Neytendablaðið - 01.12.2004, Qupperneq 15
95% bandarískra stúlkna á aldrínum 3-10 ára
eiga aö minnsta kosti eina Bárbie-dúkku.
Þœreru m.a. framleiddar i verksmiöju 1 sem fær
miötungseinkunn.
Power Rangers frá Bandai er framleiddur i verk-
smiöju 2. Eftirlitsmennirnir á vegum ICTR fengu
að skoöa verksmiöjuna en undir eftirliti og voru
i fylgd sex starfsmanna og öryggisvaröa allan
timann.
Leikfangaframleiðsla í Kína
- misjafnlega búið að starfsmönnum
Framleiðsla á neysluvörum ýmiss konar
hefur á undanförnum árum og áratugum
færst til fjarlægra landa þar sem launa-
kostnaður er mun lægri en á Vestur-
löndum. Leikfangaframleiðsla er þar
engin undantekning.
Árið 1998 voru 60°/o af leikföngum í heim-
inum framleidd í Kína og Hong Kong. Fjöldi
verksmiðja í Kína hefur margfaldast á
undanförnum árum en opinberum eftirlits-
mönnum sem eiga að tryggja aö kínversk
vinnulöggjöf sé virt hefur ekki fjölgað að
sama skapi. Aðstæður verkafólks eru oft
mjög slæmar og samræmast ekki endi-
lega fagurlega orðuðum siðareglum fram-
leiðenda. Aðstæðurnar geta þó verið æði
misjafnar. Erfitt, ef ekki vonlaust, er fyrir
neytendur að sjá hvort vara er unnin viö
aðstæður sem minna á þrælahald eða hvort
hún kemur úr verksmiðju þar sem aðstæður
eru ásættanlegar og vinnulöggjöf er fram-
fylgt.
Ný tegund kannana
Lesendur Neytendablaðsins kannast við
gæðakannanirnar sem ICTR (International
Consumer Research and Testing) gerir reglu-
lega á fjölda neysluvara. í þessari könnun
frá ICTR kveður hins vegar við nýjan tón.
Ekki er veriö að meta gæöi vörunnar heldur
samfélagslega ábyrgð sex fyrirtækja.
Aðstæður voru kannaöar í sex verksmiðjum
sem framleiða þekkt leikföng fyrir Mattel,
Lego, Bandái, Hasbro, Disney og MGA
Entertainment.
Eftirfarandi atriði voru skoðuö: Aðstæður
i verksmiöjum (hreinlæti, öryggi og heilsu-
vernd starfsmanna), launakjör, fæðingar-
orlof og frídagar, yfirvinna og aðstæður i
vinnubúðum.
Siðareglur (Codes of Conduct)
Langflest fyrirtæki hafa sett sér siðareglur
en í þeim útlistar fyrirtækið stefnu sína
m.a. i umhverfismálum og starfsmanna-
málum og einsetur sér að fara eftir henni.
Fyrirtækjum er í sjálfsvald sett hvort þau
setja sér slíkar reglur en kröfur neytenda um
forsvaranlega framleiðsluhætti hafa orðiö
til þess að mjög mörg fyrirtæki hafa sett sér
siöareglur. Ekki virðast þó öll fyrirtæki fara
eftir eigin reglum og þar sem allt eftirlit er
hjá fyrirtækjunum sjálfum er ekki auðvelt
fyrir neytendur að gera sér grein fyrir því
hversu vel fyrirtæki standa sig þegar kemur
að samfélagslegri ábyrgð.
ICTR bað fyrirtækin sex um afrit af siöa-
reglum sem þau hafa sett sér. Aðeins eitt
fyrirtæki virtist ekki hafa neinar siöareglur
en það er MGA Entertainment en siðareglur
Disney er hins vegar að finna á 50 tungu-
málum. Mest vinna virðist lögð i siðareglur
Lego og Mattel.
Konur vinsælli starfskraftur
Vinnuaflið í verksmiðjunum er yfirleitt
ungar konur úr sveitum landsins. Karlmenn
eru einungis ráönir ef starfið krefst líkam-
legs styrks. Samkvæmt starfsfólki í verk-
smiðjunum eru konur frekar ráðnar þar
sem þær eru hlýðnari, feimnari og ekki eins
liklegar til vandræða og karlarnir. í sumum
verksmiðjum eru karlar og konur ekki látin
vinna við sömu línu og því haldið fram aö
konurnar myndu þá síður hafa hugann viö
efnið. Yfirmenn í verksmiðjunum halda því
fram að ekki sé um mismunun að ræða,
það sæki einfaldlega fleiri konur um störfin.
Barnavinna virðist yfirleitt ekki vera mikið
vandamál í leikfangaiðnaðnum í Kína og
engin af verksmiðjunum sex ræður börn í
vinnu.
15NEyTENDABLA8IB4.TBL.2004