Bændablaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 14
14 Bœndablaðið Þriðjudagur 17.febrúar 1998 Metrinch handverkfæri Björn Baldvinsson, Stórateig 25, Mosfellsbæ, símar 566 6391, 896 6391 og 852 7343 4 Einstök handverkfæri 4 Notaður er sami lykillinn/toppurinn á tommu og millimetra bolta og rær 4 Næstum útilokað er að eyðileggja rær og boltahausa, þar sem álagið kemur aðeins á slétta fleti boltans/róarinnar 4 Metrinch verkfærin eru fyrst og fremst hönnuð og gerð fyrir fagmenn 4 Metrinch verkfærin ættu að vera til á öllum íslenskum sveitabæjum. Verðlækkun með Vildarkjörum Samningar okkar við fjölmörg fyrirtæki lækka verð á vörum og þjónustu til hagsbóta fyrir áskrifendur Vildarkjara. Þú gerist áskrifandi meö símtali, faxi eða bréfi. Ókeypis áskrift veitir aðgang að samningum Vildarkjara og þú færð fréttabréfið fullt af góðum tilboðum - kostnaðar- og kvaðalaust. Skoðaðu heimasíðu Vildarkjara á Internetinu. Búvélatilboð-Vinnufatnaður-Perur-Tölvukennsla/fjarnám- Málning - Tölvukennsla/videospólur - Margvísleg kennsluforrit -Tölvupakkar- Tryggingar - Farsímar - Rafgeymar - Hleðslutæki - Byggingarvörur -Rafgirðingar/kennsluvideo- Hjólbarðar-Loftpressur - Áburðartilboð? Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík. Sími 553 5300. Fax 553 5360. Netfang: vildarkjor@islandia.is Heimasíða: http://www.islandia.is/~vildarkjor Leiðrétting í frásögn af ferðaþjónustu- fyrirtækinu í Reykjanesi við Djúp, sem birtist í síðasta tölublaði, misritaðist myndatexti af mönnum að hefja smíði á sólpalli. Þeir sem sjást á myndinni eru bændumir Jón Helgi Karlsson, Bimustöðum, og Kristján Kristjánsson, Hrúta- nesi. Lífsreyndur bíll til sölu Lada Samara 1500, árg. 1991. Gott staðgreiðsluverð. Uppl. í síma 557 6174. Framhald af bls. 4 og á ámm áður. Ávinningurinn af slíku sé miklu minni en skaðinn. M.a. fari þetta mjög illa með gæðaímynd kindakjötsins sem er að byrja að ná sér aftur á strik eftir margra ára lægð sem stafaði einkum af sölu á gömlu pokakjöti. Hins vegar sé allt í Iagi að styðja við bakið á þeim sláturleyfishöfum sem hafi áhuga á að lækka ein- hverja tiltekna kindakjötshluta í einhvem tiltekinn tíma. Sú aðstoð gæti t.d. verið í formi styrks til auglýsinga á slíku átaki. Afar mikilvægt er að halda uppi öflugri markaðsstarfsemi. T.d. í formi auglýsingaáreitis, kynninga í verslunum, samvinnu á sviði markaðsmála með slátur- leyfishöfum og verslunum og öðm því sem að gagni má koma. Þá er mikilvægt að leggja áherslu á að lækka slátur- og heild- sölukostnað. Margir halda því fram að sláturkostnaður á kinda- kjöti haldi að hluta til uppi öðmm kjöttegundum og verður slíkt að teljast óviðunandi fyrir sauðfjár- bændur. Einnig er afar mikilvægt að hagræða sem mest má verða á vinnslustiginu og sölu- og dreifingastiginu. Þetta em mál sem mikilvægt er að finna leiðir til úr- bóta á og taka þarf föstum tökum. Hugsanlegur hvati til aukinnar sölu á kindakjöti væri að vaxta- gjald yrði greitt út á slátrað kg. Einhverjir verða auðvitað að geyma kjötið í svo og svo langan tíma en sú ábyrgð ætti að dreifast,sjálfkrafa nokkuð jafnt á alla sláturleyfishafa. Vaxtagjöld sem eingreiðsla skapar meiri sölu- þrýsting á markaðinum. Það er afar mikilvægt að losa um alla hvata sem geta leitt til þess að sláturleyfishafar kunni að sjá sér hag í að geyma kindakjötið í stað þess að selja það. Mikilvægt er að fá sláturleyfis- hafa til að forvinna ærkjöt í slátur- tíð. Það er nokkuð ljóst að ærkjöt- ið selst mun betur ef það er for- unnið í sláturtíð, engu að síður gerðu afar fá sláturhús slíkt í ný- liðinni sláturtíð. Einkum er borið við skorti á starfsfólki. Vinna þarf að því að sannfæra sláturleyfishafa um hið aukna sölugildi sem for- unnið ærkjöt hefur þannig að þau telji vinnu því samfara svara kostnaði. í stað þess að ám sé slátrað á einu bretti á t.d. einni viku, þá mætti kannski taka tvær vikur í það þar sem slátrað væri í þrjá daga og kjötið unnið næstu tvo daga þar á eftir, eða eitthvað slíkt. Afnám útflutningsskyldu á ær- kjöti. Talið er að heimaslátmn á ám hafi aukist, auk þess sem æmar hafi frekar verið settar á, vegna hás útflutningshlutfalls á ám sl. haust. Það er ekki skynsamlegt að halda áfram að selja ærkjöt úr landi á meðan það er nánast verð- laust í útflutningi. Ef taka á kjöt af þessu tagi út af markaði þá verður slíkt átak að dreifast jafnt á allar kjötgreinamar. Ástæðulaust er að sauðfjárbændur einir leggi slíkar fómir á sig, a.m.k. ekki til lengdar. Maria Dóra Þórarinsdóttir, Morastððum, Kjós. Ég er nú ekki mikið fyrir að skrifa bréf, en grein þinni um hunda og ræktun þeirra á íslandi, er hreinlega ekki hægt að láta ósvarað. Það er leiðinlegt þegar menn skrifa svo fjálglega um efni sem þeir hafa ekki meira vit á en lesa má úr skrifunum. Þó verð ég að segja að í grein þinni kemur þú inn á nokkur atriði þar sem ég er þér hjartanlega sam- mála t.d. þar sem þú segir að temja þurfi hunda eins og hross til þess að þeir séu nothæfir. Og ekki ætla ég að voga mér að mótmæla neinu sem þú segir um þann ágæta mann Gunnar Einarsson frá Daðastöðum og starf hans við tamningar og ræktun Border Collie hunda á ís- landi. En svo ferð þú að skrifa um ís- lenska fjárhundinn og fólk sem er að fikta við ræktun hans í skjóli einhverra „ræktunarlaga". Það er eins og að þú sért að skrifa um svartagaldur, en ég segi nú bara, sem betur fer hafa ýmsir aðrir, ekki bara fáir bændur tekið að sér að viðhalda ræktun íslenska hundsins, annars væri sennilega líkt á komið með honum og geir- fuglinum. Ég vona að þú hafir tekið eftir því að ég skrifaði ís- lenska hundsins ekki fjárhundsins, enda er hann ekki settur í flokk með fjárhundum, þar sem hundum er raðað niður eftir eiginleikum og tegundum, heldur er hann flokkaður sem Spitzhundur. Is- lenski hundurinn er og hefur aldrei verið neinn sérstakur fjárhundur. Hann nýtist fyrst og fremst sem rekstrarhundur á hvers kyns bú- fénaði og farartækjum og fyrr á tímum nýttist hann fjárbændum einna best við að reka fé úr túnum áður en girðingar urðu almennar, þó að auðvitað væri alltaf til einn og einn sem hefði meiri hæfileika og fengi betri tamningu en aðrir. Hvað stærð íslenska hundsins varðar er ég persónulega sammála þér að hann er tíðum full smár, en hlaupageta hans er þó alveg ótrú- leg miðað við stærð, og þrautseigja og dugnaður hundsins er mjög mikil, en eins og þú kemur inn á þá er kannski eins gott að honum takist ekki að hlaupa jafn hratt og kindumar því þá tvístrar hann þeim ekki á meðan. En höldum áfram með ræktun- armálin, þú tekur þetta fína dæmi með kynbótahrossin og telur að það geti nú ekki farið vel ef við ræktum hrossin eingöngu eftir byggingu. Þú þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda, en þorir þú að hugsa þá hugsun til enda ef við ræktuðum bara eftir hæfileikadóm- um, nei það yrði jafn skelfilegt. Alvarlegir ræktendur hafa það að markmiði sínu að rækta hvor tveggja hæfileika og gott sköpu- lag, það er verðugt markmið hvort sem er í hundarækt eða hrossa- rækt. Þú hlýtur nú að vita að bygg- ing gildir til helminga á móti hæfi- leikum í kynbótadómum hrossa. En hvaða sjónarmið skyldu ráða þessu, jú ekki viljum við rækta og erfðafesta í ræktun okkar ýmsa galla sem gera það að verkum að dýrin endast ekki eðli- legan líftíma til vinnu. Sem dæmi um galla í hundum er t.d. eineistungur, mjaðmalos, arfgeng blinda (PRA), yfir- og undirbit tanna og fleira. Það er nú einu sinni þannig að gallar erfast eins og kostir og tamning og þjálfun erfist því miður ekki. Hundarækt- arfélög eins og önnur búfjárræktar- félög annast skráningu og geymslu upplýsinga varðandi ættir, upp- runa, arfgenga sjúkdóma og þess háttar. Þú hefur kannski heyrt þessa auglýsingu: „Rétt skráning og gagnavarsla í búfjárrækt er undirstaða til framfara í ræktun viðkomandi búfjár". Ég tel þetta eiga jafn vel við hundarækt eins og ræktun t.d. hrossa eða kinda. Enda eru skoskir Border Collie ræktendur í svona ræktunar- félögum og skrá hunda sína í þau (I.S.D.S). Það er t.d. undarlegt hve fáir hreinræktaðir Border Collie hund- ar eru til á íslandi miðað við þann uppgang sem þú talar um, ef til eru miklu fleiri hundar en þeir sem eru skráðir, því eru þessir hundar þá ekki skráðir einhvers staðar svo hægt sé að nota þessi dýr í ræktun. (Þeir sem ekki vilja skrá hunda sína eru um leið að standa ræktun stofnsins fyrir þrifum). Svo þú skiljir fullkomlega hvað ég er að fara þegar ég tel svo nauðsynlegt að hafa staðfestar ættir hunds, (ekki bara frá eiganda) þá ætla ég að segja þér smá sögu. Jón íjárbóndi á Hóli sér auglýsta til sölu Border Collie hvolpa í Bændablaðinu. Þar sem nýlega hafði verið keyrt yfir gamla hund- inn hans Jóns og Jón hafði séð hvað Border Collie hundar geta gert fyrir mann, ákvað Jón að hringja og kaupa hvolpinn, hvolp- urinn á að kosta 10.000 kr. Jón sendir greiðsluna og fær hvolpinn sendan um hæl í pappakassa með næstu rútu. Jæja, Jón er nú búinn að kaupa fjárhundinn og hvolpur- inn er svartur og hvítur. Jón tekur málið svo alvarlegum tökum að hann viðar að sér öllum upplýsing- um sem hann nær í um uppeldi og þjálfun Border Collie hunda. Hann meira að segja lætur bólusetja hvolpinn og gefur honum ormalyf, svo kaupir hann rándýrt fóður sem er selt í Kaupfélaginu (innflutt). Já, frúnni hans Jóns er bara ekki farið að lítast á blikuna. Svo líður og bíður og nú er svo komið að Jón er bara að bíða eftir því að geta hafið þjálfunina og hann ætlar sko ekki að klúðra þessum hundi, svo hann heldur hvolpinum frá kindum fyrstu 7-9 mánuðina. Svo skráir Jón sig á námskeið á Hvanneyri og fullur eftirvæntingar fer hann með hundinn góða á námskeiðið. En viti menn, þegar hundurinn sá kindumar á Hvanneyri hafði hann engan sérstakan áhuga á þeim, hinir hundamir vom miklu meira spennandi. Jón snéri sneyptur heim með áhugalausan hundinn sinn, heilt ár í hundauppeldi var til einskis. En hvað gerði Jón vitlaust,? Ekki neitt, nema vera þess fullviss að hann væri að kaupa réttan hund, og svona ódýr hvolpur er varla góð ræktun. Jón fréttir það seinna að kannski var pabbinn ekki alveg hreinn Border því sennilega var hann undan graðnaglanum á næsta bæ. Jón ætlar nú ekki að láta svona lagað henda sig aftur, svo hann bregður sér til Skotlands og kaupir tilbúinn hund. Hundasýningin Cmfts sem haldin er árlega í Bretlandi er stærsta hundasýning í heimi og á sýninguna eru að jafnaði skráðir 19-23.000 hundar af öllum heimsins hundakynjum. Gestir sýningarinnar telja milljónir manna og er sjónvarpað beint frá sýningunni á BBC, en Steinari og skoskum félögum hans finnst þetta bara kómedía. Gæti ekki verið að fyrst þið eruð á svo öndverðum meiði við milljónir manna að þið séuð kannski bara með einhvem molbúaþankagang, en þó var nú einhver áhugavottur hjá ykkur fyrst þið kveiktuð á sjónvarpinu til að horfa á Crufts. Það sem dómarar em að dæma á svona sýningum er nánast alveg það sama og kynbótadómari dæmir þegar þú stillir merinni þinni upp fyrir framan hann og hleypur svo með hana fram og til baka. Það væri nú óskandi að jafn vel væri búið að sýnendum kynbótahrossa eins og sýnendum hunda. (Sérstak- lega varðandi umgjörð og tíma- skipulag). Það er nú einu sinni þannig að hundaræktanda er algjörlega í sjálfsvald sett hvaða hund hann notar til ræktunar, hann getur valið hund sem var í 1. sæti á síðustu hundasýningu eða hund sem var númer 1 í síðasta veiðihundaprófi, eða sem vann poraleitarkeppnina, eða hundinn sem vann fjárhunda- keppnina á Hesti, eða bara hund sem hefur réttu ættina og þú þekkir vinnueiginleika hans. En allavega setur ábyrgur ræktandi sem skil- yrði að hundurinn sem hann ætlar að nota sé með vottaða ætt og upp- mna. Þessar upplýsingar sækir ræktandinn til ræktunarfélags, því auðvitað þekkir hann ekki alla hunda persónulega og eigendur þeirra. En svo er nú alltaf til fólk sem notar bara hundinn á næsta bæ, því það er svo handhægt, en það er auðvitað ekki ræktun. Elstu skráðu heimildir sem til em um fjárhundakeppnir em frá árinu 1873, eða frá 9. október á Bala í Englandi en þar var haldin fjárhundakeppni og sigurvegari keppninnar var Hr. William Thomson með sinn skoskræktaða hund Tweed. Tweed var stæltur hundur, svartur með hvít og gul merki (kraga, tým og sokka) og það er einnig tekið fram að þessi hundur Tweed fékk einnig fegurð- arverðlaun keppninnar.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.