Bændablaðið - 14.03.2000, Qupperneq 12
12
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 14. mars 2000
Námskeið
fyrir frjótækna
Námskeiö fyrir nýja frjótækna
verður haldiö á Selfossi dagana
27. mars til 14. apríl.
Allar upplýsingar um námskeiðió veitir
Guólaugur Antonsson hjá Nautastöð BÍ á
Hvanneyri, sími 437-0020. Einnig er hægt aó
skrá sig til þátttöku á námskeiði hjá honum og á
skrifstofu Bændasamtaka íslands. Nánar
fyrirkomulag námskeiðsins verður auglýst í
næsta Bændablaði.
VerMun á gærum
Landbúnaðarverðlaunin.
Framhald af blaðsíðu 9
og hefur það orðið til að styrkja þá
grein verulega. Um skeið stóð um
það styr hvort slíkt gæti orðið
hagkvæmt. Framleiðsla á rotmassa
svo og sjálf svepparæktin þarfnast
mikillar nákvæmni og kunnáttu.
Framleiðslan hjá Flúðasvepp-
um er nú hátæknivædd á öllum
sviðum. Ragnar Kristinn hefur
enda verið óþreytandi við að afla
bestu fáanlegrar þekkingar erlend-
is frá jafnt á líffræði sem tækni-
legu sviði.
Verk hans sýna merkin.
Búskapur þeirra hjóna er nú
stórrekstur sem veitir um 30
manns vinnu. Þegar framleiðsla
þeirra hófst var sveppaneysla hér á
landi talin í hundruðum kílóa á
viku og innflutningur var nokkur
hluti af því. Nú er framleiðslan á
Flúðum tæplega tugur tonna á
viku.
Gæruverð var í sögulegu hámarki
árið 1997. Það ár greiddi skinna-
iðnaðurinn 313 kr/kg af hvítum
gærum til sláturleyfishafa. Sam-
kvæmt verðlagsgrundvelli þess árs
var grundvallarverð til bænda 212
kr/kg. Meðallambsgæra er í kring-
um 3,2 kg. Greiðsla á stykki var
því um 1.000 kr/stk til sláturleyfis-
hafa og 678 kr/stk til bænda.
Mikið verðfall varð á gærum
árið 1998. 1. september sama ár
tók einnig gildi frjáls verðlagning
á sauðfjárafurðum. Verðið sem
skinnaiðnaðurinn greiddi 1998 var
um 64 kr/kg á hvítar lambsgærur.
Margir sláturleyfishafar greiddu
framleiðendum 50 kr/kg. Greiðsla
á stykki var því 204 krónur til
sláturleyfishafa en 160 krónur til
bónda.
Um mitt ár 1999 leit út fyrir að
erfitt yrði að fá gærumar saltaðar
og forunnar þannig að unnt yrði að
geyma þær. Var þessi staða kynnt
bæði landbúnaðarráðherra og
iðnaðarráðherra. Ekki kom til
neinna ráðstafana af þeirra hálfu.
Síðari hluta ágústmánaðar var
fundað um stöðu gærumála. A
þann fund mættu framkvæmda-
stjóri Skinnaiðnaðar hf. ásamt for-
mönnum Bændasamtaka íslands,
Landssamtaka sauðfjárbænda og
Landssamtaka sláturleyfishafa.
Helsta niðurstaða þess fundar var
að Skinnaiðnaður hf. tæki til
söltunar allt að 300.000 gærur.
Samið yrði um verð í lok sláturtíð-
ar. Leitað yrði eftir aðila til að
flytja út það sem eftir stæði, eða
um 200.000 gærur. Taldi fram-
kvæmdastjórinn að mögulegt fob-
verð fyrir útllutning gæti verið á
bilinu 140-180 kr/stk."
Til að draga úr þessu mikla
verðfalli ákvað Framkvæmda-
nefnd búvörusamninga að verð-
bæta, um 100 kr/stk, dilkagærur
sem til féllu við haustslátrun árin
1998 og 1999.
Verð til bænda fyrir gærur árið
1999 birtist á bls. 23 í Bænda-
blaðinu þann 15. febrúar sl.
Haustið 1999 flutti Kjötum-
boðið út tæp 100.000 stk af
söltuðum gærum. Tilkynnt var í
fjölmiðlum að Kjötumboðið gæti
llutt út 200.000 gærur og að
greiðsla til þeirra sláturhúsa sem
tækju þátt í þessum útflutningi
yrði 120 kr/stk. Hér var um einfalt
viðskiptatilboð að ræða; Kjötum-
boðið greiddi sláturleyfishöfum
umsamda upphæð fljótlega eftir að
afhending hafði farið fram og tók á
sínar herðar alla hugsanlega
áhættu og/eða hagnað af áfram-
haldandi viðskiptum með gærum-
ar. Eftir að tekið hafði verið tillit
til söltunarkostnaðar, flutnings-
kostnaðar og vinnulauna töldu þau
sláturhús, sem nýttu sér þetta við-
skiptatilboð, að svigrúm til að
greiða bændum eitthvað fyrir
gæmmar væri lítið sem ekkert. Á
dögunum var haft var samband við
Hagstofu Islands og óskað eftir
upplýsingum um útflutning á
söltuðum gæmm árið 1999. Ein-
ungis liggja fyrir upplýsingar um
útflutning til nóvemberloka, enn
sem komið er. Samkvæmt upplýs-
ingum Hagstofunnar vom fluttar út
samtals 89.114 saltaðar gæmr, í
október og nóvember 1999, og
nam fob-verðmæti þessa útflutn-
ings kr. 15.529.599.-. Samkvæmt
þessum upplýsingum var fob-verð
á hverja gæm því 174,26 krónur.
Fyrir liggur að Kjötumboðið hefur
fengið gæmmar greiddar nú þegar.
Varðandi kostnað við gæmmar
vegna söltunar, vinnu og flutnings
hefur það fengist staðfest hjá
Ferskum afurðum að fyrirtækið
greiddi einungis 69 kr/stk vegna
þessa haustið 1999. Skiptist sá
kostnaður þannig:
Vinna við söltun Kr. 42
Salt Kr. 10
Flutningskostnaður
til kaupanda Kr. 12
Annar kostnaður Kr. 5
Þá má rifja upp að sl. haust
óskaði ístex eftir 50.000 söltuðum
gærum til útflutnings til Bretlands
og bauð fyrir hverja gæru krónur
175,50 fob. Þegar farið var að leita
eftir gærum í þennan útfluting var
hvergi neinar gærur að fá og þar
með varð ekkert úr gæruútflutningi
á vegum ístex sl. haust. Hinn
breski aðili hefur þó látið í ljósi
áhuga á viðskiptum með gærur á
hausti komanda.
Markmið Landssamtaka sauð-
fjárbænda er að leitast jafnan við
að hámarka verð á sauðfjárafurð-
um, þar með gæmm, til bænda. Því
hlýtur það að vera mikilvægt að
samtökin og sauðfjárbændur al-
mennt séu meðvituð um stöðu
mála á hverjum tíma og reyni eftir
megni að stuðla að því að viðskipt-
um með sauðfjárafurðir sé beint til
þeirra sem hæstu verðum skila til
sauðfjárbænda.
Aðalsteinn Jónsson,
formaður Landssamtaka
sauðfjárbœnda
Sáðvörur
Tegund
Ráðgjöf
byggð á reynslu
Starfsmenn MR búa að áratuga
reynslu og þekkingu í innflutningi v^harfoxgjas
og meðferð á sáðvörum.
Við val á sáðvörum geta margar
spumingar vaknað því aðstæður
ráða hvaða fræ hentar á hverjum
stað.
Yrki Sáömagn Verð pr.kg Pöntun
kg/ha í sekkjum*
Mismunandi þarfir
Til að bændur nái sem bestri
nýtingu á sáðvömm miðlum
við reynslu okkar og annarra
t.d. um hver sé besti sáðtíminn,
hvaða sáðmagn gefur besta
uppskem og hver sé endurvöxtur
mismunandi stofna.
Grasfræblanda V/A 25 398,-
Vallarfoxgras Adda 25 245,-
Vallarfoxgras Vega 25 399,-
Vallarsveifgras Fylking 15 545,-
Vallarsveifgras Sobra 15 245,-
Vallarsveifgras Primo 20 341,-
Túnvingull Reptans 25 216,-
Fjölært rýgresi Svea 35 199,-
Sumarhafrar Sanna 200 65,-
Vetrarhafrar Image 200 60,-
Sumarrvgresi Barspectra 35 135,-
Sumarrvgresi Andv 35 112,-
Vetrarrýgresi EF 486 Dasas 35 112,-
Vetrarrýgresi Barmultra 35 112,-
Bygg 2ja raða Filippa 200 44,-
Bygg 2ja raða Gunilla 200 44,-
Bygg 6ja raða Arve 200 55,-
Sumarrepja Bingo 15 780,-
Vetrarrepja Emerald 8 190,-
Vetrarrepja Barcoli 8 155,-
Fóðurmergkál Maris Kestrel 6 1.250,-
Fóðumæpur Barkant 1,5 540,-
Skrúðgarðablanda - S 399,-
Verð án Vsk*
Réttar sáðvörur tryggja góða rœkt
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Ahersla lögð á sögu-og
minjagildi Hraunsréttar
Héraðsnefnd Þingeyinga hefur
skorað á sveitarstjórn og búend-
ur í Aðaldælahreppi að ná sam-
komulagi um varðveislu og
notkun Hraunsréttar.
Aðdragandi áskorunarinnar er
bréf frá Þjóðminjasafni Islands,
undirritað af Hjörleifi Stefánssyni
minjastjóra, þar sem þess er óskað
að Hraunsréttarmálið verði tekið
upp að nýju vegna þess mats sem
safnið leggur á menningarsögulegt
gildi réttarinnar og í ljósi þess að
mat Þjóðminjasafnsins lá ekki fyr-
ir þegar ákveðið var að byggja
nýja rétt á nýjum stað sem kæmi í
stað Hraunsréttar.
Það var á ábúendafundi í aprfl
fyrir tæpu ári sem ákvörðun þessi
var tekin í Aðaldal, en það var
ekki fyrr en snemma síðasta sumar
sem Þjóðminjasafninu bárust
fréttir af málinu. í framhaldi af því
skrifaði Hjörleifur Stefánsson
minjastjóri bréf til sveitarstjómar
þar sem hann lagði mikla áherslu á
gildi Hraunsréttar frá sjónarhóli
minjavörslunnar og mikils væri
um vert að Hraunsrétt yrði áfram
notuð, hún ætti sér langa sögulega
hefð og við hana væru tengdir at-
burðir og minningar flestra
Aðaldælinga í nokkrar kynslóðir.
Þá væri hún táknrænt gildi hins
gamla rótgróna bændasamfélags.
í bréfi Hjörleifs til
Héraðsnefndar í janúar s.l. áréttar
hann álit Þjóðminjasafnsins enda
sé Hraunsrétt friðað mannvirki
samkvæmt þjóðminjalögum. Hins
vegar væri hveijum manni ljóst að
viðhald gamallar grjóthlaðinnar
réttar krefðist meiri vinnu og
kostnaðarsamar væri að halda
henni við, en nýrri rétt úr auðveld-
ara byggingarefni. Því ætti
viðhaldskostnaður að hluta til að
falla á minjavörsluna ef samkomu-
lag næðist um áframhaldandi notk-
un Hraunsréttar.
Málið verður kynnt fjáreigcnd-
um og búendum í Áðaldal.