Neytendablaðið - 01.12.2004, Qupperneq 16
Flest starfsfólk kemur langt að og býri vinnubúðum. Þar eroft þröngt um manninn.
Verksmiðja 4 sem framleiðir fyrir Disney fœr
verstu einkunn ásamt verksmiðju 3 og 6. Yfir-
gengileg yfirvinna er aðeins eitt afmörgum
vandamálum sem viögangast I verksmiðjunni.
Öryggi á vinnustað
Kína hefur átt aðild aö Alþjóðavinnumála-
stofnuninni allt frá árinu 1919 og hefur
fullgilt 23 samþykktir, þ.á.m. þrjár svokall-
aðar grundvallarsamþykktir. Þess má geta
að Bandaríkin hafa aðeins samþykkt tvær
grundvallarsamþykktir en flest lönd Evrópu-
sambandsins hafa fullgilt allar átta. Kína
hefur þó ekki fullgilt nokkrar grundvall-
arsamþykktir sem lúta aö heilsuvernd og
öryggi á vinnustað.
Rannsóknir frá Kína sýna að heilsuvernd og
vinnuöryggi er mun minna í verksmiöjum í
eigu erlendra fyrirtækja. Heimamönnum er
mikiö í mun að laða til sín erlenda aðila og
halda þeim á svæöinu. Fyrir vikið er gjarnan
horft fram hjá lögbrotum á vinnulöggjöf.
Verkalýðsfélög
Kina hefur ekki fullgilt grundvallarsamþykkt
um félagafrelsi og rétt til að gera kjarasamn-
inga. Frjáls og óháð verkalýðsfélög eru því
ekki leyfð í Kína en All China Federation
of Trade Unions er verkalýðsfélag á vegum
ríkisins. Samkvæmt nýrri löggjöf á allt verka-
fólk í stærri verksmiðjum að vera í verkalýös-
félagi sem tengist „Rikisverkalýðsfélaginu".
Því fer þó fjarri aö þeim lögum sé framfylgt
og sjaldnast er verkafólk sem vinnur fyrir
einkafyrirtæki og erlenda aðila í verkalýös-
félagi.
Varasöm efni í leikfangaframleiðslu
Starfsfólk i leikfangaverksmiöjum þarf oft
aö vinna með varasöm efni en hefur þó
sjaldnast hlotiö neina þjálfun í meðhöndlun
slikra efna. Loftræstingu er oft ábótavant,
hávaði er yfir hættumörkum, vinnan er
einhæf og aöstæður lélegar með tilliti til
líkamsbeitingar. Ofan á þetta bætist mikið
vinnuálag. Slys á starfsfólki eru mjög fátíð
í verksmiðjunum sex, hins vegar er mikið
um veikindi sem rekja má til vinnuálags og
slæmrar starfsaðstööu.
Vinnutími
Yfirgengilegurvinnutími ereitt helsta vanda-
málið í leikfangaverksmiðjunum. Á háanna-
tíma eru engin takmörk fyrir þvi hversu
mikla vinnu starfsmenn inna af hendi. Þá er
jafnvel unnið alla daga vikunnar og gefnir
einn til tveir fridagar á mánuði. í verksmiöju
1, 5 og 6 er því fylgt aö hafa lögboðinn
frídag á sunnudögum.
Yfirvinnan er sjaldnast unnin af fúsum
og frjálsum vilja enda er yfirvinnan ekki
Clickits Barbie My Scene Power Rangers Action Man Bratz Plush Toy
LEGO MATTEL BANDAI HASBRO MGA Entertainment Disney
Verksmiðja 5 Verksmiöja 1 Verksmiöja 2 Verksmiðja 3 Verksmiöja 6 Verksmiöja 4
Réttindi starfsmanna
Jafnrétti til vinnu nei nei nei nei nei nei
Frelsi til að hætta starfi já nei ? nei já nei
Einn frídagur í viku já já nei nei já nei
Orlof nei nei ? nei nei nei
Fæöingarorlof já nei nei nei nei nei
Laun sem duga til lágmarks framfærslu
Lágmarks framfærslulaun nei nei nei nei nei nei
Yfirvinnutímar í mánuöi á háannatíma 55 112 123 157.5 149 214
Yfirvinnutímar unnir af fúsum vilja já nei nei nei nei nei
Öryggi
Álag v. hita, hávaöa, varasamra efna og hættu vegna rafmagns og vélbúnaöar já já já já já já
Húsnæöi og matur
Ásættanlegar vistarverur já já já já nei nei
Gott fæði nei nei já já nei nei
Heildarsamanburður 1 2 3 4 5 6
Samanlögö einkunnagjöf A B B c c c
X
16 NEYTENDABLAÐIÐ 4. TBL.2004