Neytendablaðið - 01.06.2004, Side 19
Ekki er alltaf skylt að hafa upplýsingar
um næringargildi matvöru á umbúðum.
Það er þó oft gert. Þá er heimilt en ekki
skylt að gefa upp viðbættan sykur og er
talið fullgilt að gefa upp kolvetni, en kol-
vetni geta m.a. verið sykur.
Naringargildl/100 g.
Orka (KJ/kcal) ...816/195
Prótln(g) 1
F»a(g) 0
Kolvetni(g) Þaraf: 47
Sykur(g) 41
TreWg) 3
Natrium(mg) 7
Hér kemur sykurmagnið fram alltaf venjan. en það er ekki
Sykurskert og sykurlaust
Það er skylt að gefa upp næringargildi vöru ef framleiðandi setur fram fullyrð-
ingar um sykurmagn, t.d. að varan sé
sykurskert.
Áður fyrr voru hér á markaði vörur sem
voru merktar sem sykurminni eða sykur-
litlar. Slíkar merkingar eru ekki leyfilegar
í dag. Nú niá aðeins nota hugtökin sykur-
skertur eða sykurlaus og þá gilda ákeðn-
ar reglur um sykurmagnið. Samkvæmt
reglugerð má auglýsa vöru sykurlausa ef
hún inniheldur minna en 0,5 g af sykri
í 100 g af vöru. í sykurskertum vörum
verður sykurmagnið aftur á móti að vera
skert um 25% eða meira. Það var til
mikilla bóta fyrir neytendur þegar þessi
reglugerð var sett því áður var ógjörning-
ur að átta sig á sykurmagni í vörum sem
auglýstar voru með ýmsum fullyrðingum
um minni sykur.
Nú á dögum er mun algengara að fram-
leiðendur leggi áherslu á lítið fituinni-
hald matvæla. Fitulítil matvara getur hins
vegar innihaldið hátt hlutfall sykurs og
geta neytendur einungis komist að hinu
sanna með því að renna gagnrýnum aug-
um yfir innihaldslýsingu vörunnar.
Algengt er að ef matvara er með litlu
eða engu sykurmagni sé það sérstaklega
auglýst en það er aldrei gert ef matvara
er dísæt vegna mikils sykurmagns. Þá er
athyglin jafnvel dregin frá sykrinum og
aðrir kostir vörunnar tíundaðir.
Sykursamtökin ósátt
Sykurneysla virðist hafa aukist á Vestur-
löndum og sá Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in ástæðu til þess að gefa út ráðleggingar
um hæfilega sykurneyslu. Ráðleggingarn-
ar eru miðaðar við að fólk fái ekki meira
en 10% orkunnar úr sykri
en það eru sömu viðmið
og Manneldisráð hefur sett.
Ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar þóttu tíðindum sæta, en
þetta var í fyrsta skipti sem gefnar voru út
alþjóðlegar ráðleggingar um sykurneyslu.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin benti á,
máli sínu til stuðnings, að of mikil syk-
urneysla geti leitt til sykursýki, offitu og
tannsjúkdóma. Sykursamtökin í Banda-
ríkjunum (the Sugar Association) voru
meðal þeirra sem brugðust ókvæða við
og töldu skýrsluna villandi og byggða
á vafasömum upplýsingum. í bréfi til
Gro Harlem Brundtland, yfirmanns Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, hótuðu
sykursamtökin að beita sér fyrir því að
fjárstuðningur Bandaríkjanna til stofn-
unarinnar yrði skertur eða felldur niður.
Viðbrögð sykursamtakanna hafa verið
gagnrýnd harðlega en þau sýna glöggt
hversu gríðarlegir hagsmunir eru í húfi.
Sykursamtökin hafa mikil áhrif í Band-
arríkjunum og hafa þau, sem og önnur
hagsmunasamtök framleiðe nda, mikið
um það að segja hvernig leiðbeiningar
bandaríska manneldisráðsins eru orð-
aðar. Þar er t.d. einungis talað um að
sykurneysla eigi að vera hófleg. Ekki eru
gefin nein viðmið og verður hver og einn
að gera upp við sig hvað „hófleg sykur-
neysla" þýðir.
Vottun lífrænnar framleiðslu
Lífrænar aðferðir við framleiðslu afurða
felast í tillitsemi við alla þætti lífkeðj-
unnar, þ.e. jarðveg, vatn, gróður, dýr og
menn. Notaður er lífrænn áburður og
lífræn fóðurefni, náttúrulegum vörnum
er beitt gegn skordýrum og sjúkdómum,
áhersla lögð á dýravelferð og lífrænum
afurðum er haldið aðgreindum frá
öðrum á öllum stigum meðferðar og
úrvinnslu.
evrópskar lagareglur. Tún annast eftirlit
með framleiðendum lífrænna afurða hér
á landi, vottar starfsemi þeirra og veitir
heimildir til notkunar á vottunarmerkjum
Túns og Evrópusambandsins. Tún er fag-
gilt samkvæmt Evrópustaðli EN 45011
um starfshætti vottunarstofa. Þá er Tún
meðlimur í IFOAM og fleiri fjölþjóðasam-
tökum á sviði lífrænnar framleiðslu og
þjónustu við hana.
TUN
TÚN-merkið er
notað við mark-
aðssetningu ís-
lenskra lífrænna
afurða. Vottunar-
stofan Tún ehf. gefur út reglur um lífræna
framleiðslu í samræmi við íslenskar og
Típ
FFS-FSR v/nttun IS-1
kvæmt reglugerð
EES-ESB
Merki EES-ESB
fyrir vottaða líf-
ræna framleiðslu
var gefið út árið
1999. Framleiðslu
sem vottuð er sam-
ESB nr. 2092/91 má
markaðssetja með þessu merki. Vottunar-
stofan Tún ehf. annast útgáfu heimilda til
að nota merkið hér á landi.
KRAV
Krav-merkiðhef-
ur allt frá árinu
1985 verið leið-
arljós sænskra
neytenda um vottaðar lífrænar vörur í
Svíþjóð.
Stats-
kontrolleret
okologisk
0-merkið
0-merkið er
vottunarmerki
fyrir lífrænar af-
urðir framleiddar í Danmörku.
NEYTENDABLADI8 2.TBl.2004 19