Neytendablaðið - 01.03.2006, Page 24
DÝRAST
að taka húsnæðislán á Islandi
Það hallar verulega á íslenska neytendur þegar kemur að húsnæðislánum. Þetta er
helsta niðurstaða skýrslu sem Neytendasamtökin unnu í samvinnu við neytendasam-
tök í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Bretlandi, írlandi, Hollandi, Þýskalandi og
Austurríki. Helstu niðurstöður eru:
• Það er dýrara að taka húsnæöislán hér þar sem lántökugjald íslenskra fjármálafyrirtækja
er umtalsvert hærra en að jafnaði í hinum níu löndunum.
• Stimpilgjald er lagt á í flestum löndunum með mismunandi formi. Finnar hafa einir hætt
þessari ranglátu skattlagningu og miðað við yfirlýsingar stjórnmálamanna úr öllum
flokkum ættum við fyrir löngu að hafa fetað í fótspor Finna.
• Það er miklu dýrara fyrir íslenska neytendur að greiða upp húsnæðislán en neytendur í
nágrannalöndunum og því valda einkum þrír þættir:
• Vaxtastig á húsnæðislánum er að jafnaði lágt í flestum viðmiðunarlöndunum og
virðast lántakendur njóta þess víðast hvar.
• Vextir hér eru þeir hæstu á því svæði sem könnunin nær til. Raunvextir eru að
jafnaði frá 2 og upp í tæplega 5 prósentustigum hærri en í hinum Evrópulönd-
unum.
• Kostnaður við greiðslu afborgana er mun hærri og uppgreiðslugjald er yfirleitt
hærra.
Skýrslan í heild er á heimasíðu Neytendasamtakanna www.ns.is á íslensku og ensku