Neytendablaðið - 01.12.2004, Blaðsíða 3
Gölluð eldhiísinnrétting
Panorama - miðstöð vonbrigða
Þann 31. júlí 2003 staögreiddi kona nokkur
eldhúsinnréttingu, 2 borðplötur og fylgi-
hluti, samtals kr. 394.801 í versluninni
Panorama. Samið var um afhendingu 4.-11.
september og gerði konan ýmsar ráðstaf-
anir í kringum afhendingartímann enda
stóöu flutningar fyrir dyrum hjá henni. Var
ætlunin að flytja inn i nýja húsnæðið um
leið og eldhúsinnréttingin væri komin upp
og til að allt gæti gengið upp valdi konan að
taka sumarleyfi sitt fyrstu 3 vikurnar í sept-
ember og pantaði iðnaðarmenn.
Afhending dróst og galli á vöru
Skemmst er frá því að segja að umsaminn
afhendingartími stóðst ekki. Vörurnar
komu ekki fyrr en i byrjun október, eöa um
mánuði of seint, og þá kom í Ijós að galli var
á annarri borðplötunni og hin var of stutt.
Einnig vantaði 5 Ijós af 6 og tvær skraut-
hillur. Konan fékk til sín trésmið sem m.a.
lagfærði aðra borðplötuna, auk pípara og
rafvirkja en þeir gátu ekki lokið vinnu sinni
þar sem hluta vantaöi af eldhúsinnrétting-
unni. í byrjun nóvember kom ný borðplata
í stað þeirrar sem var of stutt og Ijósin 5
sem hafði vantað. Síðar kom í Ijós aö eitt
Ijósanna var gallað. í kjölfar síðari afhend-
ingarinnar þurftu iðnaðarmennirnir að koma
afturog kostaöi þaö konuna 23.961 kr.
Neytendasamtökin í málið
í framhaldinu setti konan sig í samband viö
Neytendasamtökin og vildi aðstoð samtak-
anna við að innheimta skaðabætur vegna
afhendingardráttarins. Haföi afhendingar-
drátturinn bæði valdið henni bæði fjárhags-
Neytendum vfsað frá
Neytendasamtökunum berast reglulega
fregnir af því að seljendur segist ekki geta
aðstoðaö neytanda þegar upp koma gallar
í seldri vöru. Visa þeir þá á aðra aðila eins
og heildsala eða framleiðanda en segjast
sjálfir aðeins vera umboðsaðilar vörunnar.
Það rétta er að í neytendakaupum getur
legu- og ófjárhagslegu tjóni svo sem vegna
aukareikninga iðnaöarmanna, ónýts sumar-
leyfis auk mikillar andvöku vegna fram-
kvæmdanna en konan vinnur næturvinnu.
Gerði konan kröfu um endurgreiðslu auka-
reikninga og 10% afslátt af kaupverðinu,
samtals 63.441 kr. Lýsti konan jafnframt
yfir miklum vonbrigðum með fögur loforð
Panorama í upphafi sem síðar var ekki
staðið við.
Neytendasamtökin sendu Panorama bréf
vegna málsins og voru einnig í beinu
sambandi við fyrirtækiö. Eins og konan
hafði lýst var ýmsu lofað, s.s. aö svara
bréfum Neytendasamtakanna og leysa
úr málinu, en þrátt fyrir miklar ítrekanir
geröist ekkert af hálfu Panorama. Við svo
búið töldu Neytendasamtökin þann kost
vænstan að láta reyna á kröfur konunnar
fyrir álitsnefnd lausafjár- og þjónustukaupa
en þaö er sérfræðinganefnd sem vistuð er
hjá viðskiptaráðuneytinu.
Alit nefndar konunni í hag
Álitsnefndin tók máliö til meðferöar en
því miður svaraði Panorama ekki heldur
erindum nefndarinnar. Málinu lauk fyrir
nefndinni á þann veg að nefndin taldi
konuna hafa sýnt fram á galla af hálfu
Panorama og taldi að Panorama væri skylt
að bæta henni tjón sitt af fullu, þ.e. 63.441
kr. auk dráttarvaxta frá 28. febrúar 2004.
í kjölfar úrskurðarins sendu Neytendasam-
tökin Panorama bréf þar sem óskað var eftir
skriflegu svari fyrirtækisins um hvort það
hygðist fylgja áliti nefndarinnar og afhenda
2 skrauthillur og 1 Ijós sem aldrei hafa verið
neytaridi ávallt snúiö sér að þeim sem seldi
honum vöruna og krafist úrbóta sé vara
gölluö. Kjósi neytandi frekar að snúa sér að
fyrri söluaöilum eins og t.d. innflytjanda eða
jafnvel framleiðanda er honum það heimilt.
í flestum tilvikum hentar þó neytandanum
best að hafa samband við sinn seljanda.
afhent. Ekki barst svar frá Panorama frekar
en fyrri daginn.
Við nánari athugun á fyrirtækinu kom í Ijós
aö á þeim tíma sem málið hefur verið rekið
hefur Panorama ehf. verið tekið til gjald-
þrotaskipta og nýr aðili, Pl ehf., tekið við
rekstri verslunarinnar Panorama í Síöumúla
30. Af þessu leiðir að von konunnar um að
fá leiðréttingu sinna mála er nú nánast
engin þar sem sá sem hún átti í viðskiptum
við er gjaldþrota.
Ljóst er aö Pl ehf., nýjum rekstraraðila versl-
unarinnar, bárust öll bréf Neytendasamtak-
anna og álitsnefndarinnar enda þau send
þangað sem verslunin er til húsa. Sinnu-
leysi Pl ehf. um hagsmuni viðskiptavinar
Panorama ehf. var hins vegar algjört og
telja Neytendasamtökin það nýjum rekstrar-
aðila ekki til framdráttar.
Heimasíðan
og félagsmenn
Það má með sanni segja að ný heima-
siöa Neytendasamtakanna hafi slegið
í gegn. Almenn ánægja er með nýtt
útlit og betra aðgengi aö upplýsingum.
Lagasafn neytenda, matvælavefurinn
og heimilisbókhaldið eru vinsælar síður
og þá má ekki gleyma upplýsingum um
lægsta bensínverðiö á landinu sem eru
uppfærðar daglega. Lykilorö að læstum
síðum fyrir félagsmenn er að finna á
bls. 2 í Neytendablaðinu.
Félagsmenn eru hvattir til að greiða
árgjald sitt með kreditkorti ef þeir hafa
ekki gengið þannig frá þvi nú þegar. Á
heimasiðunni erhægt aöfara inn á aðild-
arumsókn og skrá kennitölu og kredit-
kortanúmer. Fyrir Neytendasamtökin er
þetta ódýrasti og öruggasti innheimtu-
mátinn. Einnig viljum við benda félags-
mönnum á að skrá netfangið sitt í leið-
inni. Sjá: www.ns.is
3 NEYTENDABLABIÐ 4.TBL. 2004