Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2004, Side 15

Neytendablaðið - 01.06.2004, Side 15
Dagskammtar Framleiðendur þurfa ekki að segja til um orkuinnihald fóðursins á umbúðum. Þess vegna er hundaeigendum næstum ókleift að reikna sjálfir út hve stóra skammta dýr- unum er hollast að fá. Þeir neyðast til að miða við skammtastærðir sem framleið- endur mæla með á umbúðum. í könnuninni voru bornar saman skammtastærðir sem framleiðendur mæla með og opinberar viðmiðanir um æskilegt magn. Reiknað var út hve mörg grömm hundur á að fá á dag til að full- nægja orkuþörf. Fjórar fóðurgerðir fengu gæðaeinkunnir undir meðallagi í þessu efni og flestir framleiðendur skrá of litlar skammtastærðir á umbúðirnar. Sé farið eftir þeim fær hundurinn færri hitaeining- ar á dag heldur en æskilegt er. Tengsl? Margir hundaeigendur hneigjast til að kaupa dýrari fóðurgerðir vegna þess að dýralæknar eða hundaþjálfarar mæla með þeim. Benda má á í þessu sambandi að um 20% af veltu danskra dýralækna tengist sölu á dýrafóðri. f Danmörku eru hundaþjálfarar Ifka mikilvirkir fóðursalar. Þeir fá t.d. allt að 25% magnafslátt hjá Eukanuba-verksmiðjunum og ókeypis hvolpafóður handa hvolpakaupendum. Verðkönnun á www.ns.is Verðkönnunin er á læstum síðum félags- manna Neytendasamtakanna á vefnum www.ns.is. Lykilorð til að opna læstar síður er á bls. 2 í þessu blaði. Lykilorð breytist við útkomu hvers nýs tölublaðs. Gæðakönnunin í gæðakönnun Tænk+Test var alls 21 gerð af hundafóðri og fengust átta þeirra hérlendis (sjá töflu). Valdar voru vinsælar gerðir sem fást í venjulegum verslunum. Lítill munur reyndist á gæðum þrátt fyrir feiknamun á verði. Kannað var eðli og efnainnihald fóðurs sem ætlað er að fullnægja öllum þörfum hunda og einnig athugað hvort innihaldið væri í samræmi við upplýsingar á umbúðum. Könnun: Danska neytendablaðið Tænk+Test í samvinnu við dýraverndar- samtökin Dyrenes beskyttelse. Gefnar eru einkunnir á kvarðanum 0,5- 5,5. Lægsta einkunn er 0,5 en hæsta einkunn 5,5. Athugasemdir ‘Niðurstaða í útreikningum aðilanna sem gerðu gæðakönnunina. ** Meðaltalsverð í Danmörku samkvæmt ráðleggingu framleiðenda um magn, reiknað yfir í ísl. kr. Vinsamlega getið heimildar ef vitnað er í fjölmiðlum eða á öðrum vettvangi í efni á vef NS. Óheimilteraðbirta heilargrein- ar eða töflur án leyfis NS. Upplýsingar á vef NS er óheimilt að nota í auglýsingum og við sölu nema skriflegt leyfi ábyrgðar- manns liggi fyrir. (c) Neytendablaðið 2004 Fylgni við fóðurviðmið Uppruni orku, % Dagskammtur Heiid Kalsíum Fosfór Omega 3 fitusýrur Prótín, % Fita, % Kolvetni, % Æski- legur, g/óag (*) Ráðlagður, g/dag Frávik, æski- legur / ráðlagður, einkunn Verð á dag- skammti fyrir 20 kg. hund, ísl. kr. n 5.5 5.5 5.5 2.9 22 33 44 337 300 4.4 105 5.5 5.5 5.5 3.3 26 26 49 443 413 4.8 - 5.5 5.5 5.5 5.4 26 38 36 327 205 1.8 103 5.5 5.5 5.5 1.9 17 40 43 318 268 3.9 122 5.5 5.5 5.5 2.4 21 32 47 341 285 3.9 108 5.5 5.5 5.5 1.4 24 29 47 291 250 4.1 64 5.5 5.5 5.5 2.5 25 33 41 342 180 0.8 116 4.8 5.5 5.5 1.2 19 22 60 367 330 4.5 51 NEYTENDABLAÐIÐ 2. TBL. 2004 15

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.