Neytendablaðið - 01.03.2006, Qupperneq 8
Nokkur efni undir smásjánni
Sjónir manna hafa beinst aö nokkrum
efnum sem hafa veriö rannsökuö nokkuð
vel. Hér að neöan eru upplýsingar um
efni sem hafa verið mikiö rannsökuö og
er ástæöa til að hafa áhyggjur af.
Eldtefjandi efni (bróm) eru sett í rafmagns-
tæki eins og tölvur, sjónvörp og farsíma en
einnig er þessi efni oft aö finna í glugga-
tjöldum, áklæði og dýnum. Efnin eiga að
koma í veg fyrirað kvikni í rafmagnstækjum
og eldur breiöist út.
Efnin halda þó ekki kyrru fyrir á sínum
staö. Þau þyrlast út í andrúmsloftið og
berast þannig í fólk. Þau eru þrávirk og
safnast upp í líkamanum. Efnin hafa m.a.
áhrif á æxlunargetu og hormónajafn-
vægi og tvær tegundir efnanna hafa verið
bannaðar í Evrópu. Krafa neytendasamtaka
og umhverfisverndarsamtaka er að öll þessi
efni verði alfarið bönnuö.
í rannsóknum hefur komið í Ijós að þessi
efni er aö finna í blóði, fituvefjum manna
og brjóstamjólk en magn er misjafnt eftir
löndum. Konur í Norður-Ameríku hafa hæst
hlutfall þessara efna í brjóstamjólk eða
40 sinnum hærra en í nokkru öðru landi.
Neytendablaðið veit ekki til þess að nokkur
rannsókn hafi verið gerð hér á landi.
Þalöt eru notuð sem mýkingarefni í plast.
Lengi hefur veriö vitað um skaðsemi nokk-
urra tegunda þalata (DBP, BBP og DEHP ) en
efnin eru talin hafa hormónaraskandi áhrif.
Nýjar rannsóknir benda til þess að efnin geti
haft áhrif á fóstur (drengi) í móðurkviði (sjá
heimasíöu Environmental Health Perspect-
ives, www.ehp.niehs.nih.gov).
Þalöt eru algeng í mörgum neysluvörum,
eins og matvælaumbúðum, regnfatnaði,
sturtuhengjum, og leikföngum. Evrópu-
sambandið hefur staðfest til frambúðar
bann viö því að varasömustu tegundirnar
séu notaðar í barnaleikföng. Það er til marks
um áhrif iðnaðarins hversu langan tíma það
hefur tekið að fá bannið lögfest, þrátt fyrir
viðamiklar rannsóknir á efnunum.
Bisphenol-A eða BPA er algengt í mat-
vælaumbúðum en efnið er á lista Evrópu-
sambandsins yfir hórmónaraskandi efni.
BPA hefur áhrif á estrógenmagn líkamans
og nýlegar rannsóknir benda til þess að það
geti verið krabbameinsvaldandi. I Kalíforníu
stendur jafnvel til aö banna BPA í öllum
vörum ætluðum börnum yngri en þriggja
ára og ef marka má niðurstöður rannsókna
er ástæða til að hafa áhyggjur af mikilli
útbreiðslu efnisins sem er flokkað sem
hættulegt æxlunargetu fólks.
Ilmefni eru mjög algeng í neysluvörum,
s.s hreingerningarvörum, snyrtivörum og
baðvörum og notkun þeirra fer vaxandi.
Algengt er að leikföng og varningur ætlaður
börnum ilmi og hafa neytendasamtök
mótmælt þessari þróun enda engin ástæða
til að börn séu að sýsla með ofnæmisvald-
andi efni. Ný reglugerð Evrópusambandsins
skyldar snyrtivöruframleiðendur til að
merkja helstu ofnæmisvaldana. Listi yfir
þessi ilmefni var birtur í Neytendablaðinu 2.
tbl. 2005.
Á heimasíðu Umhverfisstofnunar er að finna
upplýsingar um ýmiss kemísk efni í neyslu-
vörum: www.ust.is/efniogefnavorur
Áheimasíðu BEUCwww.beuc.org eraðfinna
bæklinginn „Our daily coktail of cemicals".
Okræsilegur kokteill í leikföngum
Lítil drekafigura fró Disney innihélt
40% afþalatefninu DINP.
Á síðasta ári kynnti danska neytenda-
stofnunin niðurstöður könnunar á 80
leikföngum sem keypt voru vítt og breitt
um Evrópu. Athugað var hvort leikföngin
innihéldu efni sem væru skaðleg heilsunni
og/eða umhverfinu.
Niðurstaðan sýndi að ekki vantar varasöm
kemísk efni í leikföng barna, en meðal efna
sem fundust voru:
Þalöt sem notuð eru m.a. notuð sem
mýkingarefni í plast og málningu. Sumar
tegundir þalata eru bannaðar í leikföngum
fyrir börn yngri en þriggja ára. Fimm
tegundir þalata fundust í leikföngunum.
Þungmálmar eru óæskilegir í leikföngum
enda heilsuspillandi. í könnuninni fundust
króm, antimón, kopar og nikkel.
Lífræn leysiefni eru skaðleg efni sem eru
töluvert notuð í leikföng ef marka má könn-
unina. Efnin Klórfenol, 2-Methyl-1-prop-
anol, klóroform, cyclohexan, 2-Ethoxyet-
hylacetate, styren, cyclohexanon og tólúen
fundust í leikföngunum. Öll þessi efni hefur
danska umhverfisstofnunin flokkað sem
hættuleg. Önnur efni sem fundust eru vetnis-
Heimildir: Tœnk, myndir:Jesper Giyrskov.
kolefnissambönd, benzaldehyd, d-limonen
sem er ilmefni og bór.
Framleiðendur fjögurra leikfanga
kærðir
Af 22 tegundum leikfanga á danska
markaðinum reyndust fjögur innihalda of
mikið af skaðlegum efnum og voru þær
tegundir samstundis kærðar til umhverfis-
stofnunarinnar.
Löggjöf ábótavant
Löggjöf um kemísk efni í leikföngum er
verulega ábótavant. Níu þungmálmar eru
bannaðir í leikföngum og frá 1999 hafa
nokkrar tegundir þalata verið bannaðar.
Það er ekki þar með sagt að þessi
efni finnist ekki í leikföngum enda «.
eftirlit lítið og framleiðendum
er sjálfum gert að sjá til þess Jpf
að leikföngin standist lög og
reglur.
Peli keyptur í Tigersem innihélt
þrjár þalattegundir, þar af30,2°/o
afDINP.
Umhverfisráðherra
Dana stendur ekki á
sama
Connie Hedegaard, umhverfisráðherra Dana,
sagði í viðtali í danska sjónvarpinu að Danir
myndu beita sér fyrir því að ónauðsynleg
og hættuleg efni verði fjarlægð úr leik-
föngum. Oftar en ekki hefur þessi umræða
komið til kasta danska þingsins en umræðan
um kemísk efni í neysluvörum er mjög
áberandi í nágrannalöndunum og reyndar
víðar í Evrópu þar sem ráðamenn láta sig
málið varða. Málum er öðruvísi háttað
hér á landi sem stafar annaðhvort af
þekkingarleysi ráðamanna eða áhugaleysi.
Neytendablaðið hvetur til aukinnar umræðu
um þennan mikilvæga málaflokk og þar ætti
umhverfisráðherra aðfara
fremstur í flokki.
Plastbolti frá
Disney innihélt
ofmikið af
þalatefninu
DEHP.
NEYTENDABLABHn.TBL.2006