Neytendablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 2
Brynhildur Pétursdóttir.
Efni
Frá kvörtunarþjdnustunnj 3
Heimilisbókhald 4
Gæðakönnun á tnkuvslum 6
Gúmmíarmbönd 9
Matvælapólitík 10
Sítróna tll hreingernlnga 12
Fráfnrmanni 13
Þjnnustuver 14
Vítamínpistill 16
Neytandi í Bandaríkjunum 17
Gæflakönnun á DVD-spilurum 18
Neytandinn svarar 22
Áfengisgns 23
Þegar seljendur/auglýsendur eru gagnrýndir fyrir að ganga of langt í markaðs-
setningu gagnvart börnum eru þeir fljótir að benda á ábyrgð foreldra. Mér finnst
fullmikil einföldun að halda því fram að foreldrar beri einir ábyrgð á uppeldi barna
sinna. Við búum jú i samfélagi.
Foreldrar reyna auðvitað að sinna uppeldishlutverki sínu eftir bestu getu en oft
eru skilaboð seljenda fullkomlega á skjön við áherslur foreldranna. Uppeldi í dag
tekur líka á sig ýmsar myndir. Tökum dæmi:
Við þurfum að útskýra fyrir börnum okkar að tónlistarmyndböndin sem leikin eru
í sjónvarpinu lýsi ekki raunveruleikanum. Söngkonur geti víst náð langt án þess að
fækka fötum og dilla rassinum.
Við þurfum að fylgjast með því hvort börnin okkar séu að spila bannaða tölvuleiki
eða horfa á bannaðar myndir sem þó eru gjarnan auglýstar með ungan markhóp í
huga. Við þurfum líka að vera í góðu sambandi við aðra foreldra og athuga hvaða
tölvuleikir og myndir leynast á heimilum þeirra.
Við þurfum að útskýra fyrir börnum okkar að fullyrðingin um hollt eða hollara
súkkulaðimorgunkorn verði að teljast nokkuð hæpin og kenna þeim að hafra-
grautur sé hollur og góður morgunmatur þótt ekki fylgi neitt spennandi dót með
í pakkanum.
Við þurfum að benda þeim á að það sé frekar ólíklegt að fjölskyldan vinni skíðaferð
til Austurríkis þótt hún kaupi kexpakka og taki þátt i „spennandi leik".
Það sama gildir um hina árlegu gostappasöfnun, sem oft snýst upp í andstæðu
sína þegar birgðir seljenda þrýtur áður en leikurinn er hálfnaður.
Við þurfum að útskýra að unglingarnir í sjónvarpinu séu í raun að drekka léttöl en
ekki bjór og auðvitað megi ekki henda húsgögnum út um gluggann þótt léttölið
virðist vissulega koma fólki í stuð.
Þá verðum við foreldrar að vakta börnin þegar þau sitja við sjónvarpið því það
er aldrei að vita hvenær atriðum úr bönnuðum myndum er slætt inn í dagskrána
(sbr. Örninn). Þá er ekki óhætt að horfa á fréttatímann öðruvísi en með aðra
hönd á fjarstýringunni þar sem myndir af lemstruðum búkum og deyjandi fólki
eru algengar og ómerkilegustu fréttir af nektarbúllum virðast alltaf gefa tilefni
til að sýna svo sem einn súludans. Ég vildi bara óska að ég hefði verið sneggri til
þegar auglýsingin frá Umferðarstofu birtist öllum að óvörum. En barnið var dottið
niður af svölunum áður en ég náði að setja fingurinn á fjarstýringuna. Þar brást
ég sem foreldri en maður getur víst ekki verið fullkominn.
Prentaö efni
Blaöiö er prentaö á
umhverfisvænan hátt.
NEYTENDABLAÐIÐ
4. tbl., 51. árg. - desember 2005
Útgefandi: Neytendasamtökin, Siöumúla 13,
108 Reykjavík
Sími: 545 1200 Fax: 545 1212
Veffang: www.ns.is
Netfang: ns@ns.is
Ábyrgöarmaöur: Jóhannes Gunnarsson
Ritstjóri: Brynhildur Pétursdóttir
Ritnefnd: Jóhannes Gunnarsson, Þuríöur
Hjartardóttir, Þórólfur Daníelsson
Umsjón meö „Frá Kvörtunarþjónustunni":
íris Ösp Ingjaldsdóttir
Umsjón meö gæöakönnunum: Ásmundur
Ragnar Richardsson
Yfirlestur: Laufey Leifsdóttir
Umbrot og hönnun: Ásprent Stíll ehf.
Prentun: HjáGuðjónÓ ehf. - vistvæn prent-
smiöja
Pökkun: Bjarkarás
Upplag: 12.000 eintök, blaðið er sent öllum
félagsmönnum í Neytendasamtökunum
Ársáskrift: 3.500 krónur og gerist áskrifandi
um leið félagsmaður í Neytendasamtökunum.
Forsíðumynd: Kjarnaskógur, Ijósm. Sólrún
Lovísa Sveinsdóttir
Heimilt er að vitna í Neytendablaðið í öðrum
fjölmiðlum sé heimildar getið. Óheimilt er
þó að birta heilar greinar eða töflur án leyfis
Neytendasamtakanna. Upplýsingar ur Neyt-
endablaðinu er óheimilt að nota í auglýs-
ingum og við sölu nema skriflegt leyfi Neyt-
endasamtakanna liggi fyrir.
Blaðið er prentað á vistvænan hátt - Merkt
Norræna Svaninum.
Lykilorö á heimasíðu: net12
2 NEYTENDABLABIÐ 4. TBL. 2005