Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 29

Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 29
ALLIR I VAGLASKÓG SKÁTAMÓT í VAGUVSKÓGI 2.-5. ÁGÚST 1991 TEXTI & MYND: ÁSGEIR HREIÐARSSON Um Verslunarmanna- helgina mun Klakkur bjóða skátum upp á spennandi valkost: 100% „umhverfis- vænt” skátamót - skátamót á grænnl grein. , Á grænni grein A grænni grein er móttó skáta- móts í Vagla skógi sem skátafélag- ið Klakkur ætlar að standa fyrir um Versíunarmannahelgina. Mótið er fjórðungsmót, en öllum er heimilt að taka þátt. Það er svo sem engin nýjung að Akur- eyringar haldi skátamót hvað þá heldur að það sé í Vagiaskógi en þar hefur margur skátinn sótt mót. A mótinu verður lögð sér- stök áhersla á umhverfið og verð- ur þetta án efa umhverfisvænt mót. Vafasöm helgi? Nú þykir mörgum þaðe.t.v. ein- kennilegt að ætla að bjóða til móts um þessa annáfuðu gleði- helgi þegar þúsundir unglinga flykkjast jafhan á vit útihátíða þar sem örlög hvers og eins ráðast ekld fyrr en að helginni lokinni. Við viljum hins vegar bjóða upp á nýjan valkost - að skemmta sér saman í góðum hópi í faliegu um- hverfi og án áfengis. EYRARVEGI 33, SELFOSS SÍMI: 98-22599 Reykjavík - Úlfljótsvatn alla föstudaga kl. 20.00 Úlfljótsvatn - Reykjavík alla sunnudaga kl. 21.00 EYRA VEGI 33 - 800 SELFOSSI - PÓSTHÓLF 79 Þátttökugjald Þátttökugjald er 5.500,- krónur. Ef systkini taka þátt fær annað systldnið afslátt og greiðir aðeins 3.000.- krónur. Vinnubúðagjald- ið er einnig 3.000,- krónur. Á svæðinu verða líka fjölskyldu- búðir og er reiknað með góðri mætingu eldri skáta á svæðið. Líf og fjör Það er engin spuming um hvað sé réttast að gera um Vsrslunar- mannahelgina, vertu á grænni grein í Viglaskógi. Þar verða í boði ýmis stórskemmtileg og krefjandi störf auk þess sem ann- arri skemmtun verður blandað saman við af hóflegum skammtí, má þar nefha sérstaka dróttskáta- dagskrá þar sem boðið verður upp á m.a. fiekaferðir auk merg- jaðrar kvöld og næturdagskrár- liða o.fl. o.fi. Það skal þó teldð fram að stærð og fjöldi dagskrár- liða í þessari dagskrá fer eftír mætingu eldri skáta á svæðið. Því fleiri í vinnubúðum því stærri og skemmtílegri dróttskátadag- skrá og þeim mun minni vinna á hvem skáta. GÓÐ HELGI AÐ ÚLFLJÓTSVATNI TEXTI & MYND: GUÐMUNDUR PALSSON Um mánaðarmótin maí/júní stóð Úlfljóts- vatnsráö fyrlr vinnu- helgl aö Úlfljótsvatni. Valfnkunnur hópur skáta tók þátt í útlleg- unnl ásamt starfsfólkl sumarbúöanna. Mikið var starfað enda að mörgu að hyggja. Settvoruupp útisvæði fyrir sumarbúðimar með þrautabraut og vatnasafarí, gólf sh'puð og lökkuð og veggir og hurðir málaðar. Allsherjar tiltekt og hreinsun á svæðinu fór fram auk þess sem skógarskátar tóku röskiega til hendinni við landgræðsluna. Gífurlega miklu drasli var fleygt, bæði úr geymslum og úti- svæðum. Ljósteraðtakaþarftil hendinni oftar á staðnum svo að ónýtar trönur og gamait úrsér- gengið dót safnist ekki upp. Öllu sem ekki var ekki hægt að brenna var ekið í burtu en af- gangurinn settur á brennu. Þar á meðal var gamU bandaskúrinn en hann hafði fokið um koll og eyðiiagst f óveðrinu í vetur. Það var samdóma áUt þeirra sem voru á staðnum að svona vinnuútílegur þurfa að vera 3 á hverju sumri. Sú fyrsta væri rif að koma öUu í samt horf efrir veturinn og aðstoða starfsfólk sumarbúðanna við uppsetn- ingu á úrisvæðum. f vinnuútí- legu númer tvö væri unnið að einhverjum ákveðnum verkefn- um s.s. skógrækt, vinnu við tjaldsvæði, bryggju o.s.frv. í þriðju útilegunni væri síðan gengið frá öUu eftír sumarið og gert klárt fyrir veturinn. SKÁTAFORINGINN - 29

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.