Neytendablaðið - 01.12.2004, Blaðsíða 7
kerti enda mikilvægt og áríðandi að auka
öryggi kerta og þar meö fækka slysum
þeim tengdum. Löggildingarstofa fylgist vel
með þessu máli og jafnframt er starfandi
norrænn vinnuhópur um staðla og kerti. Á
heimasiðu Löggildingarstofu www.ls.is er
að finna upplýsingar um brunaeiginleika
ýmissa tegunda kerta sem og heilræöi um
örugga notkun kerta ef lesendur vilja kynna
sér máliö enn frekar.
Rafmagnsseríur
Rafmagnsseríur ýmiss konar og jólaljós eru
kærkomin á þessum dimmasta tíma ársins.
Jólaljós og seríur geta þó valdið bruna og
því er rétt að hafa í huga nokkur góö ráð
sem finna má í bæklingi frá rafmagnsörygg-
isdeild Löggildingarstofu:
• Látið ekki loga á seríum innandyra yfir
nótt eða þegar enginn er heima.
• Skiptið um ónýtar perur og passið að
nota réttar perur, þ.e.a.s. perur af réttri
gerð, stærð og styrkleika
• Hendið gömlum seríum eða látið
fagmann yfirfara hana ef grunur leikur
á um að hún sé i ólagi
• Látið rafljós aldrei liggja of nálægt
gluggatjöldum, pappir eöa öðrum
efnum sem geta brunniö.
• Athugið að allar rafmagnsleiðslur séu
heilar og að klær og perustæði séu
óbrotin og heil.
• Notið aldrei inniljós utandyra
Brunavarnir
Reykskynjarar, eldvarnarteppi og slökkvi-
tæki eru brunavarnir sem ættu að vera til
á öllum heimilum. Reykskynjarar eru hentug
brunavörn. Það fer lítið fyrir þeim og þeir
ódýrustu kosta minna en 1000 krónur.
Rétt er að skipta um batterí einu sinni á
ári. Eldvarnarteppi fást í ýmsum stærðum.
Verðið ætti ekki að fæla frá en hægt er að
fá teppi á innan við 2000 krónur. Þau eiga
að hanga uppi, helst í eldhúsinu, þannig að
þau séu aðgengileg ef eldur kviknar.
Slökkvitæki er hægt að fá i mismunandi
stærðum en lítil tæki henta vel inn á heimili.
Yfirfara þarf slökkvitæki á hverju ári. Reyk-
skynjara, eldvarnarteppi og slökkvitæki
ættu að fást í öllum helstu raftækjaversl-
unum og byggingavöruverslunum. Einnig
selja sum tryggingafélögin eldvarnir sem og
öryggisfyrirtæki.
Neytendablaðið hvetur félagsmenn til að
skoöa brunavarnir fyrir jólin og muna að
skipta um rafhlöður í reykskynjurum.
Meðhöndliin jölatrjáa
Til að lifandi jólatré skarti sínu fegursta sem lengst og haldi angan og barri er ýmislegt
hægt að gera. Hér eru nokkur húsráð:
Eftir aö tréð hefur veriö keypt og þangað til þaö er tekið í hús til skreytingar er best aö
geyma tréð á köldum og skjólsælum staö. Sé tréð geymt úti er gott að vefja það í plast til að
hlífa því við vindi. Mikið frost dregur úr barrheldni grenitrjáa.
Þegar tréð er tekið inn og sett upp er gott að „sjóða" tréð - það er óþarfi að gera við þini
og furur. Suöan felst í því að opna vel rótarháIsinn á trénu; gott er að saga sneiö neðan af
stofninum til aö fá nýtt sár og einnig að tálga börkinn af neðstu 5-10 sm stofnsins. Látið
tréð síðan standa í snarpheitu vatni í nokkra stund (10 mín.) áður en þaö er sett í jólatrésfót
með vatni.
Mikilvægt er aö fylgjast vel með þvi fyrstu dagana að nægt vatn sé í fætinum því tréö
dregur til sin mikinn vökva fyrst eftir þessa aðgerð. Forðist að láta jólatré standa nærri ofni
eða öðrum hitagjafa.
Á þin- og furutrjám er nægilegt að saga sneiö neöan af stofninum og gæta þess siðan aö
ávallt sé vatn i fætinum.
Samráð
í aprílhefti Neytendablaðsins frá
1999 birtist eftirfarandi:
„Verðlagning á olíuvörum er hins
vegar svipuð hjá hinum stóru, þannig
að stundum mætti ætla að gagn-
kvæm hlustunartæki væru til staðar
á stjórnarfundum þeirra. Þess vegna
njóta neytendur á íslandi ekki virkrar
verðsamkeppni og njóta í takmörk-
uðum mæli hagstæðara verðs vegna
lækkana á heimsmarkaði."
í dag, 5 árum seinna, vitum við að þetta
meö hlustunartækin er ekki fjarri lagi.