Skátaforinginn - 01.06.1991, Side 2
frá
RITSTJORANUM
skiptlr ekki megin máli, bara
aö þú rffirafþér sleniö og
andir aO þér fersku lofti. ÞaO
hressir, bætir og kætir. ViO
sem önnumst útgáfu Skáta-
foringjans viljum hvetja alla
skáta tíi aO senda okkur
myndir úr starfinu. Oftheyrist
sú röksemd aO ekki sé veriO
aO gera neitt sérstakt, þaO er
rangt, skátastarf er alltaf sér-
stakt, þaO starfa engir tveir
skátaflokkar eins, svo þaO er
óþarfi aO hafa einhverja
minnimáttarkennd heldur eig-
iO þiO aO vera stolt af því
sem þiO geriO vel og segja
frá því hór í Skátaforir.gjan-
um. AO lokum vill ritnefndin
þakka öllum sem aöstoöaO
hafa viO vinnslu þessa blaOs
og tekur fegin viO öllum
ábendingum um efni og þaö
sem beturmá fara I blaOinu.
GleOilega sumarskátunlllllll
SKÁTAFORINGINN
fróttabróf eldrl skáta PRÓFARKARLESTUR:
3. tbl. 7. árg 1991 Kristfn Bjarnadóttir Helgi Eirfksson
ÚTGEFANDI: Bandalag islenskra skóta RITSTJORI: SETNING, UMBROT & ÚTLIT: Skrifstofa BÍS/GuömP6ls
Júlíus Aöalsteinsson RITNEFND: PRENTUN:
Einar Þór Strand Prentsmiðjan RÚN
Guðmundur Zebits HalldórTorfason PÖKKUN:
Ingibjörg Eiríksdóttir Ingimar Eydal Vinnustofan Örvl
Ragnheiöur Ármannsdóttir UPPLAG:
Siguröur Guðleifsson 4000 eintök
UÓSMYNDIR: Skátaforingjanum er cfrerft til
Júlfus Aöalsteinsson skáta, 16 ára og eldri, þeim að
Helgi Eirfksson kostnaöarlausu. Áskriftarsími
Einar Danfelsson o.fl. er 91-23190.
Nú þegar sumariO er komiO
bjóOast skátum ótal tækifæri
tll útívistar og ferOalaga, á
annan hátt og þægilegri en á
veturna. Þetta blaö er aO stór-
um hluta tileinkaO útílífi sem
vlO getum kallað "sumarskát-
un“. DrlfOu þig nú út, gang-
andi, hjólandi, siglandi, þaO
Kgntucky
Fried
Chicken
Hjallahrauni 15, Hafnarfirði Sími 50828/652811
Faxafeni 2, Reykjavík Sími 680588/680636
OPIÐ ALLA DAGA KL. 11.00 - 22.00
2 - SKÁTAFORINGINN
LJÓSMYNDA-
SAMKEPPNI
HANS PETERSEN
& SKÁTAFORINGJANS og 1991
SKÁTAR & ÚTILÍF
Skátaforinginn hefur ákveðið
að gangast fyrir ljósmyndasam-
keppni í samvinnu við Hans
Petersen. Markmiðið með
keppninni er að fá fram myndir af
skátum við leik og störf úti í nátt-
úrunni.
Ætlast er til að þátttakendur
sendi með myndunum upplýs-
ingar um það hvar, hvenær og af
hvaða tilefhi myndin var tekin.
Ennfremur upplýsingar um þá
myndavél og fitmu sem notuð
var. Keppnin miðast við Litmynd-
ir; "slides" eða á pappír.
Skilafrestur er til 1. október
1991. ÚrsLit verða kynnt í 6. tbl.
Skátaforingjans sem út kemur í
desember 1991.
Dómnefnd verður skipuð þeim
GunnLaugi RögnvaLdssyni, útgef-
anda, Kristni ÓLafssyni, Ljós-
myndara og Magnúsi Jónssyni,
Ljósmyndara.
VegLeg verðlaun eru í boði. í
fyrstu verðlaun verður myndavél
frá Hans Petersen, CANON EOS
1000. Nánar verður greint frá
verðlaunum í næsta tölublaði
Skátaforingjans sem kemur út í
ágúst. Ljósmyndirnar eiga að
sendast til:
Ljósmyndasamkeppni
HANS PETERSEN og
Skátaforingjans
Skátabúsinu, Snorrabraut 60
105 Reykjavík.
Munið að Láta fylgja nafn og
heimilisfang með myndinni.
HfíNS PETERSENHF
BANKASTRÆTÍ 4 AUSTORVERI tYNOÍÁiSU
S- 20313 S. 36161 S. 675100
GLÆSIBÆ LAUGAVEGI 178 KRINGLUNNI
S. 812590 S. 685811 S. 689333
HJÓLSÖG Í
ÓSKILUM!
Síðastliðið sumar fjárfesti ÚLfljótsvatnsráð í forláta hjólsög
fyrir staðinn. Sögin var geymd í kjalLaranum í D.S.Ú. Nú í vor
uppgötvaðist að hjólsögin er horfin. Líklegast er að einhver
hafi fengið hana tánaða og gleymt að sldla henni.
Ef þú sem þetta Lest þekkir eitthvað til málsins eða veist hvar
sögin er niðurkomin ertu beðin(n) um að hafa samband við
skrifstofu BÍS.
Það má minna á það svona í Leiðinni að ef gestir á staðnum fá
einhver verkfæri eða aðra hluti lánaða þá er alveg nauðsynlegt
að þeim sé skilað aftur á sama stað að notkun lokinni.