Bændablaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 5

Bændablaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 5
Þríðjudagur 17. febrúar 1998 Bœndablaðið 5 Greinargerð þessi var unnin í janúar 1998, eftir viðtöl við nokkra sláturleyfishafa og smá- sala á markaðinum. Helstu orsakir samdráttarins eru þær að lítið var um tilboð á kindakjöti haustið 1997 og verð hækkaði á þessum tíma. Framleiðsla á svína- og alifuglakjöti jókst mjög mikið á liðnu ári og í fyrrasumar skorti suma sláturleyfishafa dilkakjöt. Þá voru engar samræmdar niðurgreiðslur árið 1997 og vörusamsetning í kindakjötssölu er að breytast. Sölusamdráttur kindakjöts seinnihluta árs 1997 Kristín Kalmansdóttir, starfsmaður Markaðsráðs kindakjöts. Lítil sem engin tilboð voru á gömlu kindakjöti haustið 1997. Jafnvel þó að ekki hafi verið um neinar niðurgreiðslur að ræða haustið 1996, var engu að síður töluvert um að sláturleyfishafar og/eða verslanir væru með tilboð á eldra kindakjöti, t.d. lærum. Sl. haust var hins vegar lítið til af gömlu dilkakjöti og því engin birgðapressa á söluaðilum. Ljóst má vera að tilboðin 1996 skiluðu þó nokkurri magnsölu. Verðhækkanir á dilkakjöti í byrjun september, sem fóru fyrst að hafa veruleg áhrif seinnipartinn í október og í nóvember, höfðu sitt að segja. Þá hafa afslættir haldið áfram að dragast saman á árinu og eru nú oft á bilinu 3-6%. Kjöt- vinnslur, sem hafa notað dilka- framparta í sína framleiðslu, kvarta yfir hækkuðu verði, einnig verslanir. Verðhækkun á vörum er augljóslega ekki til þess fallin að hamla gegn sölusamdrætti þeirra. Þó það sé umdeild skoðun þá má engu að síður telja líklegt að sá skortur sem var hjá sumum slátur- leyfishöfum á dilkakjöti sl. sumar hafi orsakað varanlegan sölusam- drátt. Skortur þessara aðila á dilka- kjöti varð til þess að þeir lögðu aukna áherslu á sölu á öðrum kjöt- tegundum yfir sumarmánuðina, og gera jafnvel enn. Þannig var sér- staklega ýtt undir sölu á svínakjöti. Þama hefur tapast markaður sem ekki er sjálfgefið að vinnist aftur. Annars vegar hefur fólk í auknum mæli lært að matreiða og borða svínakjöt og kjúklinga. Hins vegar eru það kjötvinnslumar sem nú hafa aukið og stöðugt framboð af svínakjöti, auk þess sem það er mun ódýrara hráefni en kinda- kjötið og nýtist einnig betur. í framhaldi af þessu breyta kjöt- vinnslumar uppskriftum sínum og eftir það er erfitt fyrir kindakjötið að vinna þennan markað aftur. Stóraukin framleiðsla á svína- kjöti og alifuglakjöti fer ekki hvað síst í beina samkeppni við kinda- kjötið. Að hluta til er hér um eðli- lega þróun að ræða þar sem ljóst má vera að fólk sem borðar t.d. svínakjöt, borðar ekki dilkakjöt á meðan. Með síauknu úrvali mat- væla hlýtur neyslan að dreifast á fleiri vömr. Engar samræmdar verð- lækkanir vom á kindakjöti á árinu 1997 á móti tveimur slíkum her- ferðum árið á undan. Þær herferðir skiluðu án efa aukinni magnsölu árið 1996. Á árinu 1997 voru hins vegar þó nokkrar umfangsmiklar verðlækkanir á öðrum kjöttegund- um, einkum svínakjöti. Töluvert er um að vömr úr lambakjöti fáist ekki í verslunum. Þar má m.a. nefna lambainnanlæri og lambagúllas. Þessar vörur sjást alltof sjaldan í kjötborðum verslana. Engu að síður eru þetta vömr sem þó nokkur eftirspum er eftir og margir em fúsir til að greiða hærra verð fyrir vömr eins og lambainnanlæri. Það er ákaf- lega bagalegt að verslanir skuh ekki geta haft vörur sem þessar á boðstólum, þegar eftirspum eftir þeim er fyrir hendi, og sú stað- reynd dregur augljóslega úr sölu- möguleikum kindakjötsins. Þegar fólk fær ekki þessar vömr úr lambakjöti þá er það líklegra til að kaupa sambærilegar vömr úr öðrum kjöttegundum heldur en aðrar vörur úr lambakjöti. Minni heimtaka árið 1997 m.v. árið 1996, vegna breyttra reglna, útskýrir sölusamdrátt upp á nokkra tugi tonna. Vörusamsetning í kindakjöts- sölunni er mjög að breytast. Þannig er salan sífellt að færast meira úr magneiningum yfir í meira unnið, og þ.a.l. dýrara kjöt. Að sama skapi verður magnið minna. Þetta verður að teljast eðli- leg og þrátt fyrir allt vænleg þróun. Vömþróun hlýtur að vera forsenda þess að kindakjötið eigi einhveija raunhæfa möguleika í sam- keppninni við aðrar kjöttegundir í framtíðinni. Þá er salan sífellt að færast meira úr frosnu kjöti, yfir í ferskt og uppþítt. Nokkrir sölu- aðilar hafa talað um mikinn samdrátt í sölu á frosnu kjöti en að sá samdráttur hafi að mestu leyti náð sér upp með aukningu í sölu á fersku og uppþíddu kjöti. Það er athyglisvert að hvort sem talað er við sláturleyfishafa eða smásala, þá virðast flestir af þessum aðilum ekki hafa tekið eftir þeim sölusamdrætti á kinda- kjöti sem tölur Framleiðsluráðs landbúnaðarins segja til um og margir hverjir nema síður sé. Sumir tala meira að segja um tölu- verða söluaukningu hjá sér á kindakjöti haustið 1997 m.v. haustið 1996. Hafa ber í huga að ekki eru til mjög miklar birgðir af dilkakjöti (4.744 tonn í lok desember 1997 á móti 4.794 tonnum í lok desember 1996) og trúlega má gera ráð fyrir skorti hjá einhverjum sláturleyfis- höfum á komandi sumri aftur. Sérstaklega á það við ef að sumar- slátrun bregst næsta sumar eins og sl. sumar. Hins vegar er út- flutningshlutfall dilkakjöts lægra nú en í fyrra (13% á móti 19%) og þ.a.l. er meira magn til skiptanna á innanlandsmarkaði. Hvað er til ráða? Það virðist vera nokkuð al- menn skoðun þeirra sem koma að þessum markaði að ekki væri skynsamlegt að bregðast of harka- lega við ástandinu að svo stöddu. Menn tala um að kindakjötssalan sé enn að leita jafnvægis. Eftir margra ára umframbirgðir hafi sveiflan farið aðeins í hina áttina en muni væntanlega enda í nokkru jafnvægi. Alls ekki sé skynsam- legt, a.m.k. ekki að svo stöddu, að fara aftur út í niðurgreiðslur eins Framhald á bls. 14 Úr umræðum stjórnar BÍ um frumvarp til laga um Landbúnaðarháskóla íslands Leleiningapusfii verði áiram á ábyrgð Bændasamtaka Islands Drög að frumvarpi til laga um Landbúnaðarháskóla fslands voru lögð fram á síðasta stjórnarfundi BÍ. Hörður Harðarson sagði lagadrögin gera ráð fyrir því að Hagþjónusta landbúnaðarins falli undir hina nýju stofnun. Á komandi árum þurfi að sinna af auknum krafti söfnun markaðsupplýsinga, markaðsrannsóknum og hvers konar úrvinnslu hagfræði- upplýsinga. Hluti af þeim verkefnum sem Hagþjónustan hefur verið að sýsla með og hluti af þeim verkefnum sem Framleiðslu- ráð hefur haft með höndum á undanfömum árum eigi heima á einum og sama staðnum. Bændasamtökin þurfi að hafa fomstu í stefnumótun hvað þetta varðar. Hlutverk Framleiðsluráðs sé fyrst og fremst að vera samstarfsvettvangur búgreinanna og ætti því vel að geta rúmast innan B ændasamtakanna. Örn Bergsson sagði stjóm Bændasamtakanna verða að senda nefndinni skýr skilaboð þess efnis að ekki komi annað til greina en að leiðbeiningaþjónustan verði alfarið undir stjóm samtakanna. Þórólfur Sveinsson taldi að ekki væri ljóst í lagadrögunum hvert væri valdsvið stjómar væntanlegs Landbúnaðarháskóla. I drögunum er ekki fjallað um fagráðin í þeirri merkingu sem samþykktir Bændasamtakanna gera ráð fyrir, heldur virðist gert ráð fyrir þeim sem einhvers konar akademískum fagráðum. Frá sjónarhóli Bændasamtakanna verður að tryggja að væntanleg stofnun verði þróunarstofnun sem leggi höfuðáherslu á að þjóna atvinnuveginum. Ef ekki er tryggt í lögunum að stofnunin hafi skýrt hlutverk í leiðbeiningum vex hættan á því að hún íjarlægist atvinnuveginn. Hugmyndir um væntanlega stofnun í dag em hins vegar það óljósar að vafasamt er að ætla henni að taka alfarið yfir stjóm leiðbeiningaþjónustunnar. Guðbjartur Gunnarsson taldi að hnykkja þurfi betur á því að leiðbeiningaþjónustan verði áfram alfarið undir stjóm Bændasamtakanna. Hún þarf að vera sem næst greininni sjálfri og því er henni best fyrir komið í höndum bænda. Jafnframt verður að tryggja áhrif bænda á val rannsóknarverkefna. Hrafnkell Karlsson kvaðst ekki velkjast í vafa um nauðsyn fyrirhugaðrar samþættingar, en óttaðist að þau atriði sem skiptu bændur mestu, þ.e. rannsóknir og leiðbeiningar, gætu orðið útundan innan væntanlegrar háskólastofnunar. Of mikla áherslu virðist eiga að leggja á stofnunina sem akademíska háskólastofnun frekai' en þjónustustofnun við landbúnaðinn og bændur. Þá kvaðst hann jafnframt hafa efasemdir um réttmæti þess að fella Hagþjónustu landbúnaðarins undir þessa stofnun. Pétur Helgason tók undir með Hrafnkeli og varaði við þeirri tilhneigingu sem hann taldi vera að finna í frumvarpinu, að væntanleg stofnun falli í einhvers konar akademískan farveg frekar en að vera þjónustustofnun við atvinnuveginn. eftirfarandi ályktun sem var samþykkt samhljóða: Ályktun stjórnar Bændasamtaka íslands 23. janúar 1998 vegna draga að frumvarpi til laga um fagþjónustu landbúnaðarins (Landbúnaðarháskóla Islands). „Stjórn Bændasamtaka íslands vísar til ályktunar Búnaðarþings 1997 og tekur undir meginmarkmið þau sem fram koma í frumvarpsdrögunum um að auka tengsl milli rannsókna, fræðslu og leiðbeininga, efla búfræðimenntun og endurmenntun bænda, efla háskólamenntun í búvísindum og gera Hvanneyri að traustari miðstöð þróunar íslensks landbúnaðar. Stjórn samtakanna leggur þó áherslu á nokkur atriði sem skoða þarf betur: 1. Meginmarkmið þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpsdrögunum er að skapa möguleika á nánara samstarfi um þróun landbúnaðarins. Því kann að vera rétt að það markmið komi fram í nafni stofnunarinnar og nefna hana t.d. Þróunarstofnun landbúnaðarins eða öðru sambærilegu nafni. 2. Meta þarf kosti og galla þeirrar nánu tengingar háskólastarfs og annarrar starfsemi stofnunarinnar sem gert er ráð fyrir. Margt mælir með að búvísindamenntun á háskólastigi sé aðskilin frá annarri starfsemi, hafi sjálfstæðan fjárhag og starfi í tengslum við Háskóla Islands og aðra háskóla. 3.1 uppbyggingu og skipulagi stofnunarinnar þarf að hafa í huga mikilvægi búnaðarmenntunar og endurmenntunar og tengsl þessa við rannsóknarstarf og þróunarstarf landbúnaðarins. Leiðbeiningaþjónustan verði áfram á ábyrgð Bændasamtaka íslands, svo sem kveðið er á um í frumvarpi til búnaðarlaga. Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir að þróunarstofnunin geti tekið að sér verkefni á þessu sviði á grundvelli samstarfssamnings. Að lokum skal áréttað að þrátt fyrir að uppi séu misvísandi skoðanir um uppbyggingu fagþjónustu landbúnaðarins er atvinnugreininni mikilvægt að festa í sessi skipulag þjónustunnar til næstu framtíðar.“

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.