Neytendablaðið - 01.12.2005, Page 9
Mynd: Tine Haug
Gúmmíarmbönd í ýmsum litum hafa veriö
vinsæl undanfarið. Hjólreiðakappinn Lance
Armstrong var upphafsmaður þessarar
tísku þegar hann stóð fyrir fjáröflun með
sölu á gula LlVESTRONG-armbandinu. Allur
ágóði af sölunni rennur f Lance Armstrong-
sjóðinn sem úthlutar styrkjum til krabba-
meinsrannsókna. Armböndin eru seld á einn
bandaríkjadal (60 krónur).
Eitthvað hefur borið á eftirlíkingum en hin
ósvikna vara er seld í litlum Nike-pokum.
Neytendasamtökin vita ekki til þess að LIVE-
STRONG-armböndin séu seld hér á landi.
Hvað þýða litirnir?
• Rautt armband með áletruninni „ASIA-
ON MY MIND" er til styrktar fórnar-
lömbum flóðbylgjunnar í Asiu.
• Hvitt armband „MAKE POVERTY
HISTORY" er til styrktar ýmsum
samtökum sem berjast fyrir réttlátari
viðskiptum við fátæk lönd, afnámi tolla
og niðurfellingu lána.
• Svart og hvitt armband þar sem hring-
irnir hanga saman „STAND UP AND
SPEAK" er samvinnuverkefni Nike og
fótboltaleikmanna. Peningarnir fara
í sjóðinn King Baudoin Foundation
sem berst gegn kynþáttafordómum í
evrópskum fótbolta.
• Rautt band „ACTIVE CHOICE" er til
styrktar baráttunni gegn alnæmi.
Hér á landi fást armbönd víða í verslunum
í ýmsum litum og með alls kyns áletrunum.
Margt virðist þó benda til þess að flest
böndin séu óekta, þ.e.a.s. armbönd sem hafa
ekkert með góðgerðarstarfsemi að gera.
Upprunalega hugmyndin er góð. Fólk styrkir
gott málefni og armbandið er eins konar
staðfesting á því. En því miður fer boðskapur
góðgerðarsamtakanna fyrir lítið þegar alls
kyns óekta gúmmbönd eru í sölu.
Krabbameinsfélagið selur tryggöarbönd i sex litum
og kostarstykkiö 500 krónur. Allur ágóöi rennur til
Krabbameinsfélagsins á islandi.
Þýtt og staöfœrt úr Forbrukerrapporten 08 '05
Vissir þú að...............
Pappírinn í Neytendablaðinu er ekki
klórbleiktur og losun úrgangsefna við
vinnslu hans er í lágmarki
Þess vegna er Neytendablaöiö Svansmerkt
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna en hátt í ellefu hundruð
fyrirtæki og þjónustuaðilar bjóða Svansmerktar vörur og þjónustu á Norðurlöndunum.
Þeir einir fá að nota Svansmerkið sem uppfylla strangar kröfur um gæði og
takmörkun umhverfisáhrifa.
Nánari upplýsingar um Svansmerktar vörur á íslandi er að finna á ust.is.
UST
UmhvmrfltUafnun