðrar orsakir offitu eru hreyf-
ingarleysi og aukasporslur og afgangar
af matborðum.
Vörumerki Gerð Heildar- gæða- einkunn Nákvæmni innihalds- iýsingar fram- leiðenda
Royal Canin M25, f. fullorðna meöalstóra hunda 4.35 4.2
Friskies Serti, f. fullorðna (Adult Basic) 4.34 4.2
Purina Pro Plan, f. fulloröna, lax og hrisgrjón 4.32 4.6
Hills Prescription Diet, C/D, alhliða kostur 4.25 5.2
Hills Science Plan, f. fullorðna, m. kjúklingakjöti 4.13 4.8
Pedigree F. fullorðna, m. nautgripak. og grænmeti 4.07 4.1
Eukanuba F. fullorðna, litla og meðalstóra 3.61 4.3
Chappi Með kjúklingakjöti og hrísgrjónum 3.29 3.6
14 NEYTENDABLAÐIÐ 2. TBL. 2004