Foringinn - 01.06.1979, Qupperneq 24
Gamla uglan
hugleiðir
Til sveitarforingjans:
Sem góður sveitarforingi verður þá að
hafa eftirfarandi atriði í huga:
1. Þú verður að sýna skátum þínu trúnað og
láta þá finna að þér sé ánægja að því að
vinna með þeim og fyrir þá.
2. Þú verður að hafa brennandi áhuga fyrir
því, a skátar þínir verði glaðir og ánægðir
í félagsskapnum vegna góðs árangurs í
störfum, sem unnin eru í anda skátalag-
anna, því hamingjusamir og glaðir ungl-
ingar eru góðir félagar, og líklegir til að
verða dugandi menn og konur og nýtir
þjóðfélagsþegnar.
3. Þú verður að vera skátum þínum sönn
fyrirmynd í orðum og verkum, og minnast
þess stöðugt að fordæmi þitt er þýðingar-
meira en allar ráðleggingar þínar um
sama efni.
Þú verður að hafa einlægan vilja til þess
4.
fti
að framkvæma áætlanir sveitar þinnar
með staðfestu og þolinmæði, og með
glöðu geði þótt á móti blási og þetta
skaltu ætíð gera með hjálp flokksforingja
þinna.
5. Þú verður að vinna að uppeldi skáta
þinna með heimilinu, skólanum og kirkj-
unni.
6. Þú verður að vera trúr stafsmaður félags
þíns og B. í. S. og kappkosta að skapa því
virðingu almennings.
7. Þú verður að unna útilífi og hafa víðsýnar
og kreddulausar trúarskoðanir, virðingu
fyrir sköpunarverkinu og höfundi þess,
og skilning á öllu mannlegu.
Góður sveitarforingi er ekki maður, sem ger-
ir þrjátíu manna verk, heldur maður, sem fær
þrjátíu menn til þess að vinna verkin með
áhuga og gleði.
I
©