Neytendablaðið - 01.06.2004, Side 12
Nokkur heilræði
Ekki treysta blint á þann sem bankar
upp á og býður úðun. Það líf sem
finnst í gróðrinum veldur alls ekki
alltaf skaða.
Eitrið drepur ekki bara skaðvaldinn.
Það getur losað þig við allt smádýralíf
og fyrir vikið er ólíklegt að fuglar geri
sér ferð í garðinn.
Algengt er að fólk láti úða garðana
sína um mitt sumar þegar skaðinn
er skeður og lirfan á leið inn í púpu-
skeiðið. Þá er úðun eyðsla á fjármun-
um og óþarfa eituraustur.
Ekki á að úða í rigningu þar sem
eitrið skolast í burtu og gerir lítið gagn.
Ekki er heldur ráðlegt að eitra í brak-
andi sól því þá geta laufblöð brunnið.
Eiturefni skal geyma í upprunalegum
umbúðum og má aldrei hella í aðrar
umbúðir. Sérstaklega er varhugavert
að hella skaðlegum efnum í gosflösk-
ur úr plasti og hafa ófá slys á börnum
orðið af þeim völdum.
Þing
Neytendasamtakanna 2004
- verum með að móta stefnuna
Þing Neytendasamtakanna 2004 verð-
ur haldið í Reykjavík 24. - 25. septem-
ber nk. Þingið hefst kl. 15:00 föstudag-
inn 24. september.
Samkvæmt 7. gr. laga Neytendasamtak-
anna geta allir skuldlausir félagsmenn
setið þingið, enda tilkynni þeir þátt-
töku sína með a.m.k. viku fyrirvara.
Stjórn Neytendasamtakanna hvetur
félagsmenn til að sitja þingið. Þeir sem
sitja vilja þingið er bent á að tilkynna
það til skrifstofu Neytendasamtak-
anna. Það er hægt að gera í síma 545
1200, í tölvupósti ns@ns.is eða með
bréfi til Neytendasamtakanna Síðu-
múla 13, 108 Reykjavík.
Stjórn Neytendasamtakanna
Fjölmargar vandaðar bækur um garð-
rækt hafa verið gefnar út hér á landi.
I bókinni Heilbrigði trjágróðurs eftir
þá Guðmund Elalldórsson og Halldór
Sverrisson er mjög gott yfirlit yfir hinar
ýmsu tegundir meindýra. Þar er útskýrt
hvaða meindýr leggjast á hvaða plöntur,
hver eru fyrstu einkennin, hvenær á að
gæta að einkennum, hvenær hættan er
liðin hjá og hversu miklu tjóni meindýrið
veldur. Með því að hafa þessa bók við
höndina verður garðeigandinn fróðari
um lífið í garðinum og getur tekið sjálf-
stæðar ákvarðanir um hvort eitra þurfi
garðinn eður ei.
í bók Steins Kárasonar Carðverkin eru
greinagóðar upplýsingar um nær öll at-
riði sem viðkoma garðrækt. í bókinni
er líka fjallað um lífrænar varnir og skyn-
semi gegn meindýrum og er t.d. bent á
hvernig koma má sniglum fyrir kattarnef
með því að setja upp ölgildru en sniglar
munu vera sólgnir í öl og tilbúnir að stefna
sér í stórhættu fyrir sopann.
Villigarðurinn - garðyrkjubók letingjans
er aðgengileg og áhugaverð bók eftir
Þorstein Úlfar Björnsson. Þorsteinn legg-
ur áherslu á að garðvinna þurfi ekki að
vera kvöð og bendir á margar aðferðir
við að hanna garðinn þannig að viðhald
og hirðing verði sem minnst. Kemísk
skordýra- og illgresislyf eiga ekki heima í
villigarðinum enda bendir höfundur á að
náttúran hafi komist bærilega af áður en
mannskepnan kom til sögunnar með öll
sín lyf og efni.
Abyrgð flugfélags á farangri
• Taki flugfélag við farangri án athuga-
semda telst farangurinn hafa verið
óskemmdur við afhendingu þar til annað
sannast.
• Hámarksábyrgð flugfélags vegna þess
að farangur glatast, eyðileggst, skemmist
eða tefst er u.þ.b. 107.000 kr. (1.000
SDR) vegna hvers farþega, nema farþegi
hafi við innritun látið vita um aukið verð-
mæti og greitt aukagjald.
• Gjaldskrá vegna aukagjalds á að vera
aðgengileg farþegum.
• Verði tjón á farangri ber farþega að til-
kynna flugfélaginu það skriflega og með
sannanlegum hætti í síðasta lagi 7 dög-
um eftir viðtöku farangursins.
• Sé tjón ekki tilkynnt innan tímafrestsins
fellur ábyrgð flugfélagsins niður (nema
það hafi beitt svikum).
12 NEYTENDABLAOIÐ 2. TBL. 2004