Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 18

Neytendablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 18
Norðurlandamet í svknráti Sykurneysla íslendinga er sú mesta á Norðurlöndunum og er vaxandi sykur- neysla ungs fólks sérstakt áhyggjuefni. Samkvæmt ráðleggingum Manncldis- ráðs er ekki æskilegt að fá meira en 10% orkunnar úr sykri en unglingsstrák- ar fá tvöfalt hærra hlutfall úr sykri eða 20,5% orkunnar. Sykurneysla fullorðins fólks er þó rétt yfir ráðlögðum mörkum. Áriðl992 var meðalneysla íslenskra barna á aldrinum 10-15 ára 96 g af sykri á dag eða 15,3% orkunnar. Eldri börn borðuðu enn meiri sykur og sérstaklega þau sem reyktu. Ekk- ert bendir til þess að sykurneyslan hafi minnkað síðustu 12 árin nema síður sé. Aukin sykurneysla er ekki einungis áhyggjuefni á íslandi og í marshefti Rád&Rön er grein um aukna sykurneyslu Svía. Neysla sykurs þar í landi hefur auk- ist þrátt fyrir að sala á hreinum sykri hafi dregist saman. Ástæðan fyrir aukinni syk- urneyslu erfyrst og fremstsú að matvæla- framleiðendur bæta sykri út í fjölmargar tegundir matvæla sem eru á borðum fólks daglega og eins hefur neysla á gosi og sælgæti aukist til muna. Ódýrt uppfyllingarefni Aukin sykurneysla barna og unglinga er áhyggjuefni hér á landi sem og annars staðar. Hreyfingarleysi og rangt matar- æði hefur valdið þvf að sífellt fleiri börn eru of þung. Þá er það mikið áhyggjuefni að matvæli sem eru sérstaklega markaðs- sett fyrir börn innihalda oft mjög mikinn sykur. Nægirþarað nefna margartegund- ir morgunkorns, mjólkurafurðir, sælgæti, gos, safa og kex. Viðbættan sykur er að finna f ótrúlegum fjölda matvæla og í ólíklegustu vörum. Samkvæmt sænska lækninum Tore Pers- son sem hefur rannsakað áhrif sykurs á líkamann er meira en helmingur af öllum matvælum sem fæst í verslunum í Svíþjóð með viðbættum sykri. Trúlega er ástandið síst betra hér á landi ef marka má fyrrnefnt Norðurlandamet. Foreldrar sem ætla að halda sykurneyslu barna sinna í hófi bíður þar af leiðandi erfitt verk- efni. Þau verða annaðhvort að standa í stórræðum í eldhúsinu og undirbúa frá grunni mestmegnið af þeim mat sem bor- inn er á borð eða eyða töluverðum tíma í að klóra sig í gegnum innihaldslýsingar tilbúinna matvæla í verslunum. Lesið á innihaldslýsingu Skylt er að hafa innihaldslýsingu á öllum unnum matvörum og skal telja upp öll hráefni sem sett er í vöruna. Fyrst stend- ur það hráefni sem mest er af og síðan eru þau talin upp koll af kolli. Sykurmagn í mat Því miður er ekki skylt að upplýsa um viðbættan sykur á umbúðum og þvf get- ur verið erfitt að finna út hversu mikinn sykur varan inniheldur. Sykurinn kemur að einhverju leyti fram f magni kolvetna. Ef hlutfall kolvetna er hátt eru líkur á að varan innihaldi viðbættan sykur. Næringargild i í 100 g: Orka 301 kJ / 71 kkal Prótein 13,3 g Kolvetni 3,3 g Fita 0,5 g %RDS' Kalk 103 mg 12,9 Fosfór 175 mg 21,9 B2-vítamín 0,28 mg 17,5 Hlutfall af ráölögöum dagskammtl Hreint skyr. Kolvetni eru 3,3 gr. r ■> Inniliald: Sykur, maísmjöl, kakóduft t (frá Hershey's), sojabaunaolia (hert að hluta), maissiróp, hveitisterkja, umbreytt maissterkja, kakóduft unnið með basa, salt, kalsiumkarbónat (E170), frúktósi (E162, E150), trísódíumfosfat, bragðefni, sink, járn, askorbinsýra, níasin, pyridoxín, ríbóflavin, þíamín, fólasín, cýankóbalamín. Inniheldur engan af eftirfarandi ofnæmisvöldum: Hnetur, mjólkurvörur, egg, soja, hveiti, sjávarfang, sólblóma- eða sesamfræ. -..'i'JHBB■■■ Næringargildi í 100 g: Orka 418kJ / 98 kkal Prótein 11,0 g Kolvetni 12,7 g Fte o,4 g %RDS* Kalk 84 mg 10,5 Fosfór 140 mg 17,5 B2-vitamín 0,22 mg hiuiiaii af ráðlögðum dagskammtí Sykrað skyr. Hér eru kolvetni 12,6 gr. 18 NEVTEN0ABLAOID2.TBL.20O4

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.